Kvennablaðið - 31.03.1916, Blaðsíða 4

Kvennablaðið - 31.03.1916, Blaðsíða 4
20 KVENNABLAÐIÐ fólk þetta ætlaði að boða til friðarþings. En nú hefir sú breyting orðið á, að það verður ekki haldið þar, heldur i Stokkhólmi, og kjósa - friðarnefndirnar eða friðarfélðgin, sem stofn- aðar hafa verið á öllum Norðurlöndum, fleiri eða færri fulltrúa til þessa þings. í Svíþjóð hefir frú Frida Stéenhoff verið kosin fulltrúi svenskra kvenna á friðarþingið, en varafulltrú- ar frökenarnar Anna Lindhagen og Anna Kle- mann. Fulltrúi danskra kvenna er fröken Henni F’orchhammer, formaður í Alþjóðasambands- Iandsráði danskra kvenna. Varafulltrúar eru þær fröken kand. phil. Helena Berg og fröken Elina Hansen eftirlitsmaður skólaeldhúsanna i Kaup- mannahöfn, og fröken Jóhanna Petersen-Nord- rup, form. i danska ungmennafjelaginu Pax. Helstu fulltrúar frá Noregi eru þær frk. Fred- rikke Mörck og varafulltrúi Fanny Schnelle, bæjarfulltrúi frá Bergen. Frá ófriðarlöndunum. t’rátt fyrir hinn voðalega ófrið og aliar hans skelfilegu afleiðingar fyrir ófriðar- þjóðirnir, hafa þó konurnar í þeim lönd- um ekki alveg lagt kvenréttindamálin á hilluna. Þrátt fyrir hina miklu aukavinnu í þarfir lands og þjóðar, sem stafar af burtköllun karlmannanna frá sínum venju- legu störfum, halda þær þó sínu jafnréttis- merki á lofti við öll tækifæri. Um leið og skorað er á þær af stjórnarvöldunum að fylla nú hin ýmsu sæti og embætti karl- mannanna, sem þær aldrei fyrri hafa fengið aðgang til, þá krefjast þær jafnra launa og þeir hafi haft og fá það venjulega. Og þegar stjórnirnar eða aðrir mikilhæfir menn halda ræður, sem konum þykja at- hugaverðar, þá eru blöð þeirra óðara til taks, til að flytja þessi ummæli og draga af þeim eðlilegustu ályktanirnar. Þannig skrifar Leopoldine Kulka í »Neues Frauenleben«, blað frjálslyndra kvenna í Austurríki, grein um útlitið eftir síðustu áramótin. Hún gerir sér engar góðar vonir, en sýnir þó ákveðinn vilja og skarpa víð- sýni til að komast út úr þvi vonlausa vandræða-ástandi, sem nú sé alstaðar ríkj- andi í ófriðarlöndum. Hún segir: »Því er ekki að leyna, að við höfum verið sett ofan á fyrri tíma siðmenningarstig. Þetta sést bezt á erfið- leikunum með allar samgöngur, afnámi heimsverzlunarinnar, framleiðslu matvæla í stað iðnaðarins, undirokun prentfrelsis og málfrelsis og mörgu fleiru þvílíku. Engin von er heldur til að neitt af þessu ástandi breylist til batnaðar meðan stríðið stendur yfir. En það sem mest riður á er að vaka yfir þvi, að þessar núverandi af- leiðingar striðsins vari að eins urn stund- arsakir«. — — Ut af þessum athugasemdum dregur hún svo í stórum dráttum upp myndir af þeirri hæltu, sem liggi í þessari menning- ar afturför fyrir frelsishreyfingu kvenna. Þegar fyrri tíma hnefarétturinn komist aftur i sætið í staðinn fyrir hugsanirn- ar, skynsemina og tilfinningarnar, þá verði konan aftur setl langt að baki karl- mannsins. Og þegar svo langt niður sé komið menningarstiginu, að manngildið sé einskis melið móti höfðatölunni, þá verði konunum hrundið ofan á siðmenningar- leysisstig viltra þjóða, þar sem aðallifs- starf þeirra er að fæða sem flest börn til að fylla í skörðin eftir karlmennina, sem stöðugt falla í hinum óaflátanlegu bardög- um. Óaflátanlegar barnafæðingar séu af þeim heimtaðar. Það sýni hin venjulegu kveðjuorð afríkanskra höfðingja til gesta sinna: »Mætti skaut konunnar þinnar aldrei hætta að fæða«. »Þegar menn lesa blöðin núna«, segir Leopoldine Kulka enn fremur, þá er auð- séð að það liggur sannarlega hætta í skrafi karlmannanna á hinum tíðu kongressum, sem eru haldnir um þessar mundir, þar sem þeir halda því fram, að þessi veuju- legu kveðjuorð afrikanskra höfðingja til gesta sinna ætti að innleiðast hjá oss, með viðbótinni: »Guð hegni Englandi«, — og svo að lifað verði eftir þvi.« — Undir þessum kringumstæðum leggur hún áherzlu á að konur geri sér glögga grein fyrir stöðu sinni og öllum ástæðum. Að þær láti skýrt i ljósi, að þær vilji ekki

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.