Kvennablaðið - 23.01.1907, Blaðsíða 6
«
KVENNABLAÐÍÐ.
Eins og áður hefxr verið getið um i
Kvennablaðinu, hefx eg í huga, að fjölga
tölublöðum þess, án þess að hœkka blaðið
i verði, svo framarlega, sem lesendumir
vilja styrkja blaðið, með því að fjölga
kaupendum þess, og standa í skilum með
andvirðið. Enn fremur hefi eg komist að
samningum erlendis, um að fá móð-myndir,
af fötum, eftir nýjustu tizku, einkum af
barna- og unglingafötum, sem munu koma
við og við í blaðinu, og fylgja snið með
í fullri stærð, fyrir fáa aura. Ef mynd-
imar og sniðin verða vinsæl, £og Qölga
kaupendum blaðsins, þá mun eg einnig
láta myndir af ýmsum handyrðum veia í
blaðinu stöku sinnum.
Eg vona, að íslenzka kvenþjóðin hafi
þann metnað, að telja sér sæmd að því,
að Kvennablaðið geti orðið sem bezt og
fjölbreyttast, og í alla staði sem fullkomn-
ast úr garði gert. En til þess þai'f meira
en góðan vilja útgefanda, það þarf einnig
góðan vilja og framkvæmdir allra kvenna
á landinu.
Nú, þegar framfarir í öllum greinum
færast í vöxt hér á landi, sem annai'stað-
ar, þá þurfum vér fylliiega á stærra blaði
að balda. Nóg efni ætti að vera fyrir
hendi, að minsta kosti í hálfsmánaðablað.
Ef allir kaupendur, sem að eins fá eitt
eintak, útvega annan kaupanda, þá gæti
það munað svo miklu, að eg sæi mér fært
að gefa út þriðjungi fleiri blöð á ári.
Þeir sem útvega 6 nýja kaupendur fá
auk venjulegra 20°/«. einhvern af síðustu árg.
Kvennablaðsins, meðan þeir hrökkva. En
þá verður að hraða sér, því að eins fá
eintök eru til.
Mjög væri æskilegt, að fá greinar úr
sem flestum bygðum Iandsins í blaðið. —
Það gerir blaðið fjölbreyttara.
Að endingu óskar Kvennablaðið öll-
urn lesendum sínum góðs og hagstæðs árs.
Virðingarfylst
Bríet Bjarnhéðlnsdóttir.
Kína Lífs Elixír.
Mér undirrituðum, sem t möi'g ár hefi
þjáðst af lystarleysi og stöðugi'i maga-
veiki, hefir við það að brúka KÍNA KÍFS
ELIXÍR hr. WALDIMARS PETERSENS,
batnað þessir kvillar algerlega.
Hlíðarhúsum, 20. ágúst 1906.
Halldór Jónsson.
Eg hefi síðan er eg var 17 ára, þjáðst
af bleikjusótt og magakvefi, og hefi leit-
að ýmissa lækna og viðhaft mörg ráð,
en ekki batnaði mér. Eg neytti EKTA
KÍNA LÍFS ELIXíR og er nú hressari
en eg hefi nokkru sinni verið áður og
geri mér von um algerðan bala.
Hotel Stevns, St. Hedinge, 20. nóv. 1903.
Anna Christensen, (26 ái*a).
Eg hefi oft á ferðum mínum orðið
veikur af ákafri ofkælingu og brjóst-
þyngslum, en þekki okkert meðal, er
hefir dugað mér jafnvel sem IvÍNA LÍFS
ELIXÍR hr. WALDIMARS PETERSENS.
Neapel, 10. desember 1904.
M. Gigli kommandör.
Riðjið beinlínis um Waldemars Peter-
sens ekta Kína lífs elixír.
Fæst allstaðar á 2 kr. flaskan.
Varið yður á eftirstælingum.
Annaðhvort
bezta rjóma-
búasmjör
eða
ALFA Marprine,