Kvennablaðið - 31.07.1916, Síða 1
«
KveunHblaðið %o«t-
ur S kr.innanlanda
erlendii kr. 2 60
[90 cent vestan-
hafs) */» verðsins
borgigt fyrfram, en
*/. fyrir 16. júli.
tlfuuðtiíftöiö.
Uppiögn skrlfleg
bundin við kra-
mót, ógild nema
komin sé til út-
gof. fyrir 1. okt
og kaupandi hafl
borgað að fullu.
22. ár.
Reykjavík, 31. júií 1916.
M 7.
AUSTUR-FJÖLL.
Lag eftir Isólf Pálssort.
Pið Ijómið heið og breið og blá,
mín björtu austur-fjöll!
Par Ijósin kveiktu bros á brá
í bernsku álja-höll.
Pað birtir alt af yfir mér,
er œsku guða-vé
t anda við mitt hljómspil hér
ég há og fögur sé.
Af lýsigulli loga slœr
um Ijósa hlíð og dal,
er mildur andar aftanblœr
um álfa konungs sal.
Ur perlu-gljáa glitberg rís
með glóspöng yflr brún,
þar bliieyg situr blómstur-dís
og blessar yflr tún.
Par man ég grœna laut'hjá lind
er líður suður mó, —
þar fœddist œskuást mín blind
og ung í tárum dó.
í Ijóma kvöldsins leið hún inn
í lojtsins safír-höll, —
hún birtist mér í sérhvert sinn
er sé ég austur-fjöll.
Um júnídœgrin Ijós og löng
er leiðin tón^im greið
við fjaðrablik og svanasöng
um sumarveldin heið.
Eg svíf í ókunn undralönd,
hffe yflr þeim er Ijóst!
Mér réttir aftur œskan hönd
með eyrarrós við brjóst!
Um hugann leggur hlýjan straum,
er hljóðs og stuðla föll
úr fortíð grafa gleymdan draum
og gull mín heil og öll.
— Pið spyrjið víst, hvað valdi því
að vöknar mér um brá:
svo skær er bjarminn augum í
um austur-fjöllin blá!
Guðm. Guðmundsson.
Áhugi eða áhugaleysi.
Þá er nú loksins farið að líða að þeim
degi, þegar vér íslenzku konurnar í fyrsta
sinni göngum að kosningaborðinu með
karlmönnunum til þess að velja þá fulltrúa,
sem um næstu 6 ár fari með umboð vor
til að ráða »lögum og lofum« í landi voru.
Menn gætu haldið, að dálítill hiti væri í
oss, núna í fyrsta sinni, að einhver mál
hefðum vér á reiðum höndum til að leggja
fyrir fulltrúaefnin, þó ekki væri fyr en eftir
á. Menn skyldu einnig ætla, að einhverjar
ráðstafanir væru gerðar af hendi kvenua,
til þess að ýta undir konur að sækja nú
kosningarnar, þegar vér loksins höfum leyfi
til þess.
En mjög lítið hefir verið gert að þessu
frá hendi kvenna. Fæstar þeirra svo mikið
sem nefna 5. ágúst á nafn, auk heldur þær
ráðgeri að hafa nokkurn viðbúnað lil þess
að kosningarnar gangi sæmilega frá vorri
hendi. En það verður að teljast lítt sæmi-
legt fyrir oss, ef svo skyldi fara, að kosn-
ingaskýrslurnar bæri með sér á eftir, að
vér konur hefðum lítið notað kosningar-
rétt vorn. Það mundi verða mjög biturt
vopn síðar gegn oss, í hendi þeirra, sem