Öldin - 01.01.1896, Page 21

Öldin - 01.01.1896, Page 21
ÖLDIN. 21 Skáldsagnagerð / Islendinga. íslandsvinurinn prófessor Carl Kuch- ler í Leipzig þreytist ekki gott að gera fyr- ir Islendinga. Hann lætur fá tækifæri ó- notuð til að segja eitthvað Islandi til gagns. I háskólamálið hefir hann tekið betur en flestir aðrir í útlöndum og gert alvarlegar tilraunir að vekja áhuga fyrir því málefni í þýzkum löndum og safna fé til styrktar þvf fyrirtæki. I haust er leið reit hann markverða grein um hafþráðarlagning til Islands og tilraunir allar sem gerðar hafa verið til þess (í vikuritinu “DieKritik,” Berlin 2. Nóv. 1895). Verður sú ritgerð, og er máske nú þegar orðin, gagnleg því fyrirtæki, sem svo er áríðandi að hafl fram- gang, viðskiftanna og veðurfræðinnar vegna. Og nú er próf. Kuehler að vinna það, sem mestu varðar fyrir íslenzkar bók- mentir. Hann er nú að láta prenta (hjá Ilermann Ilaacke í Leipzig) bók sem höndl- ár um söguskáldskap íslendinga frá 1800 til 1890. Er það fyrsti parturinn af rit- gerðum hans um íslenzkar bókmentir. Síð- ar er von á bók hans með dómi um íslenzka Ijóðagerð m. m. Það er óhætt að segja að þessi bók hans, sem nú er að koma út (verður alprentuð snemma í Apríl) fær mikla útbreiðslu, og það enda í Ameríku. ísland á einn ötulan vin í Bandarikjunum, bankastjóra Geo. Wilson í Lexington, Mis- souri, og liann heflr ásctt sér að gera þessa bók Kuchlcrs kunnuga alþýðu. Það er lmns áliugamál, að auka þekkingu á íslenzk- um bókmentum, enda er hann að gera öfl- uga tilraun til að fá íslenzku viðtekna sem námsgrein í einum stóra, viðurkenda há- skólanum í Bandaríkjunum. Af þessu öllu drögum vér þá ályktun, að með þessari bók sinni vinni Mag. Phil. Kuchler íslenzk- um bókmentum meira gagn meðal erlendra þjóða, en nokkur einn maður hefir áður gert. Að minsta kosti er óhætt að segja að þær verða betur auglýstar nú, en nokkru sinni áður, og er þá ekki ólíklegt að kvikni forvitni hjá mörgum til að kynnast þeim betur. Höfundurinn hefir verið svo góður að senda oss fyrstu örkina af bók sinni og setjum vér hér aðalatriðin úr innihaldinu í innganginum, eða formála bókarinnar. Þessi sami inngangur er nú í millitíðinni útkominn í vikuritinu “Die Zukunft” (Framtíðin) í Berlin. Eftirfylgjandi er þá inngangur bókarinnar í lauslegri þýðingu. Inngangur. Hinar elztu bókmentir Islands eru Ijðð fornskáldanna frá byrjun miðrar 12. aldar. Gengu Ijóð þau mann frá manni, svo að einn nam at öðrum, og höfðu mörg af þeim elztu verið til frá landnámstíð. Eitthvað 50 kvæði eða brot af kvæðum þessurn getum vér fundið í Sæmundar- Eddu. Þegar farið var að nota latneska stafa- gerð í stað rúnanna gömlu, lók bókagerð stórum að aukast. Auk skáldskapar fóru menn að rita sögur, um málfræði, um landafræði, æfisögur, um lög, og er margt af því allmikil rit. En mestu og víðfræg- ustu ritin eru þó Snorra Edda, Heiins- kringla og fornmannasögurnar. Seinna voru þjóðsögurnar færðar í let- ui'. Menn fóru að þýða úr öðrum málum og rita heilmikið af' guðsorðabókum, yrkja sálma og því unf líkt og á ekki lengri tíma en tveim öldum, til miðju 14. aldar, blómg- uðust hjá þessari fámennu þjóð bókmentir, með svo miklum listaverkum, að margt af þeim getur talist með hinuin stærstu og meistaralegustu og fullkomnustu bókment- um allra þjóða á öllum tímum. En frá 1400, eða þar um, kemur ann- ar tími, svefn og doði eftir fjörið og fram- kvæmdina. Þá er blómi hinna ísleiizku bókmenta liðinn. Hann var mestur með- an landið var frjálst. Þegar landið kom

x

Öldin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.