Öldin - 01.06.1895, Blaðsíða 9

Öldin - 01.06.1895, Blaðsíða 9
ÖLDIN. 89 ar endur, þér skuluð samansafna fjöðrum þeirra og fiðri, þér skuluð fylla stóra sjó- skel með feiti og að því búnu kasta öllu þessu & logandi fórnareld.” Margt fleira sagði andinn áður en hann hætti að tala yfir mannsöfnuðinum, og endaði ræðuna með heitingum og áskor- unum á víxl. Svo hvarf hann frá þeim og hélt til undirheima og þaðan stýrir hann gangi hlutanna og verndar jörðina frá eyði- leggingu.* Á meðal hinna mörgu sem andinn hafði vakið upp frá dauðum— heldur þjóð- sagan áfram — var stúlka, sem fyrir flóðið, alt frá hernsku-árum, haf'ði verið veik, og hún var það enn. Enginn læknir Indíána eða töframaður gat fundið henni meinabót, eðajafnvel linað þjáningar hennar. Yegna þessa ólæknandi sjúkdóms vildi enginn maður taka hana fyrir konu, en meðal Haida-Indíána, —- eins og annars meðal flestra villimanna-flokka — er það álitin smán mikil að vera ógift. Hin sjúka stúlka stóðst ekki skens og stríð félagsbræðra og systra, tók sig því út úr hópnum og hélt út í mirkviðinn, burt frá mannabygðum og bar aleigu sína með sér, sem ekki var fyr- irferðarmeiri en svo, að hún vafði hana innan í eina mottu úr hálmi. Niður við sjó á vesturströnd eyjarinnar bygði hún sér byrgi úr trjágreinum og birki-berki og afl- aði sér til íæðis róta nokkurra, sem enn eru brúliaðar til manneldis. Einu sinni þegar liún var að grafa eftir þessum rótum kom hún niður á rót eina einkennilega, sem mjög er sjaldgæf á Queen Charlotte eyjum, og át hún nokkuð at’ henni. Það er trú Indíána, að þessari rótartegund fylgi sá töfrakraftur, að sö hún étin ný og fersk *) Þegar jarðskjálftai' ganga, hafa Indí- ánar þessir þann sið enn, að kynda fórnareld og kasta á hann fiðri og feiti, sem hór segir, og Þylja svo á meðan á þeirri athöfn stendur : l‘Ha, ha, ha, ha. Þú ert herra jarðarinnar og hér færi ég þór fórn.” Þeir trúa því greini- lega, aö h irði þeir ekki um að frambera fórn- ma farist jörðin í hristingnum. úr jörðunni, uppfylli hún hverja þá ósk sem sá eða sú ber fram, sem fann hana og neytti hennar. Daginn eftir, þegar ein- setustúlkan var orðin leið á að grafa eftir rótum, gekk hún niður í íjöru og fór að tína upp sjóskeljar. Að nokkrum tíma liðnum hafði hún fylt körfu sina og snéri heimleiðis. Hún var komin upp að skóg- arjaðrinum þegar hún heyrði ungbarns- raust niður í flæðarmáli og virtist henni kallað á sig og hún beðin að koma. Hún snéri sér við, horfði niður um fjöruna, en sá ekki neitt. Næsta dag aftur heyrði hún sömu raustina og enn þriðja daginn, en aldiæi gat hún séð neitt óvanalegt í fjör- unni. Henni féll þctta illa, en fjórða dtvg- inn, þegar liún var komin upp undir skóg- inn, heyi’ði hún hrópið enn og enn greini- legar en áður. Enn snéri hún við og lit- aðist um, í það skiftið með ákjósanlegasta árangri. Hún kom auga á skel í sandin- um sem hljóðið kom frá. Nærri frá sér nunún af fögnuði tók liún skelina, bar hana heim í hreisi sitt og vaktaði liana eins og sjáaldur auga síns. Á fjói'ða degi opnaðist skelin og gægðist út höfuð á svo ofurlitlum og undurfallegum dreng. llún réði sér naumast fyrir glcði og þá því síð- ur á fjórða degi þar frá, því þá skreið litli maðurinn alveg úr skel sinni. Ilún helg- aði honum alla sina ást og annaðist um hann eins og árvakrasta og ástríkasta móð- ir. Drengurinn óx og dafnaði og fékk málið fyrri miklu en börn venjulega gora. Hann var heilsugóður og stór og sterkur ekki síður en bi'áðþroska, og var því sann- arleg't eftirlæti fósturmóður sinnar. Einu sinni, þegar sveinninn var að leika sér úti fyrir húsinu, sá hann fugl einn lítinn, sem hann vildi handsama og sem hann eltist lengi við, en til einskis. Hann náði honum ckki og kvartaði yfir óhepni sinni við fóstru sina. Bað hann hana þá að gcfa sér boga og örfar og bjó hún hon um til skotfæri þau úr tré, en þau uppfylíu ekki kröfur hans og gerðist hann ekki á-

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.