Öldin - 01.06.1895, Blaðsíða 8

Öldin - 01.06.1895, Blaðsíða 8
88 ÖLDIN. Hvar leita ætti’ sinni fornöld frá Aö fólgnura auð, er þjóðir stóðu’ í vanda, Það aleitt kunni’ að þýða gátu þá ; Því það var tunga gömlu Nurðurlaiula. Að lokum tók það langvint smánargjald, Er leitt af slægð og fávizkunni sinni Það kaus að ganga konungsstjórn á vald, Og krafta þess er sagt hún brendi inni. En ég trúi ekki’ að feðra grund Sé eydd að krafti.— Bráðum við hann raknar! I þjóð og hjörgum blundar hann um stund; Sem Brynhildur hann hertýgjaður vaknar. Því saga’ er lesin enn á bóndans bæ, Og bragir sungnir, oft með fögrum hljómi, Þó skorti kaimske lcunnuglegan blœ, Og kveðið sé í annarlegum rómi. Það færir vor — þó beri’ ei allan brag Af blómum þeim, sem að eins spretta’ í móum; Það fyllir sveit með glaum og gleði-lag, Þó gleymi’ að holtin eru’ ei þakin skógum. Og loks, er vaknar landsms eigin sdl Og lítur eins og vorsól yfir dalinn, Hún fær í aríieifð öllum dýrra mál Og auð í huga sögu-þjóðar falinn! Og þá sér fólk að sögu einnig á Inn ungi smali, er villist fram á heiði Og þreytir kraft við kulda’ og vetrar-snjá, Uns klaka-skaflinn verður honum leiði. Og þá með vissu vitað eins það fær, Þó vanta kunni auð og jarðveg frjóvan: Ið bezta, sem á grundu hverri grær, Er göfugþjóð með andans fjársjóð nógan ! Og falin eru’ í landsins svellga svörð Þau sönghljóð djúp sem náð enn hefur enginn. — En þá mun verða glatt við fjall og' fjörð Er fæst sú hönd, cr lcann að s'penna strenginn. Mimnmælasögur Indíána. Flóðið mikla o. fl. Eftir F. .1 ncobsou. (Lauzleg þýðiwj). Niðurlag. Þannig hélt töframaður þcssi hinn mikli áfram, með konu sinni. Þau fóru stað úr stað, týndu saman leifar mannanna og skipuðu beinum í iéttar skorður og vöktu þá svo til lífsins. Þannig bygðist jörðin á ný. A meðan hinn góði andi vann að þessu, var hrafninn óþarfa gestur í ná- grenninu. Hann sveimaði yfir beinaköst- unum, hjó í þau og bar enda bein og bein á burtu. Hafði þá andinn ekki önnur ráð cn að tálga spítu til þess hún íélli í farið og 'láta hana síðan gilda sem bein. Eðli- leg afieiðing af þessu var sú, að margír kvörtuðu um gigt og stirðleika um liða- mótin, þegar þeir vöknuðu. En svo mátti nú færa það til sem sennilega ástæðu, að beinin höfðu svo lengi legið í vatni. Allír þessir upprisnu menn álitu að þcir hcfðu bara lcgið og soíið sætt og lengi, og höfðu ekki minstu hugmynd um hvað gerst hafði Eftir að hafa þannig endurskapað mann- kynið, kallaði þessi skapandi andi fólkið alt saman á fund og talaði þannig við það: “Fyrir stuttri stundu kom íióð mikið yfir jörðina svo að líf alt týndist. Sama skelfingin getur dunið á síðarmeir, eftir að ég, sem nú hefi lokið verki mínu ofanjarð- ar, liverf heim aftur í djúpið undjr jörð- unni, studdur við töfrasprotann, sem nú hvílir á brjósti mínu. Þegai' jörðin hrist- ist, þá er það ég sem teigi útlimi hennar, þreyttur og þjakaður undir hennar þungu byrði. Það er þá yðar skylda að fram- bjóða sæmiiegt offur og á þann hátt létta undir með mér, jafnf'ramt því, sem þér með því tryggið sjálfum yður vinf'engi mitt og góðsemi, og undir því er komin öll yðar ánægja og friður. Þér skuluð steikja viit-

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.