Sunnanfari - 01.11.1902, Page 6

Sunnanfari - 01.11.1902, Page 6
86 Sólarljóð. Heilög himinsól, hnatta drotning, hrað-geng hlýjudís í hæsta veldi, landa ljós-freyja, lagar skrautselja, hugnæm, há-tigin — eg hylli þig. Barna bros-vaki, bjarkagreina ljúfur lauf-gjsfi í landi hverju: linda Ijóðhreimur, lækja kveðandi eiga npptök sín í alúð þinni. Eiga iipptök sín í ástúð þinni : grasa gróandi gervi-litir, aldin ilmandi og undra-skraut þúsund fjaðrafjár faguriima. Eiga upptök sín í arni þtnum Bifröst blá-gylt og bogadregin, sk_ýja skrautlitir og skarlatstjald bliku bjartleitrar í blíðviðrinu. Eiga upptök sín í eldi þínum: læging lognsnjóa, leysing klaka. Nær þitt bræðslu bál frá blá-sköllóttum jökli járnfættum á jafnslóttuna. Móður munklökkvi megin-göfug i á sér óðalsbygð í álfu þinni. A.ugljós endurmynd ástar þinnar er sú arin-laug, sem aldrei frys. Er sú arin-glóð, sem aldrei kulnar, að eins endurskin elsku þinnar, jöfn í hreysi og höll, holti og fjalli, eins í árdaga og aldalok. Þegar daggardreif að degi liðnum fellur frjógandi f fjarvist þinni yfir æsku-grös og ávexti, þá er þögul sorg í þínu ríki. Þá er þjóð-grátur í þínum löndum, alt frá aftni dags, allar nætur; grúfir grát-fögur í grænum klæðum fálát fræmóðir að foldar sæng. Ardís eldgjöful í Austurvegi! Þegar þú ert són þorna tárin; lyftir logn-döggvuð loki hvarma, bærir bros-færi blómþjóð öll. Þúsund þjóðkvæði, þúsund lofkvæði eru um þig gerð í öllum löndum; hundruð hljóðfæra hundrað-rödduð

x

Sunnanfari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.