Kvennablaðið - 28.02.1907, Side 2
10
KVENN ABL AÐIÐ.
ar, sem breyta öðruvísi. Það er gamla sagan :
að hvorki menn né konur séu svo góðir, sem
þeir ættu að vera. Þótt ekki væri nema ein
kona eða maður, sem öðruvísi breyttu, þá væri
það of mikið.
En slikt verður ekki lagað á þann hátt,
að setja alla kvenþjóð íslands í gapastokkinn
frammi fyrir löndum og lýðum.
Því miður eru hér á Islandi sem annar-
staðar til konur, sem ekki meta sæmd sína sem
skyldi. En þær verða ekki dregnar upp úr glöt-
uninni með því, að flestum heiðarlegum konum
sé skipað sæti á sama bekk. Miklu fremur.
munu þær þá þakka guði, að þær séu „ekki
' verri en aðrar".
Fyrir nokkrum árum, varaði einn af vor-
um helztu læknum opinberlega í blöðunum
við innflutningi hættulegs sjúkdóms, sem
stafaði frá útlendingum (eða þeim mönnum,
sem í útlöndum hafa verið). Það var nauð-
synlcg viðvörun og gerð á þann hátt, sem
samboðin var heiðarlegum og samvizkusöm-
um manni. Með því var enginn brennimerkt-
ur, en þar voru þó færðar þær sannanir, sem
ekki urðu véfengdar.
Menning íslenzku kvenþjóðarinnar liggur
að miklu leyti á valdi karlmannanna, bæði í
þessu sem öðrum efnum. Ef karlmennirnir
sjálfir virða konurnar, og setja þeim eðlilegt
verksvið, þá munu konurnar líka læra að
virða sig og sæmd sína. Látið þér konurn-
ar fá víðtæka og holla mentun, veitið þeim
sömu mannréttindi og borgaraieg réttindi og
karlmönnum, alið þær upp til þess að vinna
fyrir sér á hvern þann heiðarlegan hátt, sem
hæfileikar þeirra leyfa, gjaldið þeim sömu
laun fyrir störf þeirra og karlmönnunum, og
kennið þeim að keppa við að leysa þau jafn-
vel af bendi, innrætið þeim frá æsku ábyrgð-
artilfinningu og tílfinningu fyrir því, að þær
séu þjóðfélagsborgarar, eins og karlmennirnir,
— en ekkert leikfang þeirra — og þá mun-
uð þér sjá, að konurnar virða bæði sæmd
sína og þjóðarinnar í heild sinni.
Hingað til hafa karlmenn sjálfir kent
konum, að þær ættu að vera leikfang þeirra.
Er þá furða, þótt ávextir slíkrar kenningar
hafi verið rotnir? Ef nokkuð er synd á móti
heilögum anda, þá er það það, að taka frá
mönnum ábyrgðartilfinninguna og skyldutil-
finninguna. Þær tilfinningar hafa karlmenn
jafnan deyft eða deytt hjá konunum. Þœr hafa
aðeins átt að vera til þeirra vegna, en ekki
vegna sjálfra sín. Þær hafa haft leyfi til
að töra, en ekki til að lifa sjálfstæðu, and-
legu lífi. Þeirra skoðanir á málum hafa aldr-
ei verið teknar til greina. Þeirra einasti við-
urkendi réttur hefir verið að þola og líða, en
ekki að stríða og sigra. Og svo fáið þér
karlmennirnir konurnar, eins og þér sjálfir
hafið skapað þær, þar sem bóndadóttirin er,
sem samrekkir skipstjóranum á strandbátn-
um, og virinustúlkan, sem verður þunguð í
verinu. Því eruð þér þá ekki ánægður með
að kenningar yðar beri stöku sinnum eðli-
lega ávexti?
Merkileg tilraun.
Lundúnablaðið „The Daily Express" langaði til
að sannfæra heiminn, og þó einkum og sér í lagi
enska verkamenn um, að hægt væri að lifa, og
meir að segja lifa góðu lífi fyrir miklu minna fé, en
haldið væri. Daglegt fæði var svo ákveðið, að
skyldi kosta 4 pens = 30 aura um daginn fyrir
fullorðinn mann. Arangurinn af þessari tilraun varð
alveg óvenjulegur, því nú kom í ljós, að hægt var
að spara að miklum man ýmsa útgjaldaliði.
Fyrst varð að finna menn, sem nota átti við
tilraunirnar. Meðal hinna mörgu atvinnulausu
manna í Lundúnum síðastliðinn vetur, var skó-
smiður, steinsmiður og skrifstofuþjónn, sem voru
fúsir til að láta reyna þetta við sig. Fyrirliði einn
úr sáluhjálparhernnm slóst líka í félag með þeim.
Auk þess var þar ætíð blaðamaður við allar mál-
tíðir, en ekki jafnan sá sami. Þessir menn voru
allir frá 25—38 ára gamlir, og skósmiðurinn hafði
ilt „bronkitis" þegar byrjað var.
Þessum fjórum mönnum var komið fyrir á fá-
tækrahæli nokkru, og urðu þeir að heita því, að fara
ekkert út fyrir lóð hælisins og tilheyrandi spítala.
Þetta fanst þeim óþægilegasta fyrirskipunín. Ein
af „systrunum" sagði þeim til með hvernig matvör-
urnar ættu að notast. Þessir fjórir menn voru sína
vikuna-hver í eldhúsinu.
Allan daginn voru þeir við vinnu, sem einkum
var aðgerðir við spítalabyggingarnar, garðvinna o. fl.
Aila þessa þrjá mánuði hafði yfirlæknirinn á
spítalanum umsjón yfir þeim. Hann var ákafur