Lögberg-Heimskringla - 16.06.1960, Page 4

Lögberg-Heimskringla - 16.06.1960, Page 4
4 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 16. JÚNI 1960 Lögberg-Heimskringla Published every Thursday by NORTH AMERICAN PUBLISHING CO. LTD. Printed by WALLINGFORD PRESS LTD. 303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Man. Editorj INGIBJÖRG JÓNSSON EDITORIAL BOARD Winnipegi Dr. P. H. T. Thorlakson, chairman, Próf. Haraldur Bessason, vice-chairman, Mrs. Ingibjörg Jónsson, sec’y, Mr. Stefán Einarsson, Dr„ Valdimar J. Eylands, Miss Caroline Gunnarsson, Prof. Thorvaldur Johnson, Mr. Jón K. Laxdal, Prof. Tryggvi J. Oleson, Rev. Philip M. Pétursson. Grand Forks: Dr. Richard Beck Minneapolis: Mr. Valdimar Bjðrnson Montreal: Prof. Áskell Löve Subscription $6.00 per year—payable in advance. TELEPHONE WH. 3-9931 Authorlzed a« Second Clasa Mall. Po«t CMHce Department, Ottaws, Verður Winnipegvatn hagnýtt fyrir raforkukerfið? Eric Stefanson þingmaður í Ottawa fyrir Selkirk-kjör- dæmi sendi blaðinu skýrslu, sem prófessor E. Kuiper flutti nýlega á fundi milliþinganefndar, sem aflar upplýsinga um námur, skóga og vötn landsins. Erindi prófessorsins fjallaði um vandamálin varðandi vötnin í Manitoba, og erum við Mr. Stefanson þakklát fyrir hugulsemina, því lesendur blaðs- ins, sem búsettir eru við Winnipeg- og Manitobavatn mun forvitni á að vita, hvað prófessorinn hafði að segja. Svo sem menn muna, hljóp mikill vöxtur í Manitobavatn árin 1953, 1954 og 1955; vatnið hækkaði um 5 til 6 fet og flæddi inn í húsin umhverfis vatnið, yfir akra, heylönd og beitarlönd og flytja varð gripi burt. Bændur sendu hverja nefndina á fætur annarri á fund stjórnarinnar og fóru fram á að einhverjar ráðstafanir yrðu gerðar til að koma í veg fyrir að þannig gæti hækkað í Manitobavatni í framtíð- inni. — En ef byrjað er að breyta farvegi vatna á einum stað, þá hefir það áhrif á flóð vatna á öðrum stöðum. í stað þess að rannsaka einungis vandamál Manitobavatns, skipaði stjórnin nefnd verkfræðinga Lakes Winnipeg and Manitoba Board til þess að rannsaka alla strauma, er flæða inn og úr Winnipeg-, Manitoba- og Winnipegosisvötnunum, og er Mr. Kuiper aðal verkfræðingurinn í þeirri nefnd. Jafnframt því að rannsaka hvort hægt væri og hagsýnt væri að takmarka flóð þessara vatna, rannsakaði nefndin virkjun vatnsfalla inn eða úr þessum vötnum með það fyrir augum að framleiða raforku. Niðurstaða nefndarinnar var, að við Manitobavatn væru litlir möguleikar til að framleiða raforku, hins vegar væri ef til vill mögulegt í framtíðinni að hafa taumhald á vexti í því vatni, og væri það heppilegt vegna þess, að umhverfis það vatn er allþétt bændabyggð. Hins vegar væri öðru máli að gegna með Winnipegvatn. Próf. Kuiper vék að því, að fram að þessu hefðu orku- verin við Winnipegána aðallega framleitt raforkuna fyrir Winnipegborg og umhverfi, en nú væri búið að virkja vatns- föllin í þeirri á eins mikið og hægt væri, og að eftir 10 ár myndi þörf á helmingi meiri raforku en nú er notuð, og hvaðan ætti að fá hana? Hann minntist á virkjun í Saskatch- ewanánni við Grand Rapids, þar sem vatnstreymið úr Cedar- vatni fellur 120 fet í Winnipegvatn, en í öðru lagi kvað hann Nelson-ána tilvalda til rafvirkjunar. Winnipegvatn er 712 fet fyrir ofan Hudson Bay — eða sjávarmál, og Nelson fallvötnin falla því yfir 700 fet í stöð- ugum straumi norður í Hudsonflóa, og á árbakkanum eru margir staðir, sem eru ágætir fyrir orkuver. Nelsonáin gæti framleitt 8 sinnum meiri raforku en Winnipegáin. En svo sagði Mr. Kuiper, að ef ætti að hagnýta fullkom- lega vatnsstreymið úr Winnipegvatni í Nelsonána