Lögberg-Heimskringla - 12.05.1960, Page 4
4
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 12. MAÍ 1960
Lögberg-Heimskringla
Published every Thursday by
NORTH AMERICAN PUBLISHING CO. LTD.
Printed by
WALLINGFORD PRESS LTD.
303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Man.
Edilor: INGIBJÖRG JÓNSSON
EDITORIAL BOARD
Winnipeg: Dr. P. H. T. Thorlakson, chairman, Próf. Haraldur
Bessason, vice-chairman, Mrs. Ingibjörg Jónsson, sec’y, Mr.
Stefán Einarsson, Dr.. Valdimar J. Eylands, Miss Caroline
Gunnarsson, Prof. Thorvaldur Johnson, Mr. Jón K. Laxdal,
Prof. Tryggvi J. Oleson, Rev. Philip M. Pétursson.
Grand Forks: Dr. Richard Beck
Minneapolis: Mr. Valdimar Björnson
Montreal: Prof. Áskell Löve
Subscriplion $6.00 per year—payable in advance.
TELEPHONE WH. 3-9931
Authorlzed «a Second Class Mall, Post Offlce Department, Ottawa,
Ráðstefna Samveldisþjóðanna
Um þessar mundir sitja á ráðstefnu í London á Englandi
forsætisrráðherrar eða aðrir fulltrúar frá hinum ellefu Sam-
veldisþjóðum. Þetta þjóðsamband myndaðist úr Brezka
heimsveldinu. Mun það jafnan þykja merkilegt stjórnarfars-
afrek að þegar þessar þjóðir öðluðust sjálfstæði hver af ann-
arri, að í stað þess að Brezka heimsveldið liðast í sundur,
mynduðu tilheyrandi þjóðir samveldi sín á meðal, sem lúta
í orði kveðnu konungi eða drottingu Bretlands; Elizabeth II
er sameiningartákn þessara þjóða.
Bretland sjálft er miðdepill eða kjarni þessara sambands-
þjóða; Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland hafa þróazt af ný-
lendustigi á það stig að vera algerlega sjálfstæð ríki, en
sterkar taugar tungu, sögu og menningarerfða tengja þau
fast við Bretland. Öðruvísi er að gegna með margar hinar
þjóðirnar. Bretar hernámu Suður-Afríku frá Búum, en gáfu
þeim svo jafnrétti við brezka innflytjendur, en nú vilja Búar
sjálfir ekki unna öðrum jafnréttinda þar í landi, það er að
segja blökkumönnum, og hafa komið þannig fram við þá,
að kúgunaraðferðir þeirra eru fordæmdar af öllum hinum
siðmenntaða heimi.
Indland, Pakistan, Ceylon og Malaga voru og brezkar
nýlendur, en áttu þó menningarsögu, sem nær miklu lengra
aftur í tímann en brezk menning. Þessar þjóðir hafa nú
öðlazt sjáfstæði; þó mætti minnast þess að þær lærðu margt
varðandi lög og stjórnsemi meðan þær lutu yfirráðum Breta,
enda hafa þær óskað þess að vera áfram meðlimir Sam-
veldisins og telja Elizabeth II drottningu sína, þó sum þeirra
séu að nafninu til lýðveldi.
Hin tvö lönd Samveldisins eru Ghana og Samband Ny-
asalands og Rhodesiu. Eru það Afríkuþjóðir, nýskapaðar að
segja tná. Fleiri nýlendur Breta munu smám saman bætast
við í þetta þjóðasamfélag um leið og þær öðlast sjálfstæði
sitt, það er að segja ef félagsskapurinn gliðnar ekki í sundur.
Fleiri en fjórir fimmtu af fólkinu, sem myndar þjóðir
Samveldisins, eru Asíu- og Afríkubúar, og má nærri geta,
að fulltrúar þeirra eru heitir og reiðir út í þá meðferð, sem
blökkumenn sæta í Suður-Afríku, enda hefir Suður-Afríka
verið mikill vandræða gemlingur á ráðstefnunni, og fulltrúi
þess ríkis, utanríkisráðherrann, Mr. Louw, hefir algerlega
neitað því að stjórnarvöldin þar muni bæta ráð sitt. Var í
byrjun ráðstefnunnar samþykkt að ávíta ekki Suður-Afríku
opinberlega; hins vegar skyldu fulltrúar hinna ríkjanna tala
við Suður-Afríku fulltrúann einslega.
Ráðstefnan hefir mörg önnur mál til umræðu: verzlunar-
viðskipti milíi þessara þjóða; fjárhagslega aðstoð fyrir hinar
fátækari þjóðir; afstöðu Samveldisþjóðanna til ráðstefnu
æðstu manna, sem kemur saman seinna í þessum mánuði, og
svo framvegis.
Fulltrúarnir gáfu sér líka tíma til að sitja hátíðahöldin
í London, sem fram fóru í sambandi við brúðkaup Margrétar
Rose prinsessu og Anthon^ Armstrong-Jones á föstudaginn.
