Kvennablaðið - 30.04.1918, Side 3
K V E N N A B L A i) IÐ
27 /
Tillögur þessar sendi svo stjórn, Kven-
réttindafélags íslands til landsstjórnar, Al-
þingis og bæjarstjórnar. Alþingi vísaði til-
lögunni um að senda hússtjórnarkenslu-
konu til útlanda, til bjargráðanefndar þings-
ins og hún lagði þá eindregið til, að það
yrði gert, og ein kona, eða bæði kona og
karlmaður yrði se;nd til útlanda í þessum
erindum, En þingsályktunartillaga um þetta
efni var þá feld í Nd., og var það aðal-
lega sprottið af þeim misskilningi þing-
manna, að þessari hússtjórnar-kenslukonu
væri ætlað að ganga á hússtjórnarskóla
ytra, en til þess væri tíminn of stuttur, og
Hæmi ekki að notuin hér.
En geymt er ekki gleymt, æfinlega, þó
nokkur tími líði. Nú i vor þegar bjarg-
ráðanefnd Alþingis fór aftur að setjast á
rökstóla og fjalla um þessi mál, þá tók
hún aftur þetta mál upp, og er nú fús til
að leggja til að sendir verði karlar og
konur til að kynna sér þessi mál, og eink-
um þessi almenningseldhús, sem oft hefir
verið gelið um i Ivvennablaðinu. þingið
eða Nd. hefir nú fengið réttari skilning á
nauðsyninni að kynna sér ráðstafanir ann-
ara þjóða, einkurn mundi það verða bjarg-
ráðaráðstafanir Dana, sem þykja sérlega
heppilegar. Að eins vill þingið, að bæjar-
stjórn Reykjavikur láli i ljósi, hvort hún
muni óska eftir þessu og vilji nota sér
þær ráðstafanir og jafnvel taka þátt i að
kosta til þeirra.
Mál þetta var svo rætt nokkuð á und-
irbúningsfundum undir aðalfund Banda-
lags kvenna, og hafði frú Guðrún Péturs-
dóttir kynt sér álit bjargráðanefndar Al-
þingis um það, og fengið vissu um, að ef
bæjarstjórn Reykjavikur vildi sinna þvi að
einhverju leyti, þá mundi ekki standa á^ing-
inu. Vonandi verður þess því ekki langt að
bíða að málið verði tekið fyrir af dýrtíð-
arnefnd bæjarstjórnar og þingið fái fulla
vissu fyrir því, að bæjarstjórnin muni hag-
nýta sér slíka aðstoð frá þinginu.
Kvenréttindaféiagið og þær konur sem
tóku þátt í fundinum 7. júlí í fyrra, mega
því vel við una að hann hefir borið góð-
an árangur. Nú eru konur komnar inn í
dýrtíðarnefnd bæjarstjórnar og bjargráða-
nefnd hennar. Pingið hefir einnigtekið þetta
mál upp að nýju og veitir nú eflaust ferða-
styrk svo að kona, eða jafnvel einhver karl-
maður líka, geti kynl sér nauðsynlegustu
dýrtíðarráðstafanir, t. d. almenningseld-
húsin o. fl., og kent okkur hér heima svo
að hagnýta okkur þær. Það er að eins
landsstjórnin, sem á eftir að efna þau ský-
lausu loforð sín, sem hún þá gaf, að bæta
konu í verðlagsnefndina ef sæti losnaði í
henni. Sælið losnaði í fyrra haust, þegar
J. Sívertsen var sendur til Ameíku sem
verzlunarerindreki. En engin kona var þó
tekin heldur í nefndina þrátt fyrir loforð
tveggia ráðherranna. Eina hótin er, að
'ekki er þá heldur unt að kenna konum
um hið alkunna aískiftaleysi þessarar lof-
legu nefndar, af öllu verðlagi hér innan-
lands. Pað er eins og það sé henni allra
minst viðkomandi.
Ef nú fer svo heppilega að kona verði
send til Danmerkur i þessum erindum, þá
ætti að mega vænta, að það sé merki þess
að komið verði hér á fót almenningseld-
húsi í vetur, enda ætli það að vera öllum
ljóst, að það er hin mesta nauðsyn i þeim
eldsneytisskorti sem hér er, sem heldur
mun aukast en draga úr. En misskilning-
ar talsverður virðist vera á því máli. Tala
sumir um að hér fáist ekki húsnæði fyrir
slík eldhús og þær matstofur, sem þeim
fylgi. í Kaupmannahöfn sóttu allir sinn
miðdegisverð fyrst framan af á útsölustað-
ina, sem allir voru í leikfimishúsum barna-
skólanna. A Friðriksbergi aftur á móti
var matsalur fyrir einhleypt fólk á aðal-
sölustaðnum. Og Kaupmannahafnar mat-
arútsölustaðirnir ráðgerðu einnig að taka
upp þá reglu.
Margt er það sem athugunar þarf við,
og undirbúnings í sambandi við almenn-
ingseldhúss-ráðagerðina. Æði margt hlýtur
að vanta af nauðsynlegustu áhöldum til
hennar, og væri nauðsynlegt að athuga
það í tíma, einkum þegar milliferðir héð-
an og til Danmerkur eru jafn strjálar og