Lögberg-Heimskringla - 17.11.1960, Page 2

Lögberg-Heimskringla - 17.11.1960, Page 2
2 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 17. NÓVEMBER 1960 Litíð um öxl Útdrættir úr Lögbergi og Heimskringlu frá fyrri árum Valið hafa Dr. Þorvaldur Johnson og Dr. Tryggvi J. Oleson Heimskringla 15. nóv. 1900: Sagt er frá þessum atburð- um: 1. Úrslitum Dominion kosn- inganna 7. nóv. Laurier stjórn- in komst aftur til valda með 125 þingmenn gegn 84 con- servativa. Sir Charles Tupper sagði af sér formennsku Con- servative flokksins. Clifford Sipton bar sigur yfir Hugh John Macdonald í Brandon- kjördæmi. Ekki leizt Heims- kringlu vel á úrslitin eins og sjá má af upphafsorðum rit- stjórnargreinar: Canada stjórnað af fransk-katólskum mönnum og C.P.R. félaginu um næstu fjögur ár. 2. Úrslitum forsetakosninga Bandaríkja. McKinley var kosinn forseti með miklum yfirburðum yfir Bryan. 3. Afleiðingum af ofveðrinu mikla á íslandi 20. sept. Á Ak- ureyri voru 12 af 13 skipum, sem lágu á höfninni, rekin upp í sandinn sunnan á Odd- eyrinni og brotnuðu öll skip- in meira eða minna. Hús fuku eða röskuðust á grunni. Á Arnarfirði fórust 4 skip og 18 menn drukknuðu. Heymissir og skemmdir á þökum torf- húsa urðu miklar víða í sveit- um. Viðvíkjandi sama ofveðrinu er sagt, að gufuskipið Bear, sem var að flytja sauðfé frá Islandi til Englands, „hafði hleypt inn í Stornoway á Suðureyjum illa leikið . . . Áttu 2600 sauðir að hafa verið á skipinu, en það hreppti óveður á leiðinni, svo loka varð öllum hlerum á skipinu, til að verja það sjórennsli. Köfnuðu þá 2000 af sauðun- um. Munu sauðirnir hafa ver- ið að mestu úr Eyjafjarðar- sýslu, og ér Eyfirðingum þetta stór skaði. Sauðir þessir eiga að hafa verið kaupfélags- sauðir, sendir þeim Zöllners & Vídalín, og voru óvátryggðir. Skaðinn fleiri tugir þúsunda." 4. Rodmond P. Roblin varð forsætisráðherra Manitoba í stað Hugh John Macdonald. Úr Lögbergi 17. nóv. 1910: Ungir menn í Fyrsta lút. söfnuði halda sinn annan ár- lega KONZAAR þ. 22., 23. og 224. þ. m. Fyrsta skemmtunin verður algjörlega „musical“. Skemmtunin seinna kvöldið verður hreyfimyndasýning og sú þriðja á að vera algjörlega ÍSLENZK. Þá verða sungnir íslenzkir söngvar af færasta söngfólki, sem völ er á, og ræður fluttar af leiðandi mönnum. Undir eins á eftir hverri samkomu verður til sölu alls konar varningur með gjafaverði (ekkert dýr- ara en 25c). Einnig fara fram margs konar skemmtanir, sýningar o. fl. Þar verður tækifæri að heyra heimsfræga söngmenn svo sem „Melba“ og „Caruso“ í gegnum vél, sem framleiðir tónana eins náttúr- lega og listamaðurinn væri persónulega viðstaddur. Þeir ætla sér að hafa til sölu alla nýjustu söngva og flest það er lýtur að músík. Þessi deild verður undir umsjón manna, sem eru færir í þeirri list að geta spilað söngvana fyrir þá, sem vilja. I aldina deildinni verður til sölu allar tegundir af bezta aldini og brjóstsykri. Sú deild er undir umsjón Mr. E. Goodman og er það nægi- legt meðmæli. Einnig