Öldin - 01.01.1896, Blaðsíða 22

Öldin - 01.01.1896, Blaðsíða 22
22 ÖLDIN. undir Noregskonung, tók þeim að hrörna, og þegar ríkin (Noregur og Danmörk) sam- einuðust við Kalmarfriðinn, þá lögðustþær alveg í dá. Tóku þá við rímurnar, þurrir annálar og nokkrar ferðasögur. Það er fyrst eftir miðja 16. öld, að menn fara að sjá nokkurn vott þess, að farið sé að rofa til. Þá koma fram sálmaskáld, rit- höfundar kyrkjusagna, rímnaskáld, lyrisk skáld, fornfræðingar, lögmenn og sagnfræð- ingar og meðal þeirra nokkrir, sem orð hefir horist af út fyrir þcirra eigin land. Einkum er það 17. og 18. öldin, sem kall- að er “lærðramanna tímabil” (Gelehrte Zeitalter).. Þó er það fyrst við lok 18. aldar, að fram koma þeir andans menn, sem eru for- boði nýrrar aldar í menningarlegu tilliti. Þcir beina hinu andlega lífi á nýjar brautir er það geti þroskast og vaxið á. Þeir búa í haginn fyrir komandi frægð. Fremur öllu öðru þurftu þeir að hreinsa og endur- bæta móðurmálið, sem um langa hríð liafði orðið fyrir útiendum áhrifum og var orðið spilt og bjagað. Og þegar er farið var að laga það, tók hin þjóðlega sjálfsvitund að vakna; tilfinningin fyrir sjálfum þeim reis þá úr hinu ianga dái, er hún hafði iegið í. 'Eggert Olafsson er fyrstur merkis- beri hinna. nýrri tíma. Var hann manna lærðastur sinnar tiðar, skáld, lieimspeking- ur, náttúrufræðingur, sagnfræðingur og málfræðingur. Maður sem hægt erað segja um, að honum hafi verið flest til lista lagt, og jafnvel verið langt á unjjan tíma sínum. Kunnastur er hann fyrir náttúrufræðisrit sín um Island. En auk þessa var hann skáld mikið. Það sem hann er þó merk. astur fyrir er það, að hann beindi hinum íslenzka skáldskap á nýja braut. I skáld- skap sínum er sem hann líti yfir alt og sjá- ist hvergi yfir. Ilugmyndir hans og skoð- anir hans á náttúrunni eru dásamlega fall- egar. Hann lýsir náttúrunni eins og hún í raun og veru er. Hann býr til liti sína og myndir, ekki úr fylgsnum ímyndunarafis- ins, heldur tekur hann þáúrlífinu, úr nátt- úrunni sjálfri. Mál hans er mjög gott og liefir hann jafnvel ritað ritgerðir nokkrar um íslenzka tungu. En þó að Eggert Olafsson væri for- boði hins sérstaka andlega lífs Islendinga á nýrri tímum, þá voru það þó þeir Jón Þor- láksson (1744—1849), Sigurdur Péturs- son (1759—1827), Benedikt Jónsson Gröndal (1762—1825) og Magnós Ólafs- son Stephensen (1762—1833), er leituðu fegurðar skáldskaparins í því sem var náttúrlegt, einfalt og blátt áfram. Þeir gátu því nálgast alþýðuna, lrætt hana og upplýst, og orðið henni að gagni, og með þeim má segja að fyllilega hafi roðað fyrir hinum nýrri tímum. Hinn fyrsti þessara manna (J. Þ.) tók sér fyrir hendur að þýða úr dönsku, þýzku og ensku. Eru merkastar þýðingar hans af Klopstocks “Messias” og Miltons “Para- dísarmissir.” Það sem hann hefir frum- kvcðið er fagurt og náttúrlegt. Iláðkvæði hans eru bítandi hvöss. Einkennilegt er það um hann sem um sutna aðra, að hann alla æfi átti að berjast við fátækt og basl, og gat jafnve) ekki sjálfur keypt sér bæk- ur þær, er hann þýddi. Sigurður Pétuisson er einkum háð- skáld. Þegar liann var í Kaupmannahöfn gaf hann sig mikið að Norðmönnum og var i;íðum með Vessel. Auk þess að vera háðskáld, var hann og lyriskt skáhl, og er hið fyrsta sjónleikaskáld Islendinga. Hafa leikrit hans á sér einkennilegan íslenzkan blæ. — Benedikt Gröndal þýddi mestmegn- is iatncsk kvæði, og eru frumkvæði hans því fá, on fvrirtaks fögur. Loks er Magnús Stephensen. Er hann í rauninni ekkert skáld, en liann er merkis- beri upplýsingar og liggur mikið eftir liann af ritstörfum, bæði sem sagnaritara og rit- stjóra og svo hcfir hann ritað mikið til að fræða og menta þjóð sína. Það var hann sem árið 1794 stofnaði “Lærdómslistafé- lagið.” Hann vai ríkur maður og sparaði

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.