til raf- virkjunar, yrði að hækka vatnið hér um bil um 4 fet eða úr 712 fetum upp í 715 eða 716 yfir sjávarmái til þess að geta fulikomlega temprað útstreymið. Þannig yrði Winnipeg- vatn mesti vatnsgeymir í heimi til notkunar fyrir raforku- framleiðslu. Hins vegar sagðist hann vita, að búendum umhverfis Winnipegvatnið myndi engin þægð í því, að vatnið yrði hækk- að þannig; flæða myndi yfir lönd þeirra, akrar eyðilagðir; sumarbústaðir skemmdir eða eyðilagðir o. s. frv. Sagði hann, að eitt hlutverk Lake Winnipeg og Manitoba Board hefði verið að reikna út tap og gróða í sambandi við hækkun vatnsins, og hefði hún komizt að þeirri niðurstöðu, að vegna þess að strjálbyggt væri við strendur Winnipegvatns myndi tap búenda umhverfis vatnið nema um milljón dollara á ári; hins vegar myndi fylkið græða margar milljónir á ári, ef vatnið væri hagnýtt fyrir raforkukerfið og mælti nefndin með því; ef að meðmæli hennar væri tekin til greina, myndi þessi hugmynd sennilega koma til framkvæmda eftir 20 ár. Jónas Gestur Skúlason Fæddur 5. Dáinn 19. Jónas Gestur Skúlason Hann var sonur landnáms- hjónanna Jóns og Guðrúnar Skúlason, er bjuggu 1 Fögru- hlíð í Geysis-byggð í Nýja Is- landi í 30 ár. Bæði þessi mætu landnámshjón voru komin af ágætum húnvetnskum ættum. Jónas ólst upp með foreldrum sínum og átti jafnan heimili með þeim meðan þau lifðu. Hann var búfræðingur að menntun, útskrifaðist frá Manitoba-háskólanum 3. apríl 1925 og hlaut Gov. Gen. Byng Medal við það tækifæri. Hann kvæntist 2. júlí 1932 Hrund, dóttur séra Adams og Sigrún- ar Þorgrímsson. Tóku þau þá strax við jörð og búi foreldra hans og bjuggu þar þangað til Jónas dó. Jónas og Hrund eignuðust fimm mannvænleg börn, er öll hafa náð skóla- menntun. Er elzt þeirra Sig- rún Ada, gift Ronald John Jónasson, hún vinnur við skrifstofustörf í Toronto, þar sem þau hjón eru búsett. Guðrún Jónína, gift Thomas Gordon Mclnnis, hún er skóla- kennari að menntun og hefir kennt í skóla í nokkur ár. Kristín, hún er útskrifuð hjúkrunarkona og vinnur á Winnipeg General Hospial. Hermann Jónas, kvæntur Sig- urbjörgu Lillian Guðmunds- son. Þau ungu hjónin búa í félagi við móður hans í Fögru- hlíð. Thor er að ljúka við mið- skólanám, er til heimilis hjá móður sinni. Öll eru þessi systkini myndarleg að sjá og reyna og munu verða góðir borgarar Kanada eins og for- eldrar þeirra hafa reynzt og annað ættfólk. Hjúskapar- og heimilislíf þeirra Jónasar og Hrund má eflaust telja til fyrirmyndar, samhuga og samtaka í hví- vetna, svo aldrei hljóp snurða á þann þráð, er tengdi þau saman, skapsmunum sínum stilltu þau bæði í hóf og létu vitið ráða, er bæði voru gædd langt fram yfir það, sem al- mennt gerist. Þau virtu hvort annað mikils, og ást þeirra var einlæg og traust. Það er ungum hollt veganesti að al- ast upp við ástríki, samúð og kærleika, sem var svo ráðandi marz 1901 apríl 1959 þáttur í uppeldi barna þeirra. Á heimilinu var ekkert að- hafzt annað en það, sem mið- aði til menningar. Jón heitinn var ágætur félagsmaður, vann hann lúterska söfnuðinum í byggðinni óeigingjarnt og mikið starf, hann var forseti þess félagsskapar um margra ára bil, heill og óskiptur eins og í öllu öðru starfi, er hann tók sér fyrir hendur, því um hann má segja að hann var maður „þéttur á velli og þétt- ur í lund“. Annar félagsskap- ur var það, sem hann beitti sér mikið fyrir og lagði mikla vinnu í, var lestrarfélag byggðarinnar, sem nú er orð- ið fullra 50 ára gamalt, og hef- ir þetta bókasafn verið til húsa á heimili Skúlason fólks- ins alltaf síðan það var stofn- að, að undanteknum 2—3 fyrstu árunum, og þar er það enn. Þetta