verður á hverju kvöldi hreyfimynda- sýning og „Ulustrated songs“ og margt fleira. Það er ætlun ungu mannanna að þessi Kon- zaar sé fullkomnari og stór- kostlegri en áður. Aðgangur eitt kveld lOc, þrjú kvöld 25c. Aukasýningar 5c og lOc. Kom- ið snemma og hafið með ykk- ur smápeninga, og gleymið ekki börnunum heima. ☆ Úr Lögbergi fyrir 50 árum, 10 .nóvember 1910: Fyrir rúmum tveimur árum lagði landi vor Vilhjálmur Stefánsson í rannsóknarför norður um Eskimóa byggðir í Kanada og hafa litlar fregnir borizt af þeim leiðangri þar til 8. þ. m. Þá barst bréf frá honum til R. W. Borck, form. landrannsókna í Ottawa, og var það dagsett 26. apríl í vor. Segir þar, að Vilhjálmur og félagi hans Anderson, og fimm Eskimóar hafi síðastlið- inn vetur hafzt við á Lyons höfða, sem er einhver nyrzti staður á meginlandi Kanada, og þaðan varð Eskimói að bera bréf hans um mörg hundruð mílur til einhvers bæjar, austarlega í Alaska. Þeir komust oft í hann krapp- an síðastl. vetur, höfðu stund- um ekkert að eta nema húðir af dýrum, lifðu á þeim sam- fleytt í þrjár vikur, en á með- an átu Eskimóar hami þá og dýr, sem þeir höfðu safnað og ætlað náttúrusöfnum. Ander- son og tveir Eskimóar höfðu verið veikir og 10 hundar höfðu drepizt úr harðrétti. Þegar bréfið var ritað, ætl- uðu þeir austur að Corona- tion flóa, um 200 mílur austur af Lyons höfða. Þeir höfðu þá nógar vistir og gátu veitt sér til matar að vild, en skorti hunda. Þeir ætla að hafast við í vetur nálægt Coronation flóa, en ráðgera að halda heimleiðis að sumri og verða komnir hingað næsta haust. ☆ Úr bréfi til ristjóra Lög- bergs frá Jóni Jónssyni frá Sleðbrjót, dagsett 28. okt. 19J0, að Siglunes, P. O. f sumar er skóli frá 1. maí til nóvemberloka. Var keiín- ari sami sem áður, Jóh. Eiríks- son, þar til í septemberbyrjun. Það voru 34 börn í skólanum, þegar flest var. Heilsufar hefir yfir höfuð verið gott . . . Mikið var selt héðan af gripum í haust, og verð heldur hærra en áður. P’yrir kýr, geldar og snemm- bærar mun hafa verið gefið frá 30 til 35 doll., og fyrir ein- staka meira. Fyrir kálfa frá 10 til 15 doll., fyrir fullorðna uxa allt að 50 doll. . . . Kaup- endur voru þeir Skúli Sigfús- son og Benedikt Rafnkelsson frá Álftavatnsbyggð og Buck og Walton frá Stonewall. Mun Skúli Sigfússon hafa keypt flest . . . Vel líkaði mér að sjá Lög- berg hreyfa því, að íslend- ingar ættu að taka myndar- legan þátt í aldarafmæli Jóns Sigurðssonar. ☆ Hr. J. J. Vopni fór á þriðju- daginn austur til að líta eft- ir járnbrautarstöðvum þeim, sem hann er að láta reisa með- fram Grand Truck Pacific brautinni. ☆ „Mikado“, gufuskip herra Stefáns Sigurðssonar, Hnaus- um, strandaði nýlega við Swampy Island í Winnipeg- vatni, og það eigandanum tilfinnanlegt tjón. Samkoma karlakórsins Frá bls. 1. góða líðan. Þá kvaddi formað- ur Karl Sveinsson sér hljóðs, lýsti ánægju sinni og félaga sinna yfir komunni til norður Nýja Islands og viðtökum á allan hátt. Síðan gat hann þess þótt kórinn ætti