Kirkjublaðið - 01.01.1897, Qupperneq 10

Kirkjublaðið - 01.01.1897, Qupperneq 10
10 af einu heimiJitju, eins og varpmennirnir munu kannast við að ein æður safnar stundum að sjer ungum úr mörg- um hreiðrum, þegar út á vatnið kemur. ketta, að halda lifandi löngun og þörf kvöldmáltíðarsakramentisins er ein grein sálgæzlunnar, ogleikmönnum finnst vísast, aðprestum standí næst að ræða um meinið og bót á þvi, enda skal það þakksamlega þegið, en þar sem nú er spurt um »orsakirnar«, er eðlilegt, að leikmenn engu siður en prestar svari spurningunni. Öll hin kirkjulegu blöð vor hafa á síðari árum töluvert rætt þetta mál, en mest munu það hafa verið prestar, sem ritað hafa, og væri nú vel að leikmenn hefðu líka orðið; af þeirra hálfu minnist jeg eigi í augnablikinu að annað hafi staðið í Kbl. um það efni, en hugvekja eptir leikmann í Húnaþingi, í 2. árg. blaðsins. Kbl. hefir verið markað það svið, að það gefi sig sjerstaklega að hinni ytri hlið kirkjulegra mála, þar sem »Verði ljós« hefði hina innri. Kbl. hefir eigi komið upp með þá verkaskipting og viðurkennir hana eigi nema að nokkru leyti. Rjett, að Kbl. útilokar eigi ytri hliðina, þar sem aðskilnaðurinn er eitt aðalmálið; önnur kirkjuleg lög- gjafarmál standa útgefandanum í Jjettu rúmi, hafa sína þýðingu eptir þvi, hvernig þau horfa við aðskilnaðinum. Það er ekki allt af svo auðvelt, að draga línu milli hinn- ar »innri« og »ytri« hliðar, en Kbl. hefir frá fyrstu talið sig aðallega kristilegt uppbyggingarblað »handa íslenzkri alþýðu«. Þeir af lesendum Kbl., sem jafnframt lesa vestur-ís- lenzku kirkjutímaritiu »Aldamót« og »Sameininguna«, munu búast við því að Kbl. víki eitthvað að árásum þeirra núna undir áramótin síðustu. Slíkt svar hefði helzt þýðingu fyrir þá, sem eingöngulesa vesturíslenzku kirkju- tímaritin, og ætti þá að standa í þeim; fyrir þá sem jafn- framt lesa Kbl. er það óþarft, og að rekja árásirnar fyrir þeim sem eingöngu lesa Kbl. er ekki uppbyggilegt. Sá, sem er handgenginn kirkjusögunni kippir sjer eigi upp við það, þó að einn guðfræðingurinn vilji neita öðrum um kristið heiti. Ríkið — það er jeg, sagði Lúðvík 14. Líkt hefir

x

Kirkjublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.