Alþýðublaðið - 30.09.1960, Síða 4
: >wA'yyys'íW^v!;‘
WB
UppþvoíÉurinn er eitt
|y rirferðamesta starfið á
:;‘|msHra stórhótelum er-
fcndís og því er ekki aS
!«r$a þétt fundnar hafi
ýerið upp vélar, sem leysa
Betta starf af hendi á fijóí
f w og þægilegan hátt.
. flér er mynd af upp-
#kottavélinni í Hótel Fon-
feiínebleu í Florida. Hér
þarf ekkert að gera annað
en setja diskana í vélina,
:;se«j er einsog færiband.
Eliin þvær 30.000 diska,
potta og pönnur á klwkku-
átiand, Færiböndin eru
tiamtals rúmlega 60 metr-
ar a lengd.
MfKIÐ er rætt og ritað um
drykkjuskap æskufólks og
íurðulega framkomu á dans-
leikjum, ekki sízt í nærsveit-
um fteykjavíkur,
Því er jafnvel haldið fram
að tiltektir og drykkjuæðið
-rninni helzt á ástandið í sum-
um skuggahverfum stórborg-
Víst er um það, að hin upp
vaxam4i æ-ska nútíjmanís er
í ba;ítu stödd, hefur alltof
jntkla peninga handa á milli
og virðist agalaus með öllu.
Hitt er furðulegt, hvað lít-
ið er rætt um þann bölvald,
sem stendur að baki drykkju
æskufólks, skemmdaræði og
öðrum furðulegum athöfnum,
en }>að er hópur Ieynivínts.l-
anua.
i>eir eru smánarblettur,
sem kominn er tími til að
þvo a£ bæmim okkar.
í>að er fullyrt manna á
anilli að hægt sé að ganga að
Iveimur leigubifreiðastöðv-
um í bænum að kvöldlagi og
nóttu til, eins og að áfengis-
verzlunum að degi til og fá
þar jafn fljóta afgreiðslu á
áfengi,
Sofandaháttur lögregluyf-
irvaldanna í bænum gagavart
þessum ófögnuði á undan
förnum árum hefur verið
þeím til skammar. f>að eina
sem gert hefur verið, er að
gera skyndileit að áfengi á
feígulbiifreiiðastöðvunium, sem
fiestar munu hafa mistekist
að öðru leyti en því, að sanrla
að áfengi sé selt af ökumönn-
um á tveimur bifreiðastöðv-
um í bænum. Virðast þessar
ieitir liafa átt að vera eins
konar afsökun eða friðþæg-
ing, fyrir það sleifarlag og
sofandahátt sem ríkt hefur.
Leynivínsalarnir hafa hleg
ið að þessum þýðingarlitlu
leitum, enda aðeins örfáir
þeirra náðst í þeim,
Aðgerðarleysi lögreglunn-
ar gagnvart leynivínsölunum
er því furðulegra, er þess er
tfæíf að varla mun sú nótt
líða, sem hún þarf ekki’ að
hafa afskipti .af mönnum
vegna ofdrykkju og annarra
afbrota sem beint og óbeint
hefur leitt að leynivínsölunni
í bænum.
Væru öll þau afbrot og
harmleikir skráðir sem áfeng
issala leigubifreiðarstjóra
hefur leitt af sér hér á landi,
mundi mörgum sem þá bók
læsi' sortna fyrir augum.
Þessar fjórhjóluðu áfengis
verzlanir safnast kringum
Reyk-
skrifar
samkomustaðina, ekki sízt í
nærsveitum Reykjavíkur og
eyðileggja hverja skemmtun.
Lögregluþjónar sem stunda
gæzlustörf á samkomum úti
á landi, virðast ekki hafa lagt
sig fram um það að taka
leynivinsalla, sem að koma,
þótt það sé fyrsta starfið, sem
inna þarf af höndum, til að
hægt sé að halda uppi ein-
hverri reglu á þeim sam-
komum, eins og nú er komið.
í sumar bárust þau góðu
tíðindí um bæinn, að lög-
reglustjóri hefði hafizt
handa um herferð á hendur
leynivínsölunum. Falið dug-
miklum lögreglumönnum að
hafa hendur í hári þeirra.
Þessir ágætu lögreglumenn
munu þegar hafa klófest tals
verðan hóp þessara þrjóta,
þótt yfir nóg verkefni sé fram
undan.
Fyrir þessa framtakssemi
sína á lögreglustjóri miklar
þakkir skilið og þá ekki síður
hinir ágætu lögreglumenn,
sem unnið hafa að þessu af
miklum dugnaði' og hug-
kvæmni, því enginn þarf að
ætla ag þessir refir séu auð-
gripnir.
