Kvennablaðið - 27.11.1906, Blaðsíða 4
84
KV ENNABLAÐIÐ.
Kvennastórfundurínn
i Kaupmannahöfn í sumar.
Kvennabl. átti fyrir löngu að flytja myndir af
ýmsum helztu konum frá stórfundinum í sumar,
því að eg hélt, að mönnum væri forvitni á að sjá
hvernig þessar konur ltta út, sem ferðas} land úr
landi til að vekja áhuga kvennanna á manngildi
og mannréttindum sínum og berjast fyrir þeim,
ekki með oddi og egg, heldur með skýrum og rök-
fræðilegum sönnunum.
Ein hin merkasta
þeirra, er að allra dómi
Mrs. Carrie Chapman
Catt, forstöðukonan
fyrir Kosningaréttar
heimsfélagi kvenna.
(»The International
Woman Suffrage Alli-
ance«). Hún hefir
gengið á háskóla t
Ameríku og tók þegar
í æsku að veita því
eftirtekt, hvað verka-
konum væri mikill ó-
réttur ger í vinnulaun-
um ogfleiru, gagnvart
karlmönnum. Frá því
var stutt spor til að
rannsaka, hvernig rétt-
indi kvenna væru al-
ment fyrir borð borin.
Og því meira, sem hnn
hugsaði um þetta, því
sannfærðari varð hún
um, að ræturnar að
þessari rangsleitni
gagnvart konum, og
þroskaleysi þeirra,væri
að finna í kúgun þeirra
og yrði að eins bætt
með því, að veita þeim
fullkomin pólitisk rétt-
indi. Hún var ekki fult þrítug, þegar hún byrj-
aði, og vinnur enn óþreytandi að sama takmarki.
Hún var gift Catt, ritstjóra eins af merkustu
blöðunum í New-York, og hann hjálpaði henni
með ráði og dáð, lagði fram fé til ferðalaga og
annara útgjalda. Hann lézt í fyrra vetur, og af
því, að hún er barnlaus, bindur hana nú enn þá
færra við heimilið.
Það var fljótlega tekið eftir stjórnarhæfileikum
hennar, og hún var í einu hljóði valin til forstöðu-
konu í nefnd þeirri, sem átti að koma föstu skipu-
lagi á kosningaréttarfélögin, og var hún sett yfir aðal-
stöðina. Arið 1900, þegar Susan B. Anthony sagði af
sér forstöðunni í ameríska landsfélaginu, þá óskaði
hún eftir að Mrs. Catt yrði eftirmaður sinn. Hún var
þá valin hér um bil í einu hljóði af fulltrúunum
frá öllum kosningaréttarfélögunum.
Hún hefir ferðast um þvera og endilanga
Ameríku 1 fyrirlestraferðum, og þykir varla eiga
sinn líka í mælsku. Hún skýrir málið svo ljóslega
og rökstyður svo að ekki verður í móti mælt. Öll
framkoma hennar er svo prúð og kvenleg, að hún
vinnur málinu, ef til vill, eins mikið gagn með
henni og ræðum sínum. Hún talar hátt og snja.lt
og alvarlega, en hefir þó jafnan ýmsa fyndni á
reiðum höndum. sem gerir ræðuna léttari og skemti-
legri. Sem fundarstjóri
er hún svo óhlutdræg,
að sagt var 1 sumar,
að hún væri eins og
réttlætisgyðjan, nema
að því eina leyti, að
hún væri ekki blind.
Hún er glögg og gæt-
in, og finnur- jafnan
orðum sínum og fyrir-
skipunum þann bún-
ing, sem bezt á við í
hvertsinn. Dómgreind
hennar, hagsýni,gætni,
óhlutdrægni og prúð-
menska eru þeir kostir,
sem gera hana flestum
færari til að stjórna svo
stóru og víðlendu félagi
og koma góðri skipun
og reglu á hvervetna.
Hinn brennandi áhugi
hennar og sannfær-
ing um réttmæti þessa
máls o.g trú á heppileg
úrslit þess, hrífur alla
með, jafnvel þá, sem
áður voru efablandnir.
Frú kommandör-
inde Johanne Miinter
var forstöðukonan fyr-
ir móttökunefndinni í Kaupmannahöfn, sem átti
að faka á móti fundarkonunum, sjá þeim fyrir
samastað, sjá um veizlurnar o. s: frv. Hún er líka
skrifari í dönsku »Stemmeretsforeningen« tilútlanda,
því hún hefir víða verið með manni sínum og talar
mörg mál. Frú Munter hafði í sumar mjög ann-
ríkt meðan á fundinum stóð, vakti oft til kl. r og
fór á fætur kl. 4 árd. Hún hefir mjög mikinn á-
huga á kosningaréttarmálinu, þótt hún sé stórauðug
eða maður hennar. — Einkennilegt var það, að
rétt fyrir fundinn, er hún hélt fundarkonunum veizlu
og hafði um 100 gesti, að hvorki maður hennar
né einkadóttir voru viðstödd. Að eins einn son-
ur þeirra var þar með.
MRS. CHAPMAN CATT.