Öldin - 01.01.1896, Blaðsíða 23

Öldin - 01.01.1896, Blaðsíða 23
ÖLDIN. 23 ekki auð sinn, hvar sem hann gat komið þjóð sinni að gagni. Óþreytandi starfs- maður var hanu, skynsemistrúarmaður hinn rammasti, en enginn átakanlegur föð- urlandsvinur. MálícJ 4 hinum mörgu rit- um hans er hið aumasta. Þð heíir hann unnið þjóð sinni mikið og varanlegt gagn, og m4 það aldrei gieymast, að hann var oinhver hinn fyrsti, sem gekk 4 móti hj4* trú og hindurvitnum, sérstaklega hamraði hann oft og einatt 4 djöflatrúnni og vildi uppræta hana. (Aunað og þriðja hefti mun einkum tala um verk þessara manna.) I byrjun 19. aldar tóku þjóðernis- hreyfingar að vakna um þvera og endi- langa Norðurálfu. Þjóðirnar hrópuðu um eining og frelsi, um betri stjórnarskipun og hagkvæmari lög og bergmálaði óp það land úr landi, mann frá manni. A Norðurlöndum vaknaði og tilfinn- ing þessi og var skáldið Öhlenschlager þar fremstur í broddi. A þeim timum sóktu margir Islendingar nám sitt til Kaupmannahafnar og er þangað kom urðu þeir hrifnir af þessum andlega straumi og gegnum þá fluttist hreyfing þessi til Is- iands. Með því að stofna félög og með ritum sínum, er mestmegnis voru gefin út í Kaupmannahöfn, leituðust þeir við að bæta hag þjóðar sinnar og í rauninni voru það skáldhetjurnar miklu,er hreyfing þessi vakti, sem breyttu stefnu menningar og skáldskapar landa sinna, rnynduðu alger- lega nýjan tíma í sögu landsins og nýtt þjóðlíf. Breytingin 4 Islandi var raunar ekki svohröð sem sunnará Norðurlöndum, en hún var því vissari og áreiðanlegri. Þessir fjórir forkólfar upplýsingar- innar voru að nokkru leiti í brennípunkti hreyfingarinnar og voru því nauðsynlega knúðir áfram af henni. En auk þeirra störfuðu og á þessum tíma mörg skáld önnur, einkum rímna og sálmaskáld. En með þeim má þó teljaað Ijúki upplýsingar- tíma landsins og nálægt árinu 1830 hlaut nýtt tímabii að hefjast. En áður en farið er að lýsa þessurn nýja tíma, þarf þó að geta mans eins, sem raunar var ekki íslendingur, en starfaði þó sérstaklega fyrir tungu landsins og verðskuldar hið mesta lof af öllum sönnum Islendingum. Það er hinn nafnkunni Rasmus Kristjan Rask. Þegar á skóla- aldri tók Raslc að fást við íslenzka tungu, bjó sér sjálfur til orðbók og málfræði, er liann seinna lagði til grundvallar fyrir líkum störfum. Svo tók hann að lesa íslenzka tungu með tilsögn hinna fróðustu íslendinga, er voru honum samtíða á “Regensen” og nam hann þá málið svo vel að hann varð leikinn í því, bæði að tala það og rita. Árið 1813 fór hann til ís- lands, og dvaldi þar í þrjú ár. Þar réði hann af að stofna íslenzkt ‘bókmentafélag’ og starfaði með hinum beztu mönnum að endurfæðingu íslenzkrar tungu. Rask tók saman tvær íslenzkar lcstrarbækur; rétt- ritun hans var alment viðtekin; hann myndaði mikinn fjölda nýrra orða og kastaði burtu mörgu orðskrípinu, er flutt var inn úr öðrum tungum. Hann gaf nöfn flestum málfræðislegum hugmyndum og samdi rit mörg á íslenzku í óbundnum stíl og orkti jafnvel nokkur kvæði. En aðal-verk hans var þó að stofna „Ilið íslenska bóltmentafjélag”, sem varð svo áhrifamikið og afleiðingaríkt fyrir íslenzka tungu, bókmentir og vísindi, sem hefir lialdið og heldur enn uppi andlegu lífi þjóðarinnar. Er það enn í fullum blóma og er í tveim deildum, 'nnur í Kaup- mannahöfn, en önnur í Reykjavík. Með þessum forkólfum, sem nú hefir getið verið, hófust bókmentir Islendinga upp til þroska og ágætis. Svo kom júlí- byltingin 1830 og vakti menn upp af doðanum og svefninum og frá þeim tíma getum vér því með góðum ástæðum talað um Islands nýrri tíma í bókmenta- legu tilliti.

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.