Hver einasti hugsandi mað
ur og kona, ætti að styðja
lögreglustjóra og starísmenn
hans í þessu máli. Veita lög-
reglunni upplýsi'ngar eftir
föngum.
Þá mun ekki líða á löngu,
áður en sigrast væri að fuilu
á leynivínsölunum. Þá mun-
du margir foreldrar geta
lagst áhyggjulausir til svefns
út af börnum sínum sem
sækja samkomustaði bæjar-
ins og víðar.
Þar sem þrjár af firr.m
leigubifreiðastöðvunum í
bænum eru ekki orðaðar við
áfengissölu, sýnir að meiri-
hluti þeirr,a manna, sem hef-
ur leigubiíreiðaakstur að at-
vinnu hefur þá sómatilfinn-
ingu til að bera, að drýgja
ekki laun sín með áfengissöiu.
Það er því furðulegt, að öku-
menn á þessum stöðvum
skuli ekki krefjast innan sam
taka slnna, tafarlausar brott-
vikningar á hverjum þeim
ökumanni, sem staðinn er að
leynivínsölu.
Þetta er smánarblettur á
stéttinni og sæmir ekki góo-
um drengjum, (en þeir eru
margir innan samtaka leigu-
bílstjóra), að láta leynivín-
söluna líðast. Láta takmark-
aðan hóp þrjóta og brota-
manna setja smánarblett á
alla stéttina. Þessir menn sem
stunda leynivínsöluna, (ef
menn skyldi kalla), eru sagð
ir svo miskunnarlausir í
græðgi sinni í léttfenginn
gróða, að þá klígjar ekki víö
það að láta unglinga reita af
sér fatnað, úr og aðra muni
til að kaupa áfengi fyrir. —
Ekki munu þess heldur fá
dæmi' að þjófur afsetji stolna
muni fyrir áfengi og akstri.
Að sjálfsögðu munu þessir
leynivínsalar ekki taka muni
þessa, nema fyrir lítið brot
af verðgildi þéirra. Þeir
maka því krókinn á fleiru en
áfengissölunnl einni, er þeir
selja þessa muni aftur, rneð
margföldum hagnaði.
Það er því engin furða þótt
mjargir af þessum leynivín-
sölum séu orðnir stórefnaðir
menn á iðju sinni svo þokka-
leg sem hún er. Einnig er
sagt, að sumir þessir herrar
fari í .skemmtireisur til út-
landa á ári hverju og ekki
skorti þá gjaldeyri.
Oft hefur verið á það
.minnstt í ræjðum og rituðu
máli að birta nöfn afbrota-
manna.
Fáir hafa fremur til þess
unnið, að nöfn þeirra séu
bir.t, en leyriivínsalarnlr,
miðað við verknað þeirra,
afbrot og böl, sem af starf-
semi þeirra hefur leitt og
leiðir, takizt ekki að uppræta
þennan ófögnuð með öllu.
Dómstólarnir verða að
dæma þessa þrjóta í háar
, sektir og svipta þá réttindum
til leigubifreiðaaksturs o.g
löggjafinn verour að sjá um
að þyngstu refsingum sé
hægt að beit'a gagnvart þess-
um brotamönnum.
Uppvaxandi æska er of dýr-
mæt til þess að fjárgráðugir
og samvizkulausir leynivín-
salar geti eyðilagt stóran hóp
hennar.
Leynivínsali þarf að verða
það smánaryrði, að engiixn
hversu illa gefinn sem hann
er og samvizkuliðugur, vilji
láta tengja það við nafn sitt.
Reykvíkingur.
Orðsending fil leigjenda
Kartöflur verða teknar til Vetrargeymslu í Lauga
lækjarskóla við Sundlaugarveg, frá kl. 3—7 e. h. sem
hér segir:
Frá ræktendum í Borgarmýri mánudag 3. okt Frá
ræktendum í Rauðavatns og Sogagörðum þriðjud_
4. okt. frá ræktendum í Kamibsgörðum, Laugardals-,
Þvottalaugagörðum, Tungutúni, Vatnsmýri og Skild
inganesgöíðum miðvikud. 5. okt.
Gevmsluhólfin rúma 15 kassa (jarðhúsakassar)_ Leigu
gjald 150.00 kr. Geymslutírnirm er til 1. júní 1961.
Enginn fær leigt meira en eitt geymsluhólf.
Reykjavík. 28. sept. 1960.
Garðyrkjustjóri Reykjavíkurbæjar.
sept. 1960 — Alþýðubiaðið