Lögberg-Heimskringla - 10.10.1963, Qupperneq 6
6
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 10. OKTÓBER 1963
GUÐRÚN FRA LUNDI:
ÖLDUFÖLL
Sk&ldsaga
Leitarmennirnir gengu nú í
áttina til Hrólfs. Bensi einn
beið á veginum. Sveinki hljóp
heim að Litlu-Grund til þess
að flytja húsbændum sínum
þær gleðifréttir, að einkason-
urinn væri heill á húfi í fjalli.
Guðni og Vermundur sneru
nú heimeiðis.
„Það er víst óþarfi að vera
að rangla á móti þessum
kjána“, sagði Guðni bónda-
sonur með lítilisvirðingu.
Toni hljóp á undan föður
sínum á móti Hrólfi. Þarna
var hann á ferðinni, hnjótandi
og hrasandi í öðru hverju
spori.
„Hvernig stóð eiginlega á
því, að þú fórst að álpast
þetta?“ spurði Bjarni. „Ég er
alveg hissa á þér, að láta
gabba þig svona herfilega“.
Hrólfur anzaði þessu ekki,
en sagði um leið og hann hitti
Bjarna:
„Þetta er nú meiri blessuð
birtan, sem fylgir þér, Bjarni
minn. Það er lítil von til þess
að maður geti ratað í þessu
myrkri. Mannstu nokkurn
tíma eftir svo kolsvörtu nátt-
myrkri?“
„Já, það held ég. Það er
ekkert svartara myrkrið núna
en vanalega, þegar haustar
að. Aðeins nokkuð dimmt til
jarðarinnar“, svaraði Bjarni.
„Mér heyrðist Bensi greyið
vera að gjalla þarna einhvers
staðar í myrkrinu. Alltaf er
hann jafn stríðinn og ógerð-
arlegur, að láta sér detta í
hug, að þau séu að leita að
mér í bæjarlæknum eins og
hvolpi. Það væri svo sem ekki
ólíklegt. En hræddur er ég
um, að það söngli eitthvað í
tálknunum á henni mömmu
gömlu, þegar ég kem heim úr
túrnum þeim arna. Er ekki
strákasninn hann Bensi far-
inn af veginum? Mig hefur
alltaf langað til þess að þreifa
vel á honum, þeim pilti. En
núna er ég ekki vel fyrir
kallaður, vegna þess, að ég
fékk mér heldur betur í
staupinu. Og þar við bættist
þetta bölvað labb upp á fjall-
ið, En illt er að hugsa til þess,
að stúlkan liggi úti hérna
einhvers staðar í fjallinu eða
kannske við veginn“.
„Það er óþarfi fyrir þig, að
hafa áhyggjur út af því. Hún
sat inni á rúmi í baðstofunni
á Stóru-Grund, þegar við
lögðum af stað þaðan til þess
að leita að þér“, sagði bónd-
inn á Stóru-Grund.
„Ég á bágt með að trúa því,
þar sem Gunnvör sagði mér,
að hún væri þotin út í myrkr-
ið. Mér stóð hreint ekki á
sama, því að hún kenndi mér
um það“, sagði Hrólfur.
„Hún hefur auðvitað snúið
við heim aftur, þegar hún
varð vör við þig á eftir sér“,
sagði Bjarni glaðlega. „Þær
eru slungnar ungu stúlkurnar
nú á dögum. Það er ekki fyrir
alla að sjá við þeim. Það er
áreiðanlega heppilegast að
eltast við þær í dagsbirtunni“.
„Já, mikinn fjandans grikk
gerðu þær mér núna, stúlk-
urnar þínar, Bjarni minn“,
sagði Hrólfur. „Svo er það
hann Bensi skratti. Sá líklega
reynir að halda því á lofti
þessu ferðalagi mínu í kvöld.
Ég skal segja þér eins og er,
Bjarni minn, að mig langar
hreint ekkert til þess að finna
hann í þetta sinn“, sagði hann
svo.
„Við getum farið utar.
Sveinki hlýtur að fara að
koma með klárinn þinn“, sagði
Bjarni.
Bensi kallaði til þeirra, þeg-
ar hann sá Ijósið færast nær:
„Er Hrólfur sterki með alla
stóru limina sína óbrotna?
Anzi farið þið hægt“.
Toni varð fyrir svörum:
„Já, hann er alveg óbrotinn
og hann biður mig að segja
þér að hann ætli að finna þig
seinna í fjöru“.
