Öldin - 01.02.1894, Page 5

Öldin - 01.02.1894, Page 5
ÖLDIN. 21 hennar : “Fáðu mér beinið mitt, Gunna,” og varð hún þá að skila af sér kúpunni. Eða sögunaum “kjálkamir mínir,” eðaum mannsneíið, sem stúlkan hafði sem þráðar- kefli og vildi eigí láta af hendi fyr en draugsi kom, og sagði presti frá tiltæki stúíkunnar o. s. frv. Það sýnist svo sem menn snemma hafi tekið eftir því, hvað friðlítið oft vill verða í kyrkjugörðunum. Þcgar menn nú liugsa ofrlítið út í þetta, þá munu þeir kannast við, að lík- brenslan er þó að mun fegurri og hrein- legri en þessar greftrunar aðfarir, sem nú tíðkast. Það líða ekki nema tvær klukku- stundir frá því hinum tíðkanlegu sorgum og ræðuhöldum yfir kistunni er lokið og þangað til að líkaminn er leystur í frum- efni sín og horflnn inn í skaut náttúruun- ar, og er þá réttmæli, að segja, “að hann sé kominn aftur þangað seni hann var áður”. Mestur hlutinn hefir þá samlagað sig himinloftinu og leifarnar er snjóhvítt duft óblandað að öllu leyti, og má geyma það í leir eða silfurkeri, ef vill; það skaðar engan mann og það er hinar sönnu leifar. Það má og jarða, ef menn vilja. Það hefir og reynslan kennt, að þegar mestu breytinga viðbrigði eru frá, þá velcur þessi aðferð enga óþægilega hugsun á neinn hátt, en er að öllu leyti hreinni og fcgurri og samboðnari siðuðum og skyn- semi gæddum verum, er það sem nú tíðk- ast, auk þess sem girt er fyrir alla hættu. Allstaðar þar sem líkbrensla er kom- in á fót, er hún einstöku manna verk og landstjórnir og yflrvöld hafa víðast látið hana fara leiðar sinnar án þess að hlutast til um það mál. Víðast heflr hún komizt svo á, að menn hafa gengið í félög og aflað sér ofna, og svo brent bæði lík félagsmanna og annara, sem hafa ráðstafað útför sinni á þann liátt. Það hafa þó sumstaðar risið upp einstakir menn á móti því og helzt viljað láta brenna öll slík félög lifandi í sínum eigin ofnum, en lögin hafa eigi fund ist til að dæma þó eftir, því að þau banna hvergi að mannlegur líkami sé gerður að dufti á þann hátt, og þessir menn hafa því neyðzt til að horfa á að menn fengu leyfi til að ráðstafá líkama sínum andvana, og eins og félögin hafa breiðzt út óðfluga og ofnum heflr fjölgað að því skapi. Slík fé- lög eru nú í flestum löndum norðurálfunn- ar og eins hér í Vesturheimi. I Italíu, þar sem líltbrenslan heflr fengið beztar móttökur, eru yflr 20slík félög, og á 9 síð- ustu árunum hafa þar verið brend 445 lík. Auk þess eru samskonar félög bæði á Þjóð- verjalandi, Frakklandi, Englandi, Sviss- aralandi, Austurríki, Ilollandi, Belgíu, Svíþjóð, Danmörk og víða hér í Vestur- heimi. Það er mjög erfltt að gera lesendunum skiljanlegt, hvernig brensla verður í þess- um ofnum. Til þess þarf helzt mynd, sem nú er eigi fyrir hendi; auk þess eru allir ofnarnir eigi eins, og kostnaðurinn misjafn; í sumum kostar það eigi meira en um 10 krónur, en í sumum er það dýrara. Dr. med. Levison, danskur læknir, lýsir í einu riti sínu líkb’rensluofni, og skal hér setja ágrip af því, sem þar segir. Sjálfur ofninn er eins og stórt her- bergi, 6—7 álnir í hvert horn og að hæð á borð við það. Því er aftur skift í sundur í miðju frá gólfi til lofts og hlaðin úr tíg- ulsteinum í annan endann holóttur stöp- ull, svo loginn geti leikið um hann á alla vegu sem hægast og hitað hann sem mest og fljótast. Hinum endanum er og skif't svo, að loft úr járngrindum er sett í hann í miðja veggi í gólfið, má og vera hærra í þeim endanum svo að rúmið fyrir ofan og neðan grindaloftið verði eigi nema svo sem tveim álnum hærri eða þar á við. Ofnin- um fylgir sérstök vél, þar sem kveikjulofti er náð úr kolum, mó eða þesskonar elds- neyti, og svo er kveikjuloftið leitt um járn pípu inn í þann enda ofnsins neðanverðan, sem steinstöpullinn er í, svo er látið vera opið lítið gat við hlið járnpípunnar og þar streymir loftið eftir þörfum. Siðan er

x

Öldin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.