Öldin - 01.02.1894, Page 13

Öldin - 01.02.1894, Page 13
ÖLDIN. 29 Tiana áfram, cr skynsemi og- framsóknar- hvöt hins mentaða heims, og hin óslökkv- andi þrá liinna mörgu millíóna manna cft- ir æðra, hreinna og sannara lifi. En nú verð ég að drepa á nokkrar lín- ur í riti þessu, sem koma í mótsögn við hinn frjálslega anda þess, er sýna hugsun- arhátt óvinveittan allri sameiningu hinna siðferðislegu afia, hugsunarhátt, sem á öll- um liðnum tímum hefir valdið mönnum ó- segjanlegrar bölvunar. Hugsunarháttur sá takmarkar starfsvið mannlegs kærleika og réttlætis, og með útilokunarhugmynd sinni vekur hann beiskju og grcmju, þar sem óbundinn kærleiki ætti að ríkja, ef hinn nýi dagur ætti að renna upp á kom- andi tímum. bað er kreddu-andinn cða kreddu-hugsunarhátturinn, og ættu menn ekki að þola, að hann dræpi niður vonir manna. Hvenær sem hann kemur í ljós, þá er það skylda allra þeirra, sem mann- kynið elska, að standa fastir fyrir og sporna móti þessum kredduhugsunum undir eins og á þeim bólar, því þær hafa ávalt eyðileggjandi áhrif. Af framansögðu sárnar mér að finna í riti þessu aðra eins kafla og þessa : “Hinn kreddulausi (sá sem liefir enga sérstaka trúarjátning) kristni siðavandlæt- ari og hinn Kristlausi játningamaður (sá sem játar einhverja trú, en neitar guðdómi Krists), fara báðir á mis við hina lífkröft- ugu og sáluhjálplegu trú, sem er lífið og sálin í kristninni. Vér höfum ekkert vald eða leyfi til þess, að hlýða hinni gullvægu reglu, (bi’eyttu svo við aðra scm þú vilt að aðrir breyti við þig), eða að halda nokkur hennar boð, nema að vér fáum þetta leyfi með því að meðtaka lífið í Kristi.” Hér sjáum vér hugsunarhátt, sem er alveg fjarstæður liugsun þeirri, sem geng- ur í gegn um ritið. Það er kreddu-andihn borinn af hinum gamla tíma, og ég get naumast trúað því, að hann komi frá hjarta höfundarins, því að þetta rit, “The New Redemption,” virðist halda fram trú þeirri, sem bygð er á verkum, en ekki neinni kreddu-guðfræði. — Vér megum aldrei gleyma því, að hin mesta hætta, sem “spá- menn vorra tíma” geta hrasað út í, er þröngsýni og ófrjálslyndi. Margir hinir göfugustu endurbótamenn heimsins hafa stundum látið rangar hugmyndir um sann- leikann blinda sér svo sjónir, að þeir hafa ekki séð réttindi þeirra, sem hafa elskað mannkynið með fult svo miklum kærleilca, sem þeir, en hafa haft aðrar hugmyndir um hið sanna og rétta, en endurbótmenn- irnir sjálfir. í hinni stórkostlcgu orustu, þar sem barist verður um framkvæmd bróðurlegs kærleika, sem menn öldum sam- an hcfir dreymt um, mega menn alvarlega vara sig á því, að setja upp nokkra kreddu- guðfræði. Að gcra vilja fólksins verður að vera hin einasta krafa. Ilvað sem þar er framyíir cr vont, og eyðileggjandi fyrir máfefni það, sem fyrir er barist. Það dugir því ekki að segja: “vér höfum ekkert vald til að fylgja hinni ‘gullnu reglu’ eða halda nokkur boð henn- ar, nema vér fáum það vald í gegn um samfélagið við Krist.” Því að það er á- reiðanlegur sannleiki, að um allar liðnar aldir hafa menn bæði kent og lifað eftir þessari “gullnu reglu.” Confucius kcndi þessi háloitu siðfræði mörgumöldum á und- an Kristi, og varði hinu hreina lífl slnu til þess að menta þjóð sína með góðu dæmi og göfugum kenningum. Hinn heiðni heim- spekingur Epictetus kendi liina göfugustu siðfræði og varði hinu langa, hreina lífi sínu til þess að lyfta þjóð sinni hátt mcð göfugum kenningum. Ein af kenningum þessa hins mikla stoiska lieimspekings, er þessi: “Sem reglu, til að breyta eftir, skaltu taka þör hugsjón eina, og reyna að ná lienni. Vertu helst þögull, en ef þú ræðir við menn, þá talaðu ekki urn rusta- leg eða ómerkileg málefni, svo sem hunda, hesta, kapphlaup eða veðmála-bardaga. Förðastu rustalegar skemtanir, allan ósóma, alla uppgerðarhræsni, strákskap og í’óstur,

x

Öldin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.