„Nú, endilega í fjöru!“
kallaði Bensi. „Bara að hann
detti þá ekki í sjóinn. Ég hef
heyrt að hann sé eitthvað
hræddur við hann“.
„Allt veit hann, þetta svín“,
stamaði Hrólfur. „Hann skyldi
finna til hnúana á mér, ef ég
hefði ekki farið að hella í
mig þessu bannsettu brenni-
víni. En það var allt vegna
hennar. Mér hefur aldrei ver-
ið eins innan brjósts til nokk-
urrar konu. Það er bara eins
og logi eldur þar inni, þegar
ég sé hana. Og svo fær hún
þennan fant“.
„O, það eru nú til fleiri
stúlkur, sem gaman er að
horfa á en hún“, sagði Bjarni.
„En engin eins falleg og
hún, eða finnst þér það ekki,
Bjarni minn. Þú ert svo skyn-
samur maður, að þú hlýtur
að sjá það eins og ég“, sagði
Hrólfur.
Mér finnst hún snotur
stúlka“.
„Snotur! Svoleiðis orðalag
er aðeins notað um hross eða
kindur, en ekki um fallegt
kvenfólk“, sagði Hrólfur
nokkuð stuttlega.
„Þær eru til fallegri",
sagði Bjarni.
„Jæja þá. Villtu kannske
gefa mér hana dóttur þína.
Hún getur svo sem heitið
nokkuð snotur stúlka“.
„Hún er krakki ennþá“,
sagði Bjarni. „Og svo velur
hún sér mannsefnið sjálf,
þegar þar að kemur“.
„Alltaf er það sama tregð-
an“, sagði Hrólfur dauflega.
Þá kallaði Bensi hlæjandi
utan úr myrkrinu:
„Ég bíð hérna, ef Iþess skyldi
þurfa með, að hjálpa Hrólfi
sterka á bak á klárinn sinn,
skinninu. Ég heyri, að hestur-
inn er að koma“.
„Ég mun áreiðanlega kom-
ast á bak, án þinnar aðstoðar.
Þú skalt hafa þig heim til
kærustunnar, ómennið þitt.
Við hittumst seinna, þegar
betur stendur á fyrir mér“
kallaði Toni fyrir Hrólf.
Hann stamaði og hikstaði og
ætlaði aldrei að ljúka við það,
sem hann þurfti að segja.
„Ræfilsgreyið! Stendur eitt-
hvað illa á fyrir þér, núna.
Gaztu ekki bjargað brókum
þínum einn þarna uppi í
fjallinu? Þá segi ég bara,
hafðu það betra, þegar við
sjáumst næst“.
Svo hvarf Bensi út í myrkr-
ið.
„Þá mátt þú biðja fyrir þér
lagsmaður“, sagði Hrólfur.
Þá kom Sveinki í ljósmál
með hestinn Hrólfs í taumi.
Rétt á eftir honum kom Her-
dís gamla með lugtarljós í
hendinni.
„Það held ég sé fallegur
svipurinn á þeirri gömlu
núna“, sagði Hrólfur í lægri
róm en áður við Bjarna.
„Þú ert þó líklega ekki
hræddur við kerlinguna“,
sagði Bjarni.
„Nei, það er ég nú ekki. En
það er skap í henni, það get
ég borið um. Það er svona
aðeins að Helgi karlinn fær
það óþvegið hjá henni stund-
um. En hann lætur bara eins
og hann heyri ekki til hennar.
Og stundum sofnar hann und-
ir dembunni. Hann er seigur,
sá karl“.
Herdís hafði ekkert fyrir
því að heilsa nágrönnum sín-
um, þegar hún kom upp á
þjóðveginn. Heldur sneri hún
máli sínu strax til sonar síns:
„Það er svo sem ekkert ó-
myndarlegt, hvernig þú hagar
þér. Þvælast af hestbaki og
síðan ráfa upp í fjall og láta
mig leita að þér með öndina
í hálsinum“.
„Hvað svo sem átti það að
þýða, að fara að leita að mér
í bæjarlæknum. Ég hefði nú
sjálfsagt haft mig upp úr hon-
um, þó að ég hefði farið í
hann“, sagði Hrólfur.
„Hvers konar bölvuð vit-
leysa er þetta í þér. Leita í
bæjarlæknum?“ sagði hún
öskuvond.
„Það var Bensi, sem sagði
það“, sagði Toni.
