Öldin - 01.02.1894, Page 7

Öldin - 01.02.1894, Page 7
ÖLDIN. 23 MAURAR eftir F. A. Pouchet. “L’ univers” Þegar vér rannsökum sögu skorkvik- indanna, vekr það sórstaklega undrun vora, að svo ákafar ástríður eins og þau lýsa skuli geta búið í svo veikburða skepn- um; hatr er lífshvöt þeirra; óseðjandi rán- girni lífs-leiðtogi þeirra. Til að friða Þenna eðlis-ofsa heyja þau blóðuga bar- daga, og gjerast reglulegir land-víkingar. Maðrinn fer í hernað með heljarmikl- ar lestir burðar- og akdýra; skorkvikindin fara sínar herferðir alslypp. Sex þúsund fíla setti Porus konungr til að veita Alex- andri viðnám á sigrför lians; en enginn þeirra hreyfði sig til að berjast fyrr enn æfðir filarekar settu þá af stað; enn maur- ar, látnir alvcg einir um sína reiðu, heygja stórkostlega bardaga'og, hvað ó- trúlegt sem mönnum kann að virðast það, sýna þeir í þessum bardögum mikla kunn- áttu í herskipunarlist. Hjá þessari tegund skorkvikinda ber mjög svo mikið á þeirri ástríðu, að afla sér þræla mcð ránum. Þau geta ekki án ver- verið nákvæmra og eftirlitssamra þjóna; enn til að útvega sér þá fara þessir maur- ar að öldungis eins og fantalegir þræla- ræningjar. Menn höfðu lengi tekið eftir því, að vissar maurategundir ferðuðust hingað og þangað með aðra maura í kjaptinum, cnn enginn gat í ráðið hverju þetta mundí gegna. Það var Pétr Huber, sem framm úr þessum leyndardóm fékk ráðið. Þessi ferðalög mauranna eru ekki annað en her- ferðir, sem þeir leggja í í þjónustu og þarfir mauraríkis síns — þau eru þræla- leiðangrar þar er skriðið er til skarar með líkamlegu ofrefli. Þessir smáræningja herskarar fara ekki á markaði til að selja bándingja sína á uppboði; þeir eru sællcer- ar og letimagar heima fyrir, og nota band- ingjana til að þræla 1 allri heimilis vinnu fyrir sig svo að þeir sjálflr þurfl til einskis að hreyfa sig. Andvegishölda allra þessara djörfu þræla-þjófa meðal maura má telja rauða maurinn, sem náttúrufræðingar nefna Amazon. Að leiðangrum hans hans hafa náttúrufræðingar vorra daga liugað vand- legast. Herferðir hans eru svo tíðar, að gætinn maðr getr séð þær á hverjum degi alt sumarið, þegar vel viðrar. Huber segir að erindi allra leiðangra þessa her- skáa kyns só ávalt éitt og hið sama : Það “nefnilega að ræna öðrum maurum með- an þeir”, eins og hann kemst að orði, “eru enn í reifum”, út úr höndunum á starf- sömu fólki og gjöra þá áð réttlausum þrælum, er vinna skuli öll verlc fyrir hinn “Rauða”. Þegar Rauðr leggr í hcrnað til að ræna þrælum, þá fer hann að engu ótt, en skipulega mjög og með fastri reglu. Ó- vininn sem hann kýs sér er venjuleg- ast námumaurinn (svo nefndr af þeim göngum sem hann grefr sér í jörð fyrir híbýli). Leiðangrinn hefst ávalt, þegar að líðr nóttu. Þegar víkingar eru komnir út, skipa þeir liði sínu í þéttar fylkingar. Þegar það er búið, leggr herirín af stað í átt maurahreíðrs þess, sem þegar hefir verið ráðið að ræna skuli. Þegar nú þeir sem þar eru fyrir verða þess varir, að ó- friðr fer að þeim, hlaða þeir upp í allar dyr og smugur, hvar sem við verðr kom- ið. Enn þetta kemr fyrir ekki. Vík- ingar róta öllu niðr, vaða inn í herbergin og alla leið inst inn í mauraborgina og skima um í hverj um krók og kima til að velja sér bandingja sína, maura-ungana á yrmlings og hálfþroska skeiði (larvae, nymphæ). Vöxnu maurunum, sem við- nám veita, velta víkingar um koll og leika ómjúkt og drepa hrönnum saman; enn ekki gjöra þeir þá að bandingjum, vegna þess, auðsælega, að þeir eru of gamlir til að verða fyrirhafnar lltið tamd-

x

Öldin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.