eigi silf- ur né gull í sjóði, þá vildi hann þó fyrir hönd félaga sinna votta hvað vel er gert og bað eftirgreinda menn og konur að koma fram og þiggja ein- kennismerki kórsins að gjöf: Gunnar Sæmundsson, Sigurð Vopnfjörð, Guttorm J. Gutts- ormsson, Herdísi Eiríksson og Stefaníu Sigurdson. En hún hafði sem fyrr segir fyrst hreyft því að fá kórinn til að koma hingað til Árborgar. Fleiri merki hafði hann ekki meðferðis, en kvaðst þess full- viss, að margir fleiri mundu vera slíkrar viðkenningar verðir. Síðan þakkaði hann ágætlega framreiddan máls- verð, sem væri til sæmdar kvennahóp þeim, er þar stóð að verki, og bað að endingu kórfélaga alla að syngja Fóst- urlandsins Freyja. T. B. Dómar Guðs eru öðruvísi en mánnanna dómar. Einbúinn og ofninn Klökkna lítið kulda-brosin Kæri vinur minn Þarna stendur þú og frosinn Þegar ég kem inn — Hélt þú hefðir heitið þyí Að hlýja upp mitt blóð — Hér er enginn eldur til Og útkulnuð þín glóð. „Von er að ég sé kaldur Því ekki’ er í mig lagt Þú ert þess sjálfur valdur Og það get ég þér sagt Að svo fer það með hina Sem hafa vit og sál En hitta aldrei nokkurn Sem — skilur þeirra mál.“ En þér er alveg sama Því þér er aldrei kalt Og það skal hrynda ama Að nú er í þig lagt Og er þú ferð að tala Þitt elda-tungu-mál Þú ylar mér með þinni — Viðar-kubba-sál. Það væri bara gaman Að vera eins og þú Með viðar-gin að framan Og ösku fyrir trú En kunna þó að tala Og töfra mál við þjóð Sem tímdi’ og vildi leggja Eina spýtu á glóð. Jakob J. Norman Dregst margur með djúpa und, þótt dult fari. ú Dag skal að kvöldi lofa, en mey að morgni. Blaðamaður reyndi eitt sinn að veiða upp úr Shaw, hvert efnið væri í næsta leikriti hans. Skáldið gaf þessar upp- lýsingar: — 11. þætti spyr karlmað- urinn: Elskar þú mig? og kon- an svarar: Ég tilbið þig. í 2. þætti spyr karlmaðurinn líka: Elskar þú mig? og konan svar- ar: Ég tilbið þig. í 3. þætti spyr karlmaðurinn: Elskar þú mig? og konan svarar: Ég til- bið þig. — Afbragð, sagði blaðamað- urinn hálf hikandi, en eru engar atburðaflækjur í leik- ritinu? — Jú. Það er sami karlmað- urinn í öllum þrem þáttunum, en konan er aldrei sú sama. „Vopnahlé" brezkra togara- eigenda á veiðum við Island rann út 12. ágúst. Fram að þeim tíma lofuðu þeir að halda skipum sínum utan 12 mílnanna. — Það hefir vakið athygli á íslandi, að í lávarða- deild brezka þingsins urðu ný- lega umræður um minnkandi afla við strendur Bretlands, og lagði Boothby lávarður til, að Moray-flói og fleiri hrygn- ingarstaðir yrðu friðaðir fyrir botnvörpu. Sagði hann þá ráðstöfun vænlegri til árang- urs en að senda herskip á ís- landsmið. Benti hann einnig á minnkandi síldarafla í suð- urhluta Norðursjávar, sem stafaði af ofveiði með botn- vörpu, sem -kæmi í stað rek- neta. Snúni, Víl-\,~ Tímasparnaður Snúningasparnaður Gulu blað- síðunum þar sem framleiðsluvörur, viðskiptafélög og þjónusta er skráð í stafrófsröð. MANITOBA TELEPHONE SYSTEM

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.