„Hefur hann verið hér að
flækjast. Þá vona ég að þú
hafir þakkað honum fyrir
síðast, sonur sæll“, sagði hún
talsvert mildari.
„Við skulum nú bara ekki
vera að tala neitt um það,
hvað okkur fór á milli“, sagði
Hrólufr drýgindalega.
„Við getum alltaf talað um
það. Hafðu þig svo í hnakk-
inn. Þetta er nú meira en ég
fæ skilið, að þessi leki, sem
þú hafðir með þér, skuli hafa
svifið svona á þig. Ætli það sé
ekki fólkinu á Stóru-Grund
eitthvað að þakka, hvernig nú
er komið högum þínum. Það
hefur verið svolítið knyttótt
við okkur þetta árið, finnst
mér“, sagði Herdís.
„Við höfum áreiðanlega
ekki verið ykkur lélegri ná-
grannar þetta ár en þau, sem
liðin eru“, sagði Bjarni. „Og
ekki hef ég veitt syni þínum
vín. Hann var svona hreyfur,
þegar lagt var af stað heim-
leiðis".
„En þú hefur þó þurft að
siga þessum geðslega vetrar-
manni þínum á hann“, sagði
hún grimmdarlega.
„Þeir hafa alls ekki sézt, og
þess vegna hefur hann ekki
snert við syni þínum. Ef
Hrólfur segir þér það, er það
bein lýgi“, sagði Bjarni.
Herdís svaraði ekki. Hún
heyrði að Bjarni bóndi var
farinn að reiðast. Það hafði
alltaf verið gott samkomulag
á milli bæjanna. Og það vildi
hún að ekki bréyttist. Hún
sneri því þegjandi heimleiðis,
og gekk við hlið hestsins, sem
Hrólfur sat á. Hann kallaði
kveðjuorð til feðganna og
þakkaði þeim fyrir sig.
Herdís kvaddi ekki.
Hrólfur kom ekki heim að
Stóru-Grund um seinni rétt-
irnar. Og ferðir á milli bæj-
anna lögðust algjörlega niður,
nema hvað Toni og Sveinki
hittust við féð af og til.
Sveinki sagði félaga sínum,
að Herdís þættist vita, að
Gunnvör hefði logið að Hrólfi
um brotthlaup. Siggu til þess
að hafa hann burtu af heim-
ilinu. Herdís ætlaði sér víst
að tala við hana, þegar hún
færi að koma þangað út eftir
til þess að spila við þau. En
Gunnvör ætlaði sér ekki að
verða framar gestur á því
heimili, hvorki á komandi
vetri né síðar. Þá gerði Herdís
henni orð með Sveinka, um
að sig væri farið að langa til
þess að sjá hana. En Gunn-
vör fór hvergi. Svo leið vetur-
inn og nýtt vor var komið
áður en fólk vonaðist bein-
línis eftir því, vegna þess að
veturinn hafði verið fádæma
góður.
NÆRFÖT - SOKKAR - T-SKYRTUR
Canadian Pacific 10th ANNUAL Package Tour to the
Royal lAlinter Fair
CATTLE JUDGING takes place Saturday, Nov.
16th and our tour has been purposely planned
so that those arriving Toronto with the first
group Friday, Nov. 15th can participate in this
highlight.
TORONTO, NOVEMBER 15 - 23,1963
A Choice of Two Departure Dates
Leaving on the Scenic Dorae THE CANADIAN
from stations in Alberta—November 13 and 14;
Saskatchewan and Manitoba — November 14
and 15.
RATES AS LOW AS $220.1 Ofrom Edmonton and
Calgary; $185.50 from Regina and Saskatoon;
$165.95 from Winnipeg. Correspondingly low
fares from other stations.
INCLUDES transportation and berth in air con-
ditioned tourist sleeper on train, all meals in
DELUXE DINING CAR; SEVEN DAYS at
the Royal York Hotel; sightseeing in Toronto
and Niagara Falls; season admission to the
ROYAL; reserved ticket for the Horse Show
dnd R.C.M.P. Musical Ride; gratuities.
Apply ewrly—avoid disappointment. Ask your
Canadian Pacific agent for brochure giving full
details. He wilí gladly complete all arrangements
for your trip. Make your reservations now.
Cuiadúm (fhcific
TRAINS / TRUCKS / SHIPS / KLANE8 / HOTELS / TELECONHUNICATIONS
WORLD'S MOST COMPLETE TRANSPORTATION SYSTEM
V