safn mun telja ná- lægt 1000 bækur. Meðlimir þess munu flestir hafa orðið 20—30 manns og félagsgjald- ið $50.00 á ári. Það eru litlir peningar til bókakaupa og viðhalds á þeim. En félagið átti ýmsa ötula meðlimi, menn og konur, er beittu sér fyrir að setja á stað samkomur til fjáröflunar, einkum voru það leiksýningar, sem þetta félag gekkst fyrir, og heppnuðust furðu vel. Jónas var einn for- göngumannanna í þessari leikstarfsemi og einn allra bezti leikarinn, sem félagið hafði á að skipa. Hann var einkum snjall að leika „kúnst- uga“ karla; fáir munu hafa komizt fram fyrir hann í þeirri list. Veitti hann mörg- um glaða stund með leik sín- um, og munu flestir, er fylgd- ust með leik hans, lengi muna þá ánægju, er hann veitti þeim. Á yngri árum Jónasar var starfandi málfundafélag í byggðinni. Gerðist hann ung- ur meðlimur þess og var allt- af meðan félagið starfaði; hann tók mikinn þátt í kapp- ræðum og varð að lokum bezti kapræðukappi „klúbbs- ins“. Hann setti mál sitt fram skýrt og skipulega, blandað kímni, sem var honum eigin- leg, létt og skemmtileg, þótt alvaran væri ráðandi þáttur- inn í skapgerð hans. Jónas var fremur hlédrægur maður, laus við að láta á sér bera, annars hafði hann bæði hæfileika og menntun til að gerast forustu- maður á ýmsum sviðum, hefði hann viljað beita sér í þá átt. Þann 30. ágúst 1957 var þeim hjónum haldið veglegt og fjölmennt silfurbrúðkaup í samkomuhúsi byggðarinnar. Kom þar glögglega fram sú virðing og vinátta, er þau nutu af samferðafólki innan byggðar og utan. Jónas heitinn var jarðsettur 25. apríl 1959 í grafreit Geyis- byggðar við hlið foreldra sinna og tveggja systkina, Málfríðar Benjamínsson og Skúla G. Skúlason. Hann syrgja: ekkjan, fimm börn þeirra og tvær systur hans, K. L„ Skúlason og Sesselja Böðv- arsson. Jarðarförin var mjög fjöl- menn. Komu þar saman ætt- ingjar og vinir víðs vegar að til að votta hinum látna virð- ingu sína og þakklæti fyrir samfylgdina. Kveðjumál fluttu séra Eric H. Sigmar og séra J. Larson. Svava E. H. Sigmar söng ein- söng af sinni alkunnu prýði. Sá, er þessar línur ritar, vill þakka þér 50 ára vinfengi, drengskap þinn og heilindi, er ávallt kom fram frá þinni hlið í öllum okkar skiptum, sem voru mörg og margþætt. T. B. Kveðjur og árnaðaróskir Frá bls. 1. samhliða ávöxtun hins trúar- lega arfs, sem vitanlega hefir verið meginhlutverk starfsemi þess. Minnugur þess, hver grund- vallar þáttur djúp og sterk guðstrúin var í brjóstum landnemanna íslenzku hér vestan hafsins, hver upp- spretta andans orku, hvert ljós á vegum þeirra hún var þeim í harðri brautryðjenda- baráttu þeirra, vil ég gera að mínum orðum þetta upphafs- erindi úr hinum fögru „Land- nemaljóðum" Einars P. Jóns- sonar, er hann flutti að Gimli 5. ágúst 1935: i Til hans, sem að stjórnar himni og jörð, skal hafin í dag vor þakkar- gjörð; til hans, sem var lífæð land- nemans og leiðarstjarna á vegi hans; til hans, sem að blessar öld af öld hvern upprisumorgun og dánarkvöld. I I I þeim anda flyt ég Kirkju- félaginu hugheilar kveðjur, þakkir og blessunaróskir Þjóðræknisfélagsins. Jafn- framt bið ég þessari blómlegu byggð og ykkur öllum ríku- legrar farsældar um ókomin ár, og kveð ykkur með eftir- farandi ljóðlínum úr leik- þætti séra Sveins Víkings, er hann samdi í tilefni af níu alda afmæli biskupsdóms í Skálholti 1956, en þar lætur hann söguna ávarpa oss, og hún á enn erindi til vor: Feðranna arfur, þeirra störf og stríð stefið skal verða í nýja tímans ljóðum, og þeirra dáðir þróttinn efla og styrkja þetta fagra land að prýða og yrkja.

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.