Kvennablaðið - 01.12.1898, Síða 5

Kvennablaðið - 01.12.1898, Síða 5
93 og búa til úr því eitthvað á tréð. Þaö glansar svo vel við ljósbirtuna. Laglagt er aS klippa út rósabekki eða blóra- bönd af pappír, helzt mislitum, vefja þá grein af grein og hengja þar á allra handa örsmátt, dót. Sé til mjög linur járnvír eSa látúnsvír er gott aS búa til úr honum langa króka og hengja með því dótiS á greinirnar. Smákök- ur er bezt að hengja eina sér, en ekki í pok_ um. Seinast eru kertin látin eitt á hverja grein, og væri bezt ab steypa þau í strokk að haustinu. Þau þurfa ekki stærri en manns- fingur, en auðvitað fer það eftir vild hvers eins. Þau má festa á greinirnar í kertapíp- ur úr þykkum pappír, sem eru límd á hverja grein, eða festa sjálft kertið á greinina. Þegar allir hafa skoðað tréS sem þeir vilja; taka allir höndum saman og ganga samstiga (í »takt«) kringum jólatréð og syngja einhvern fallegan jólasálm, t. d.: »Heims um ból«. Börnin, sem vön eru að fara að sofa snemma, fá nú aS vera með. Nú hvíla menn sig um stund; þá er lokið upp hurðinni og »jólasveinn« rekur inn höf- uSið og spyr, hvort börnin hafi veriS þæg í vetur. Fullorðna fólkið segir »já«. »Það er'gott«, segir hann, »við höfum þá komið á réttan bæ«. Svo hverfur hann snöggvast en kemur svo aftur með annan félaga og bera þeir eitt- hvað á milli sín, sem er fult með smá-bögla. Einhver af fullorðna fólkinu fer þá að lesa utan á böglana. En jólasveinarnir, sem eru tveir krakkar í dularbúningi, hlaupa hingað og þangað með böglana, sem eru smágjafir til barnanna og fullorðna fólksins, leikfang, eða annaö, alt eftir efnum og ástæðnm. Á- nægjan er þá á hæsta stigi. En nú er börn- in farið að langa í eitthvaö að borða. Þá er lokið upp dyrunum að herberginu, sem hiislesturinn var lesinn í, og þar er dúk- að borð, svo vel sem föng eru á, með allra handa sælgæti. Á borðinu er 2—4 kertaljós. Við það setjast allir.V En mest eru allir hissa á því, að hjá diskum allra stendur ofurlítil skál með rísgrjónagraut í: »Hvað á maður að gera með allan þenna graut« hugsa þeir. En þegarþeir stinga spæninum ofan f, þá toll- ir alt við. Og undir eru allrahanda kökur og sælgæti. Þetta gaman er hægðarleikur að búa út. Klippa skal lok af þunnum pappír, sem er alveg mátulegt í skálina, og leggja það ofan á það sem er í skálinni. Á þetta lok skal leggja þunt lag af þykkum rísgrjónagraut. Grjónin verða að vera heil, en ekki soðin sundur. Ofan á grautinn er stráð steyttum kanel og sykri. Ef einhverjum af lesendum Kvbl. líkaði þessi jólaskemtun að meira eða minna leyti, þá mundi það gleðja höfundinn. * * * Tekiö að nokkru leyti eftir tillögu um jóla- skemtun eftir L o u i s e Nimb. ---------38©----------- Haimyrðir. Jólagjafir. Hattbursta þykir mörgum karlmönnum vænt um og vantar oft. Hér er ]ivi fyrirskrift um ó- dýran laglegan og handhægan hattbursta. Taka skal 12 þumlunga langa flauels ræmu og 6 þumlunga breiða, brjóta hana svo saman í miðju á lengdma og sauma það saman, eins og poka. Hann er «vo fyltur með mjúka bómull og saumað fyrir. Faliegast er að sauma fangamark eigandans með silki i aðra hliðina og ef vill of- urlitla blómsturgrein á 2 hornin. Vilji menn hafa hann enn fallegri, má sauma mjóa rykta silkiræmu (Piber) utan í röndina á pokanum dálítið ljósari en hann er sjálfur Þetta getur orðið laglegur og þægilegur hattbursti handa »herrunurn« á jólunum. Vindlaveski má búa til af dálítilli klæðispjötlu eða filtpjötlu, 10 þumlunga langri og 4 þumlunga

x

Kvennablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.