Öldin - 01.02.1894, Page 1

Öldin - 01.02.1894, Page 1
Oldirx Entered at the Winnipeg Post Office as second class matter. II., 2. Winnipeg, Man. Febrúar 1894. LlKBRENNSLA. Brot af fyrirlestri eftir De. M. Halldórsson. Það er hvorki lærdómstildur né nýj- ungagirni, som heflr fundið upp líkhrennsl- una, og gert bæði lækna og aðra að tals- mönnum hennar. Það er þvert á rnóti um- hyggjan fyrir lífl og heilbrigði mannkyns- ins, og hún ein, sem því hefir komið á gang. Svartidauði, stórabóla og aðrar hamslausar landplágur af líku tagi, voru fyr meir á Is- landi, eins og annarstaðar, skoðaðar sem refsidómar guðs fyrir sindir mannanna og guðleysi. Þessi skoðun var þá almenn urn heim allan, og á Egyptalandi var það inorðengill, scm lét greipar sópa um ung- viðið, eins og kunnugt er af biblíunni. Þessi sama trú hélzt lengi fram eftir öldum og hefir verið þjóðtrú heima á Islandi, eins og sjá má a.f sögunni um bóndann, sem svarti dauði vildi eigi sækja heim. Bóndi var vanur að lesa á hverjum morgni alt ár- ið um kring. Eitt sinn var verið að taka saman hey, því rigningarlcga leit út. Vildi nú bóndi fara heim að lesa, en sumir löttu þesss, og sögðu, að nær væri að bjarga hey- inu. Varð það þó úr, að bóndi hafði sínu fram, og fór hann og las lesturinn. Um daginn sáust tveir skýhnoðrar, er færðust nær og stækkuðu og urðu loksins að karl- manni og konu, sem riðu á gráum hcstum. Þau riðu fyrir ofan garð hjá bónda; sagði þá kvenmaðurinn: “Skal hér heim?” ‘Nei,” sagði hann, “það var oss eigi boðið.” Svo dundi svartidauði yflr, en á þennan bæ kom hann aldrei. “Ég veikist ef égá að veilyast,” hugs- aði hver um sig, og svo umgengust þeir sjúklingana eins og ekkert væri í húfl, hugsunarlaust og varúðarlaust. Atu mat, sem staðið hafði inni í sóttarlierbergjunum, fóra í klæði sjúklinganna undir eins og öndin var skilin við líkamann, og vora inni í veikindaholunum án þess að þvo gólf eða hleypa inn hreinu lofti. Það er einmitt í frásögum haffc, að plágan mikla, sem kom út til íslands árið 1493, og sem byrjaði um alþing og geysaði í algleym- ingi sínum fram á haust, til þess er veður kólnaði, og nær gjöreyddi alla bygð á Suð- ur og Vesturlandi, hafi flutzt í klæðum, er enskir kaupmenn í Ilafnarflrði höfðu á boð- stólum, ásamt öðrum varningi. I klæðun- um leyndist einmitt pestarefnið. Líkar frásagnir ganga um upprana annara drep- sótta. Þeir sem varlega vildu fara, voru liæddir og spjáðir fyrir hræðslu og sérvizku af því að þeir veiktust og dóu eins og hin- ir, og tókst eigi að verja sig sakir heimsku og sóðaskapar annara manna, og vanþekk- ingar sjálfra sín. Sannarlega hefir þurft meira en meðalmanns þrek og vit, til að breyta eins og Torfl Jónsson á Klofa gerði þá. Undir eins og liann frétti að drepsótt þessi var komin austur yfir Hellisheiði, austur í Ölfus, tolc hann upp búslóð sína og fór burt frá Klofa með alt, er hann mátti með komast, og fór með það og hyslti sitt alt upp á Landmanna-afrétt í afdal einn, og liafðist þar við alt sumarið unz hann frétti, að sóttin væri rénuð. En það var bæði, að hann var ríkur maður og höfðingi mesti, og þurfti Íítt að hirðaum, livað aðrir glömr- uðu.' Það eitt varð því til úrræða fyr á

x

Öldin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.