Sunnanfari - 01.05.1912, Side 6
38
út yfir garðinn — gat ekki annað, og þorði
það samt ekki. Leiðin voru voðaleg með
öllum þessum dauðu mönnum. Sigmundur
vissi, að moldargusa gat komið upp úr þeim,
þegar minst varði. Og á eftir kom annað
hræðilegra ....
Eitt leiðið var nýtt, óhlaðið, ekki annað
en aflöng moldarhrúga. Þar var grafin kerl-
ing frá Skálholti, hárlaus, rauðeygður, grá-
lyndur geðvargur. Hún hafði aldrei setið sig
úr færi að ausa j'fir hann skömmunum, þegar
hún hafði getað. Rétt fyrir andlátið hafði
hún spáð honum því, að hann yrði ösku-
mokari hjá óvini mannkynsins. Hann lok-
aði augunum — og honum fanst hann sjá
gular, kræklóttar krumlurnar á henni ætla að
káfa framan í hann ....
Og stundum rís kirkjugarðurinn! Allir
þessir dauðu menn, sem þarna hafa verið
grafnir öld eftir öld, stíga upp úr gröfunum
— hvítklæddar, lioldlausar beinagrindur, —
streyma inn í kirkjuna, hver vofan á fætur
annari, — hundruð af vofum, þúsundir af
vofum — og syngja þar tíðir. En söngurinn
er grátur og vein og gnístran tanna. Og orð-
in eru guðlastanir....
— Nú hættum við við þetta. Nú förum
við heim aftur, veinaði Sigmundur að baki
félaga sínum.
I sama bili opnaðist kirkjuhurðin.
Síra Þorkel! fór inn úr dvrunum, og dró
Sigmund með sér. Þeir héldu inn eftir kirkju-
gólfinu. Fótatak þeirra kvað við í tómu
húsinu.
— Varaðu þig, varaðu þig, sagði það í
eyrum Sigmundar.
Tunglið sló hjarma liér og þar innan um
kirkjuna; þess á milli dimmir skuggar. Krist-
ur var tunglhvítur við kórdyrnar — sá Krist-
ur, sem Sigmundur hafði stungið í lærið, sá
Kristur, sem alt af
var honum reiður
.... En ef hann
kæmi með kross-
inn á bakinu ....
Háaltarið var í
skugga og gaflinn
á skríni hins helga
Þorláks þar uppi
r.... En ef hann
spyrnti núfgaflinum
úr skríninu! ....
— Varaðu þig,
varaðu þig!
Sigmundur hélt
fast í félaga sinn.
Þeir i sneru til
vinstri handar, að
dyrunum á norð-
urstúkunni. Síra Þorkell stakk þar inn lykli.
En hvað hann var lengi að opna! Sig-
mundur skalf og nötraði. Þorkell tautaði
eitthvað fyrir munni sér, sem ekki ætti að
segja inni í kirkju hjá Kristi á krossinum og
beinum hins helga Þorláks. En Sigmundur
lieyrði ekki orðin.
Var það lásagaldur? ... Galdur ... inni í
kirkjunni!
Sigmundur vissi ekki, hvort Kristur mundi
reka þá út eða lífláta þá.
— Hann er að koma!
— Hver?
— Með krossinn á bakinu.
Ásgrímur Jónsson: Dalba'r í I.anclbroti.