Sunnanfari - 01.11.1913, Síða 7
87
Á Himinglæfu liorfði eg sj;ilfa
af hafinu utan renna gandi;
mér fanst jörðin skykkjum skjálfa,
er skaflinn féll og sprakk á sandi.
III.
Á Sólheiniasamli.
Finnurðu ekki, fnykur
fyllir þefjartækin?
I’arna þrjóta stikur,
þá er skamt í lækinn.
Eg heyri’ í aurnum urga,
atalt rekið svarfið
og staklega starfið.
í Fúlalækjar flaumi
fall er strítt í álum,
að standa þar í straumi
á steinavölum liálum
hent er fákum fáum,
og falli yfir Hlesa,
er bænir betra’ að lesa.
Ótrúr er állinn kaldi,
ekki er von á góðu.
Vigfús brotið valdi,
vimur klárar óðu;
mér varð það vel að haldi —
eg vætti naumast tána —
yfir um ána.
I’ótt fimbulþul sé frækin,
á fluginu heldur asi,
lögðu í skorður »lækinn«
Loðmundur og Þrasi;
gilbarmar úr grjóti
geta leingi staðið, —
viðsjálla er vaðið.
Fruinmyiuliii ai Hnll{;víini l-’éturjs-
siyni, sú sem nú er til, og gctið er um í almanaki
Pjóðvinafélagsins 1914 bls. 38, og víðar, er áreið-
anlega eptir síra Hjalta Porsteinsson í Vatnsfirði
(d. 1753), því að pegar hreinsað er til á myndinni
og grant að gætt, þá koma fram fyrir neðan nafn
Hallgrims þessi orð: »saaledes afskildrel ved H. Th.«
Nikulás Runólfsson,
sem þessi mynd er af, var fæddur á Velli í
Hvolhrepp 31. Okt. 1851, sonur Runólfs
hreppstjóra, er leingi síðan bjó á Bergvaði,
Nikulássonar, bónda í Kollabæ, Runólfssonar
bónda i Kollabæ, Kárasonar. Runólfur hrepp-
stjóri á Bergvaði þótti skýrleiksmaður hinn
mesti. Hann lézt 1906. Móðir Nikulásar og
kona Runólfs var Helga Stephánsdóttir, Bryn-
Nikulás Ilunólfsson.
jólfssonar, af hinni nafnkunnu Víkingslækjar-
og Skipagerðisætt.
Þó að æfi Nikulásar væri ekki margbrotin
eða stórviðburðarík, var hún merkileg og
eptirtakanleg.
Ungur nam hann gullsmíði hjá Benedikt
gullsmið Ásgrimssyni í Reykjavík. Að afloknu
námi sellist liann að í Reykjavík sem sjálf-
stæður gullsmiður, og svo stóð i eitt ár. Því
næst sigldi hann til Hafnar til þess að fram-
ast þar í iðn sinni, og vann þar síðan i mörg
ár fyrir sér með smíðum. En jafnframt því
las hann alt, sem hann gat, einkum í nátt-
úru- og eðlisfræðum, því að laungunin til að