Kvennablaðið - 27.11.1906, Síða 4

Kvennablaðið - 27.11.1906, Síða 4
84 KV ENNABLAÐIÐ. Kvennastórfundurínn i Kaupmannahöfn í sumar. Kvennabl. átti fyrir löngu að flytja myndir af ýmsum helztu konum frá stórfundinum í sumar, því að eg hélt, að mönnum væri forvitni á að sjá hvernig þessar konur ltta út, sem ferðas} land úr landi til að vekja áhuga kvennanna á manngildi og mannréttindum sínum og berjast fyrir þeim, ekki með oddi og egg, heldur með skýrum og rök- fræðilegum sönnunum. Ein hin merkasta þeirra, er að allra dómi Mrs. Carrie Chapman Catt, forstöðukonan fyrir Kosningaréttar heimsfélagi kvenna. (»The International Woman Suffrage Alli- ance«). Hún hefir gengið á háskóla t Ameríku og tók þegar í æsku að veita því eftirtekt, hvað verka- konum væri mikill ó- réttur ger í vinnulaun- um ogfleiru, gagnvart karlmönnum. Frá því var stutt spor til að rannsaka, hvernig rétt- indi kvenna væru al- ment fyrir borð borin. Og því meira, sem hnn hugsaði um þetta, því sannfærðari varð hún um, að ræturnar að þessari rangsleitni gagnvart konum, og þroskaleysi þeirra,væri að finna í kúgun þeirra og yrði að eins bætt með því, að veita þeim fullkomin pólitisk rétt- indi. Hún var ekki fult þrítug, þegar hún byrj- aði, og vinnur enn óþreytandi að sama takmarki. Hún var gift Catt, ritstjóra eins af merkustu blöðunum í New-York, og hann hjálpaði henni með ráði og dáð, lagði fram fé til ferðalaga og annara útgjalda. Hann lézt í fyrra vetur, og af því, að hún er barnlaus, bindur hana nú enn þá færra við heimilið. Það var fljótlega tekið eftir stjórnarhæfileikum hennar, og hún var í einu hljóði valin til forstöðu- konu í nefnd þeirri, sem átti að koma föstu skipu- lagi á kosningaréttarfélögin, og var hún sett yfir aðal- stöðina. Arið 1900, þegar Susan B. Anthony sagði af sér forstöðunni í ameríska landsfélaginu, þá óskaði hún eftir að Mrs. Catt yrði eftirmaður sinn. Hún var þá valin hér um bil í einu hljóði af fulltrúunum frá öllum kosningaréttarfélögunum. Hún hefir ferðast um þvera og endilanga Ameríku 1 fyrirlestraferðum, og þykir varla eiga sinn líka í mælsku. Hún skýrir málið svo ljóslega og rökstyður svo að ekki verður í móti mælt. Öll framkoma hennar er svo prúð og kvenleg, að hún vinnur málinu, ef til vill, eins mikið gagn með henni og ræðum sínum. Hún talar hátt og snja.lt og alvarlega, en hefir þó jafnan ýmsa fyndni á reiðum höndum. sem gerir ræðuna léttari og skemti- legri. Sem fundarstjóri er hún svo óhlutdræg, að sagt var 1 sumar, að hún væri eins og réttlætisgyðjan, nema að því eina leyti, að hún væri ekki blind. Hún er glögg og gæt- in, og finnur- jafnan orðum sínum og fyrir- skipunum þann bún- ing, sem bezt á við í hvertsinn. Dómgreind hennar, hagsýni,gætni, óhlutdrægni og prúð- menska eru þeir kostir, sem gera hana flestum færari til að stjórna svo stóru og víðlendu félagi og koma góðri skipun og reglu á hvervetna. Hinn brennandi áhugi hennar og sannfær- ing um réttmæti þessa máls o.g trú á heppileg úrslit þess, hrífur alla með, jafnvel þá, sem áður voru efablandnir. Frú kommandör- inde Johanne Miinter var forstöðukonan fyr- ir móttökunefndinni í Kaupmannahöfn, sem átti að faka á móti fundarkonunum, sjá þeim fyrir samastað, sjá um veizlurnar o. s: frv. Hún er líka skrifari í dönsku »Stemmeretsforeningen« tilútlanda, því hún hefir víða verið með manni sínum og talar mörg mál. Frú Munter hafði í sumar mjög ann- ríkt meðan á fundinum stóð, vakti oft til kl. r og fór á fætur kl. 4 árd. Hún hefir mjög mikinn á- huga á kosningaréttarmálinu, þótt hún sé stórauðug eða maður hennar. — Einkennilegt var það, að rétt fyrir fundinn, er hún hélt fundarkonunum veizlu og hafði um 100 gesti, að hvorki maður hennar né einkadóttir voru viðstödd. Að eins einn son- ur þeirra var þar með. MRS. CHAPMAN CATT.

x

Kvennablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.