☆
Tilmæli
Okkur þykir það, vægast sagt, óviðunnanlegt, þegar and-
láts fólks af íslenzkum stofni er ekki getið í íslenzku blaði
fremur en það hefði aldrei verið til. Við reynum því eftir
mætti að fylgjast með dánarfregnum í dagblöðum Winnipeg-
borgar, og ef við sjáum þar íslenzkt nafn, þá þýðum við
fregnina, þótt ófullkomin sé, og birtum hana í Lögbergi-
Heimskringlu. En oft hefir komið fyrir af vangá, að við
höfum ekki náð í allar slíkar fregnir úr blöðunum hér.
íslendingar eru dreifðir víða um þessa álfu og fregnir
um þá birtast því ekki í Winnipeg-blöðunum; þess vegna
er engin leið fyrir Lögberg-Heimskringlu að birta dánar-
fregnir þeirra, sem búsettir hafa verið í fjarlægum byggO-
Helga Grímólfína Christopher
Helga G. Chrisiopher
Hún var fædd 27. nóv. 1927
í Selkirk, Man. og andaðist
27. júlí 1959 í Kelowna, B.C.,
þar sem hún var á sumarfrí-
dögum sínum, ásamt manni
sínum og ungri dóttur þeirra
í hópi ættingja og ástvina.
Það var í sólskini hásumars-
ins að skyndilega dró ský fyr-
ir sól gleðinnar og hamingj-
unnar.
Helga var dóttir þeirra
hjónanna Theódórs og Sigríð-
ar Thordarson, sem bjuggu í
Selkirk og Winnipeg, en búa
nú í Vancouver, B.C. Syst-
kini Helgu heitinnar búa einn-
ig í British Columbia. Þau
eru: Fríða, Mrs. Ross Hender-
son, N: Van.; Lára, hjúkrunar-
kona, sem vinnur að líknar-
málum fyrir stjórn British
Columbia og býr á heimili
foreldra sinna; Theodor er
sjúkrahúslæknir í H a n e y ,
B.C., kvæntur Maxine Lor-
raine, og Roy, sem býr með
foreldrum sínum, en stundar
nú tannlæknisnám í Winni-
peg. Þessi systkini eru hvert
öðru myndarlegra, vel gefin
og vinsæl af öllu fólki. Mun-
um við hjónin og börnin okk-
ar véra ævinlega þakklát fyr-
ir þá frábæru vinsemd og
gestrisni, sem við höfum not-
ið hjá þeim hjónunum Theó-
dór og Sigríði og börnum
þeirra.
Helga heitin ólst upp hjá
foreldrum sínum í Selkirk og
í Winnipeg. í Winnipeg
stundaði hún nám á verzlun-
arskólanámskeiði og vann þar
við verzlunar- og skrifstofu-
störf. Eftir að fjölskyldan
flutti til Vancouver, innritað-
ist hún á hjúkrunarkvenna-
skólann við Almenna sjúkra-
húsið í Vancouver, og er hún
hafði lokið námi þar, starfaði
hún sem hjúkrunarkona við
barnadeild sjúkrahússins.
Arið 1956, þann 27. des.
voru þau gefin saman í hjóna-
band í íslenzku lútersku kirkj-
unni í Vancouvér Helga og
Robert Christopher. Stundar
hann skrifstofustörf í Van-
couver, og áttu þau fallegt og
elskulegt heimili. Þeim fædd-
ist yndisleg dóttir, sem var
skírð Nancy Elín einn fagr-
an sunnudag í júlí; var það í
sama mánuðinum, er mamma
hennar dó. Þá var einnig
skírður ungur sonur Theodors
læknis, bróður Helgu, og
konu hans.
Helga heitin var aðeins 31
árs, þegar hún dó.
Minningar allra, er þekktu
hana, tala fögru máli um það,
hvað hún var góð og hjarta-
hrein. Þess vegna þótti öllum
vænt um hana, sem kynntust
henni. Á heimili foreldra
sinna var hún góð og elskuleg
dóttir og systir. Nám sitt
stundaði hún af trúmennsku
og öll störf sín vann hún af
frábærri skyldurækni og trú-
mennsku. Hún var fríð og
björt yfirlitum, háttprúð og
aðlaðandi í allri framkomu.
Hún flutti alltaf eitthvað
bjart og fallegt með sér, hvar
sem hún fór.
Eitt sumar ferðaðist hún
um mörg Evrópulönd, þar á
meðal til Islands, til þess að
heimsækja frændfólk sitt þar,
og eignaðist þar marga vini,
sem muna hana lengi.
Útför hennar fór fram frá
íslenzku lútersku kirkjunni.
