Lögberg-Heimskringla - 06.06.1963, Blaðsíða 7
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 6. JÚNÍ 1963
7
Þegar sorgin ber að dyrum
Hansel, N. Dakota.
Maí 27. 1963.
Laugardaginn 18. maí, var
óvenjulega kaldur og í kjöl-
far hans komu þrír fleiri með
frosti um nætur, sem búist er
við að hafi gert skaða á jarð-
argróðri, sérstaklega á sykur-
rófum.
Upp úr hádeginu þennan á-
minsta laugardag, fóru 2
ungir drengir hér í nágrenn-
inu á reiðhjólum sínum norð-
ur að Tunguánni.
Eitthvað um 12 mílur í
vestur frá Cavalier er brú á
þessari á og þar endaði ferða-
lag drengjanna, Dirk Allan
Johnson, sonur Mr. og Mrs.
Árni D. Johnson, eiga þau
hjón tvö fleiri, dreng Kelly
og stúlku Holly. Dirk var 6
ára gamall. Hinn drengurinn
var Devin Linn Björnson, 10
ára að aldri, sonur Mrs. Doris
Björnson, er hennar fólk
Carlson frá Coneret, smár
bær vestur við Pembína
fjallgarð.
„Svo hleypur æskan unga,
óvissa dauðans leið".
Þannig fór það í þetta sinn,
eins og svo oft, fyrr og síðar,
um þessa stuttu leið þessara
ungu drengja, sem átti að
verða ofurlítill skemmtitúr,
en jafnframt ætluðu þeir að
vera duglegir og færa mömm-
unum sínum fáeina smáfiska
að sjóða í matinn.
Að öllum líkindum hafa
þeir eins og títt er um
drengi á þessum aldri, beitt
óskiptum huga við starf sitt,
en gætt þess miður hver að-
staða þeirra var og þá varð
hið sorglega slys þegar báðir
féllu í ána og drukknuðu.
Er ágiskun margra að yngri
drengurinn hafi dottið fyrst,
og svo hafi sá eldri og sterk-
ari, sem kunni að synda, látið
sig falla á eftir, og með karl-
mennskuhug ætlað að koma
félaga sínum og leikbróður til
bjargar, en báðir voru þar án
nokkurrar hjálpar, og jökul-
kalt vatnið má næstum segja
hefur tekið þessa smáu líkama
í sínar miskunarlausu köldu
greipar, og þar fundust þeir
klukkutíma síðar, þá stóð eftir
beisk og djúp sorgin og sökn-
uðurinn í huga, sál og hjarta
allra nánustu ástvina drengj-
anna ungu, sem urðu dauð-
anum að bráð með svo svip-
legum hætti.
Sérstaklega á móðir eldra
drengsins Mrs. Doris Björnson
um sárt að binda, þar sem
ekki er liðið ár frá því að eig-
inmaður hennar Magnús lézt
aðeins 32 ára gamall. Hann
dó 6. júní síðastliðið ár.
Foreldrar hans eru Mr. og
Mrs. Steini Björnson. Eru
þær systur Mrs. Björnson og
Mrs. O. K. Thorvaldson, Los
Angeler, Calif. — sem margir
þekkja.
Mikil hugfróun er það fyrir
Mrs. Doris Björnson að eiga
eftir efnilega stúlku Cindy 6
ára, og sem nú á alla hennar
móðurást og kærleika, og
þegar hún eldist meir, mun
hún vita „að hann var barn,
svo blessað og gott, hann
bróðir hennar sem hrifinn var
brott, hún þráir hann ekkert
þó — sem barnung mær tek-
ur missirinn létt, en mamma
hennar hugsar jafnt og þétt,
um litla drenginn sem dó.“
A.M.Á.
Fréttir frá íslandi
Framhald frá bls. 5.
Gerðist það, að kona gaf sam-
an hjón — í fyrsta skipti sem
vitað er um í Islandssögunni.
Það var frú Auður Þor-
bergsdóttir, lögfræðingur,
sem nýlega hefur verið skip-
uð fulltrúi yfirborgardómara,
sem gaf hjónin saman, en þau
heita Gylfi Kristjánsson og
Jóhanna Ásta Barker, Báru-
götu 19, Reykjavík.
Mgbl. 22. maí.
