Öldin - 01.02.1894, Side 15

Öldin - 01.02.1894, Side 15
ÖLDIN. 31 eða önnur trúarjátning væri gerð að skil- yrði, því sumir eru gyðingar, sumir eru agnostics, sumir em guðspekismenn. En þeir eru allir eins hrcinir og einlægir í trú sinni eins og höfundurinn að “The New Redemption,” og allir brenna þeir af hei- ■ lögum áliuga að efla og styrkja bróður- bandið manna á millum. Um eitt verða endurbótamenn um lieim allan að vera sáttir, ef menn eiga að geta átt von á að steypa auðvaldinu, en setja hið sanna lýð- veldi í staðinn, en það er, að láta engan mismun í trúarskoðunum skilja þá, sem berjast fyrir réttlætinu og velliðan mann- kynsins. Auðvalds-úlfaldinn má ckki reka snoppuna inn í tjald hins nýja lýð- veldis. Hver og einn, hvort sem hann er prótestanti, kaþólskur, gyðingur, Buddh- isti cða agnostic — ég hirði ekkert livcrju þeir trúa — ættu að vera velkomnir liðs- menn í liinni miklu lireyfingu, að efla bróð- urkærleikann manna á mcðal og stofna liið sanna guðsríki á jörðu, með því að innleiða réttlætið, kærleikann og írelsið. Það gctur hver maður séð, að væri hugsunarliáttur sá, sem hér er lýst, ríkjandi manna á meðal, mundi minna vera af hatri og deilum og hræsni og lygi og ómensku. Það væri meira starfað til velferðar mann- kyninu, og störfin yrðu happadrýgri fyrir land og lýð, en nú á sér stað. DJARFUR ÞJÓFUR. Hinn nafnkunni fregnriti Julian Ralph segir eftirfylgjandi sögu í unglingablaðinu “Harpers Young People,’- en túlkur Svart- fætlinga (Blackfeet) Indíána í Alberta, Canada, sagði honum: “Það eru ekki mörg ár síðan — það var eftir að núverandi höfðingi flokksins, Three Bulls að nafni, fæddist — að Svart- fætlinga Indíánar áttu hest sem átti engan sinn jafna, svo ferðmikill var hann. llann var hrafnsvartur á lit og gljáði skrokkurinn eins og atlasilki, en takmarkalaust fjör titr- aðí í hverri taug. Ýmsir í fiokki Svartfell- inga sjálfra áttu góða hesta, en enginn þeirra komst neitt nærri Brún á sprettin- um. Sögurnar um flýtir hans flugu eins og hvalsaga um allar Indíána-bygðir nær- lendis, og allir helztu flokkar Indíána í ná- grenninu (Crows, Bloods, Sarcis, Stonies og Gros Ventres) höfðu oftar en einu sinni leitt fram sína beztu gæðinga á vcðreiða- fundum til að þrcyta við Brún, en alt til einskis. Hann fór laugt fram úr þeim öll- um, hvar og hvenær sem reynt var og unnu Svartfætlingar bæði fé og frægð í hverri atrennu — því Indíánar eru fullir jafningjar hinna hvítu bræðra sinna í því, að veðja öllu, sem þeir geta við sig losað, við öll tækifæri. Þeir veðjuðu aleigu sinni á Brún livað eftir annað, og í hvert skifti tvöfaldaði hann þannig eigur þeirra. Rúm- fatnaður, dýrafeldir, byssur, hestar og í einu orði alt, sem Indíánar gátu til tínt barst í haugum til búða Svartfætlinga á eft- ir hverri veðreið. Það var því ekki neitt undarlegt, þótt þeir væru stoltir af Brún sín- um, enda voru þeir það í fullkomnasta, stýl. Indíánar allir eru þjófgefnir. Þeirra skoðun í því efni er yfir höfuð að tala sú, að það sé rangt að stela frá eigin flokks- manni, en rétt að stela frá óviðkomandi mönnum, og þá að sjálfsögðu frá óvina- floklcum; galdurinn sé að eins að komast undan með það sem stolið er. Allir ná- granna-flokkar Indíána öfunduðu Svartfætl- inga af Brún, og margar tilraunir gerðu hugrakkir “stríðsmenn” (warriors) úr ýms- um flokkum Indíána að stela honum. Rak svo langt, að Svartfætlingar óttuðust og gerðu ráðstafanir til að verja Brún. Varð það úr, að bygt var stórt og sérlega vand- að byrgi úr vísundafeldum mitt á milli búð- anna, og þar var Brúnn bundinn við hæl á hverri nóttu, en tveir valdir stríðsmenn og vel vopnaðir stóðu vörð í byrginu, þ. e., þeir sváfu sinn hvoru megin við gæðinginn eftir að hafa fjötrað saman dyrnar með reipum svo illmögulegt var að komast inn nema ristar væru húðirnar. Að öllu þessu loknu þóttust Svartfætlingar öraggir, og ldógu dátt að ímynduðum tilraunum Gros Ventre eða Stony-flækinga að stela Brún hinum mikla og fagra. En það er oft, að það kemur fyrir scm síst þykir líklegt. Það er eins og gamli málshátturinn segir, að enginn er í eins mikilli hættu og sá, sem ætlar sig óhultan. Einmitt þegar Svartfætlingar vora að guma af vígi Brúns, sín á millum, var ungur hug- djarfur “stríðsmaður” Hrefningja- (Crow) Indíána að brjóta heilann um það, hvemig hann gæti stolið Brún og þannig áunnið sér ódauðlegan heiður. Hann hafði kvöld eft- ir kvöld hætt lífi sínu með því að skríða í grasinu fast að búðum Svartfætlinga, svo nærri, að ekki mátti feti muna til þess, að

x

Öldin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.