Sunnanfari - 01.11.1902, Side 3

Sunnanfari - 01.11.1902, Side 3
«3 um að Heiði, og bjuggu þar myndarlegu búi 28 ár. Seinast bjuggu þau 4 ár að Veðramóti þar í Skörðunum. Heiði er erfið jörð, og varð Stef- án þar oft fyrir stórtjóni veðurs vegna, en svo var, sem hann stæltist við hverja þraut, og urðu þau hjón allvel efnuð, meðan þau bjuggu að Heiði, en jörðinni fór svo fram, að túnið gaf 100 hestum meira af sér af töðu, þá er Stefán fór frá henni, en er hann tók við henni, og margt vann hann annað þarft að jarðabótum og húsabótum. Þótt Stefán væfi búforkur mikill, má eigi ætla, að hann byndi sig við búskapinn einan, heldur hafði hann vakandi auga á öllu, er gerðist bæði innan héraðs og utan, og lét margt gott af sér leiða. Hann var t. d. aðal-hvatamaður þess, að barnaskóli var stofnaður á Sauðárkrók, oggaf talsvert fé til þess fyrirtækis. Hann gekst og fyrir þvi, að brú var gerð yfir Gönguskarðsá, og var sú brú fyrst t Skagafirði, en nú rná heita að þar sé hver spræna brúuð. Stefán hefir og verið hinn mesti hvatamaður til sundkenslu bæði á Norðurlandi og víðar, og segir hann sjálfur, að orsökin til þess, að hann fór að beita sér fyrir því máli, hafi verið sú, að sauður bjargaði manni úr Héraðsvötnunum á sundi. Urn það leyti, sem Stefán bjó að Heiði, ráku Skagfirðingar vestan Vatna verzlun sína að- allega til Skagastrandar, og lá þá vegurinn yfir Gönguskörð. Heiði íá við þjóðbraut, en nllfjarri öðrum bæjurn, og var þar því oft gestkvætnt, enda spöruðu þau hjón ekkert, sem glatt gat gesti og gangendur, og má fullyrða, að þar hafi rikt hin góða og gamla íslenzka gestrisni. Þau hjón eignuðust 7 börn, og dóu 4 þeirra i æsku, en 3 komust upp, og lifa enn: síra Sig- urður í Vigur, Stefán kennari á Möðruvöllum, og Þorbjörg, kona Björns hreppstjóra Jónssonar að Veðramóti. Engrar mentunar naut Stefán bóndi i æsku, og hefir honum ætíð fallið það þunglega, því að hann kann vel að meta kosti menningarinn- ar, og sést það bezt á þvi, að hann kleif þrítug- an hamarinn til þess að koma háðum sonum sinum ti] menta. Hann átti og meira og minna þátt í námi ýmissa annarra ungra og efnilegra manna, svo sem doktors Valtýs Guðmundssonar o. fl. Stefan er nú kominn yfir sjötugt og þau hjón bæði. Þau lifa enn, og hafast við hjáStef- áni syni sínurn. Þótt aldur hafi færst yfir Stef- án, heldur hann enn fjöri sínu, og er allra manna ernastur. Aldrei er hann iðjulaus, heldur sí-starf- andi, og því fer svo fjarri, að hann sé hættur að hugsa um landsins gagn og nauðsynjar, að hann ritar enn greinar í norðlenzku blöðin um ýmislegt, sem honum er áhugamál. Ef ætti að einkenna Stefán bónda með einu orði, þá yrði það eflaust orðið dhugamaður. Vér Islendingar erum taldir áhugalitlir, og það er rétt; en því fer betur, að enn er til eldlegur áhugi á meðal vor. Mesti áhugamaður, sem eg hefi þekt um dagana, er Stefán bóndi. Áhugi hans og kapp virðist oft koma fram við smámuni: mélabeizfi, hrifutinda o. s. frv.; en þegar betur er aðgætt, eiga þersi mál vel áhuga skilið. Ekki er Stefán áhugaminni um útlend mál; og það er eg viss um, að ef Búar hefði jafneindregið fylgi tíunda hluta þ'eirra manna, sem þykjast vera með þeim og Stefáns gamla á Möðruvöllum, þá væri þeim, ófrið lokið fyrir löngu með heiðri og sóma fyr- Búa. [Þetta var ritað í fyrra vetur.— Ritstj.]. Svo er að sjá, sem áhugi Stefáns hafi gengið í ættir til sona hans. Að minsta kosti er eftirtekta- vert, að þeir hafa báðir verið alþingismenn, og látið að sér kveða að ýmsu leyti. Þó að Stefán bóndi hafi ekki verið hátt sett- ur um æfi sína, þá getur hann litið yfir hana j með glöðu geði. Hann hefir, og þau hjón bæði, öðlast það tvent, sem mest er um vert i heim- inum, þegar öllu er á botninn hvolft: að geta litið yfir langt og þarft æfistarf, og að skilja sjálf sig eftir í efnilegum niðjum. Ó. D. A t h s. ÞaS er fyrir misgáning þess eða mis- skilning, er myndirnar hefir gert, suSur í Vín, af þessum merkismönnum báSum, er hór segir frá, aS þær hafa orSiS miklu smærri en skyldi og til var ætlast.

x

Sunnanfari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.