☆
Eldsvoði
Hundruð þúsunda króna
tjón varð í gærdag, er eldur
kom upp í gömlu íbúðar- og
verzlunarhúsi að Laugavegi
11, eign Sigurliða Kristjáns-
sonar og Valdimars Þórðar-
sonar. Þar höfðu aðsetur 10
fyrirtæki og einnig var búið
í nokkrum herbergjum. Eld-
urinn kom upp á 3. hæð, sem
eyðilagðist, en einnig urðu
miklar skemmdir á neðri hæð-
um hússins af vatni og reyk.
Allt slökkviliðið í Reykjavík
var kallað út til að berjast
við eldinn.
Mgbl. 2. maí.
Hans G. Andersen
sendiherra í Osló
Hinn 15. júlí næstkomandi
lætur Haraldur Guðmunds-
son, sendiherra, af störfum í
Osló, fyrir aldurs sakir, en
Hans G. Andersen núverandi
sendiherra í Stokkhólmi tek-
ur þá við sendiherrastarfinu
í Osló. Páll Ásgeir Tryggva-
son, sendiráðunautur í Kaup-
mannahöfn, mun veita sendi-
ráðinu í Stokkhólmi forstöðu,
sem sendifulltrúi (Chargé
d’Affaires a.i.) þangað til nýr
ÆTLARÐU
AÐ
FERÐAST?
Hvert sem þú
ferð, spara ég
þ é r peninga
og létti af þér
áhyggjum án
auka kostnað-
ar. Ég er um-
boðsmaður Icelandic Airlines
og allra aðal flug- og skipa-
ferðafélaga; skipulegg ferðir
innanlands og erlendis. Ég
leiðbeini þér varðandi vega-
bréf, visa og hótel, ókeypis, og
með 30 ára reynslu get ég
ábyrgzt ágæta fyrirgreiðslu.
ARTHUR A. ANDERSON
ALL-WAYS TRAVEL BUREAU
315 Hargrave St., Winnipeg 2
Office Ph. WH 2-2535-Res. GL 2-5446
sendiherra verður skipaður
þar.
Mgbl. 15. maí.
☆
Réttindi við Grænland
til 1973
Frá því var skýrt í Kaup-
mannahöfn í kvöld, að stækk-
un fiskveiðilandhelginnar við
Grænland, frá og með 1. júní
þessa árs, mundi ekki hafa
nein áhrif á fiskveiðiréttindi
eftirtalinna þjóða: Noregur,
ísland, Stóra-Bretland, Vest-
ur-Þýzkaland, Frakkland,
Spánn og Portúgal.
Sá tími, sem líður, þar til
lögsagan gengur í fullt gildi,
er þremur árum lengri, en
gert var ráð fyrir í fyrstu. Á
því tímabili munu skip ofan-
greindra þjóða fá að veiða á
svæðinu milli 6 og 12 mílna,
frá strönd Grænlands. Gildir
það fyrirkomulag allt fram
til ársins 1973.
Mgbl. 22. maí.
Vínce Leah recalís
Sports Columnist, The Winnipeg Tribune
I
utstanding
lctories
IN MANITOBA SPORT
SEPT 10TH Niakwa pro, Harold Eldsvig bar 1955 Mani-
toba Open Golf mjög fyrir brjósti. Sem
forseti Manitoba Professional Golfer’s As-
sociation hafði hann reynt í mörg ár að auka
orðstír Open Golf í Winnipeg með því að
safna fé fyrir verðlaun, svo að framúr-
skarandi golfleikarar tækju þátt. Hann
sagði engum, en mun hafa haft von um að
geta sjálfur sigrað á sínum heimavelli, þótt
hann léki gegn fremstu leikurum Canada,
Stan Leonard frá Vancouver og A1 Balding
frá Toronto. Þennan vota og svala laugar-
dag voru Eldsvig og Balding hinn nýji
C.P.G.A. kappi, komnir á 54 „green“. Eldvig
var 15 fet frá boltaholunni en Balding 12.
Bolti Ontario leikarans snerist um holu-
brúninni, en Eldsvig gat sökkt sínum. Þeir
voru jafnir með 221 strokes. Vonglaður
komst Eldsvig í tveim skotum 8 fet að flagg-
inu, en Balding 20 fet. Hann gat ekki ýtt
sínum inn, en Eldsvig sökkti sínum bolta og
sigraði „Open'* sem hann vonaði að tækju
þeim öllum fram.
O’KEEFE BREWING COMPANY
/MANITOBA/LIMITED
No. 4 in a series of Outstanding Victories in Manitoba Sport
M1073