Kirkjan var full af fólki og
tár saknaðar og trega blikuðu
í margra augum. Blómin, sem
voru meiri og fegurri en ég
hefi séð við nokkra útför, báru
vott um frábærar vinsældir
Helgu heitinnar og þá' inni-
legu samúð og hluttekningu,
sem fjöldi fólks vildi sýna
hennar hjartkæra eiginmanni,
ungri dóttur þeirra, foreldr-
um, systkinum og tengda-
fólki, sem svo mikils höfðu
misst.
Frú Margret Sigmar David-
son söng einsöng á íslenzku
og ensku og frú Guðlaug Jó-
hannesson lék á orgelið við
útförina og undirritaður flutti
kveðjumál.
Það var vissulega mikill
sorgaratburður, þegar Helga
heitin dó. En sú huggun fylg-
ir kristinni trú, að hér þótt
lífið endi, rís það upp í Drott-
ins dýrðarhendi. Sannarlega
trúum við því, að ekki sé síð-
ur bjart og fagurt, þar sem
Helga heitin lifir nú en var
alls staðar, þar sem hún var
hér í heimi. Héðan fylgdu
henni hjartans innilegar þakk-
ir og sú bæn, að eilífur, góður
Guð blessi hana ævinlega á
hinu ósýnilega landi dýrðar-
innar og vaki yfir ættingjum
hennar og ástvimrm.
E. S. Brynjólfsson
Kappgangan 1888
16. júní 1888 efndi innlent
félag til verðlaunakappgöngu
í einum listigarði bæjarins,
Victoria Park. Stóð hún í tvo
daga og var hlaupið háð í 12
stundir á dag. Þrír íslending-
ar tóku þátt í leik þessum,
Jón Hördal, Magnús Markús-
son skáld og Þórarinn Jóns-
son. Báru íslendingarnir allir
sigur úr býtum. Hlaut Jón
fyrstu verðlaun, Þórarinn
önnur og Magnús þriðju.
Hafði Jón gengið ríflega 101
mílu, Þórarinn 97 og Magnús
tæpar 86.
2. júlí er aftur efnt til ann-
arrar kappgöngu. Þótti ekki
fullreynt með hinni fyrri.
Kepptu 12 menn. Voru þrír
þeirra íslendingar; Jón og
Þórarinn, er fyrr höfðu unn-
ið verðlaun, en Einar Markús-
son sá þriðji. Hinir voru af
ýmsum þjóðum: Skotar Eng-
lendingar, kynblendingar og
einn Rauðskinni. Fyrstu verð-
laun hlaut Jón Hördal sem hið
fyrra sinn og þau þriðju Einar
Markússon. Síðari daginn
rigndi allmikið, svo skeið-
völlurinn varð blautur. Gáf-
ust þá innlendu hlaupagarp-
arnir upp hver af öðrum.
Um fátt mun íslendingum
í gamla daga þótt vænna en
sigur þennan, enda hafði hann
allt aðra og dýpri þýðingu en
hann mun koma íslendingum
fyrir sjónir nú. Þetta er með
því allra fyrsta, sem Islend-
ingar reyna sig við innlenda
menn, við annað en einhverja
þrælavinnu og skítstörfin.
Hér var um leik að ræða,
íþrótt, þar sem þeir reyndust
snjallari. Bretar eru miklir
sportmenn og tíðka íþróttir
undir berum himni manna
mest. Kunnu þeif betur að
meta líkamlegt atgervi, sem
þeir sáu og skildu, en það
andlega, sem þeim gekk illa
að sjá og skildu því minna,
þar sem það birtist oftast í ís-
lenzku umbúðunum.
Héldu nú íslendingar sig-
urhátíð 1. ágúst í Framfara-
félagshúsinu, sem nefnt var
Göngumannagildi. F1 u 11 u
fimm menn ræður, en tvö
skáld ortu kvæði. Þar var Jóni
Hördal afhentur heiðurspen-
ingur úr silfri til minja, með
uphleyptum myndum; öðru
megin fálki og umhverfis
orðin: Frá íslendingum í
Winnipeg til J. J. Hördal, en
hinu megin mynd af göngu-
garpi og þessi orð: Þökk fyrir
kappgönguna 2. júlí 1888.
Mun þetta vera í fyrsta skipti,
sem hrifni og þakklátssemi
íslendinga kemst svo hátt í
Vesturheimi, að þeir sæmi
einn af sínum mönnum med-
alíu fyrir frækilega frammi-
stöðu.
Fleiri kappgöngur voru
þreyttar, og vann Jón Hördal
að lokum þá sæmd að heita:
Göngukappi Kanada.
Vestmenn Þ. Þ. Þ.
um og borgum, nema því aðeins að aðstandendur sendi þær
til blaðsins.
Við viljum nú mælast til við lesendur bjaðsins, að þeir
sendi því slíkar fregnir, sérstaklega viljum við beina þeim
tilmælum til íslenzkra presta, að þeir sendi blaðinu stutt-
orða fregn, þegar þeir mæla yfir moldum íslendings. Blaðið
þarfnast aðstoðar þeirra.