Sunnanfari - 01.11.1912, Blaðsíða 3
83
Veiztu, að ekkert auðnuleysi
Er af völdum lians, sem spáði,
Þó við höfum óbreytt yfir
Álög sköpuð slærnu ráði.
Vildum Sigurð sóknar-rækan,
Svíðing þinn er traðkar lögum.
Og til þess við Mókoll myndum,
Móðir, skifta okkar sögum.1)
IV.
1‘egar við erum aftur falin
Okkar vega fjærðar-hulu,
Huglægustu óskir okkar
Oft þín, móðir, vitja skulu.
Vildum gjarnan, að þá eygðist
Eftir skip vor, fyrri róin,
Út til hafs úr liöfnum þínum:
Huldu-rák í afla-sjóinn.2)
Yrði á hökum hart í ári,
Heyrðust Ijóð, er að því stafi:
Vildum kveða áhríns-orðum
Upp að skögum björg úr hafi.3)
Eins, er vætu-veðra horfur
Vofa yfir dala-brúnuni,
Öll í ljá er óhirt taðan
Al-ílekkjuð á slegnum túnum:
Lyfta henni heim í tóftir
Hjálpa vildurn fyrir kvöldin,
Orðin væltir verka-léttis —
Vikin burt um töðugjöldin.
Og við skyldum skiprúm bjóða
Skjöktu-dreng, á leið sem finnum,
Móðir, orðinn út’ í veri
Einn af þínum fyrirvinnum.
Yfir vetrar-vertíðina
Vildum hann af skipi, og fleiru,
Bæri hærri hlut frá borði
Held’r en þó hann reri í Leiru.4)
1) Smbr. Mókollur, í íslenzkum þjóðsögum og
Æfintýrum. Álfar, bls: 74.
2) Smbr. sögnina, að lognrákir á sjó, sé kjöl-
far huldufólks skipa.
3) Grímsborg ísl. þjóðs. og Æfint.: Álfar, bls.: 27.
4) Grimshóll. ísl. þjóðs. og Æfint.: Álfar, bls. 79.
V.
Og þó minning okkar verði,
Eítir því sem líður timi,
Uppi bara i æfintýri
Eða nafn á gömlu rími:
Kannske yrði annað-slagið,
Út’ um bæi í sveit og hvömmum,
Þjóðsagan og ljúflings-lagið
Lengi til lijá fróðum ömmum.
Stephan G. Stephansson.
Elzta manneskja á landinu
var Vilborg Stígsdóttir, þegar manntalið var
tekið 1. December 1910. Hún lézt 23. Febr.
nú í ár, og skorti þá tvo mánuði á 99 ára.
Sunnanfari flyt-
ur nú mynd af
þessari gömlu
konu, og gerir
það ekki að eins
sökum þess, að
hún væri elzt ís-
lendinga, þegar
hún lézt, lieldur
og meðfram af
því að liún var
sæmdarkona í alla
staði.
Vilborg var
fædd á Langholti
í Meðallandi 23.
Apríl 1813, og
og voru foreldrar
hennar Stígur Jónsson bóndi á Langholti og
Ingibjörg Sigurðardóttir kona hans. Albróðir
Vilborgar var Jón Stígsson, er andaðist 90
ára gamall 1910.
Vilborg giptist 33 ára gömul 15. Ágúsl
1846 Sverri Bjarnasyni bónda á Grimsstöð-
um í Meðallandi. Var Sverrir bróðir Bjarna
á Keldunúpi, er um langa æfi var hreppstjóri
Síðumanna, föður Bjarna hreppstjóra í Hörgs-
dal (d. 1900), föður Bjarna, er nú býr þar.
Vilborg Stigsdóltir.