Lögberg-Heimskringla - 31.10.1963, Side 7
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 31. OKTÓBER 1963
7
Sjóliðinn og Ijónynjan
Við strönd Austur-Indlands
var sjóliði eitt sinn sendur í
land ásamt nokkrum öðrum,
til að fella tré. Þar sem hann
reikaði inn í skóginn í átt
frá félögum sínum, varð l'jón-
ynja á vegi hans og fór hratt.
Það var ógerningur að leggja
á flótta, og ekki var heldur
árennilegt að snúast til varn-
ar. Hann beið þess hvert and-
artak, að ljónynjan rifi hann
á hol, en hann varð meira en
lítið hissa, þegar hún lagðist
flaðrandi við fætur hans! Hún
leit sífellt í áttina að sérstöku
tré, og látbragð hennar benti
til þess, að hún æskti aðstoðar
hans.
Sjóliðinn ákvað að fylgja
henni eftir og kom brátt auga
á stóran apa, sem sat í grein-
um trjánna með tvo ljónsunga
í fanginu. Auðvelt var að geta
sér til, að apinn hafði stolið
ungum Ijónynjunar, og sjó-
liðinn hóf þegar í stað að
höggva upp tréð, sem ekki var
sérlega svert. Ljónynjan
fylgdist á meðan með öllu
framferði apans í trénu, og
þegar tréð féll um koll, tók
hún undir sig stökk, réðst á
apann og tætti hann í sundur.
Á meðan stóð sjóliðinn
skammt frá og skalf eins og
hrísla í vindi. Ljónynjan
snuðraði utan í afkvæmi sín
og sleikti þau; síðan hljóp hún
að lafhræddum sjóliðanum,
sleikti hann og kjassaði og
auðsýndi honum þannig þakk-
læti sitt. Hún greip um fæt-
ur hans, • þrýsti höfði sínu
margsinnis upp að honum,
tók síðan unga sína í ginið,
eins og köttur, og hljóp á
brott með þá.
Náfölur og skjálfandi sneri
sjóliðinn aftur til skips, og
löng stund leið, áður en hann
jafnaði sig svo, að hann gæti
sagt frá því, sem fyrir hann
hafði borið.
Kremlbóndann fer langt
framm úr því sem hjá okkur
á Norðurlöndum var kallað
háðúngarlof, „skammhrós“, og
sá maður talinn réttdræpur
sem slíkt fremdi við höfð-
ingja sinn. Þetta eru í orðsins
fylstu merkingu lofsaungvar
til gjafarans allra góðra hluta,
til Stalíns fjörgjafa lífsins, til
sólarinnar Stalíns . . .“
Mgbl. 9. okt.
Heimilisblaðið.
Ný bók eftir H.K.L.
Framhald frá bls. 5.
urt dæmi þess að hann treysti
manni, utan einum; en þeim
manni trúði hann líka í
blindni. Sá maður var Adolf
Hitler . . .“
Síðar í bókinni ræðir Lax-
ness um skáldið „Dsjambúl af
saltheiðum Kasakstans", sem
hann telur hafa verið „dá-
samlegt óviðjafnanlegt skáld“.
Um hann segir hann m.a. (bls.
280).
„Þeir létu þennan dásam-
lega villimann yrkja heila
sálmabók um Stalín á árun-
um 1936—1938, nokkurskonar
hástilt viðlag við hreinsanirn-
ar miklu . . . Af sálmum
þessum á 160 þétprentuðum
blaðsíðum má læra að elska
Stalín eins og holdtekinn guð
• ■ . Lofdýrð Dsajmbúls um
Hentugt að kaupa þau
Þér getið keypt Canada Savings
Bonds fyrir peninga út í hönd eða
með afborgunum. Notið Payroll
Savings Plan við vinnuna — eða
hjá bönkum, viðurkenndum fé-
sýslumönnum eða lánsfélögum.
Þau fást fyrir $50, $100, $500, $1,000
og $5,000 og takmörkuð við $10,000
á mann. Þau hæfa kaupgetu allra!
Auðvelt að skipta þeim
Þér getið skipt Canada Savings
Bonds hvenær sem er fyrir full-
virði og áfallna vexti. Þegar þér
þarfnist reiðupeninga þurfið þér
ekki annað en að fylla inn útlausn-
ar eyðublaðið á verðbréfinu og
afhenda það banka þínum. Þú
færð peninga þína tafarlaust.
Canada Savings Bonds eru betri
en reiðufé.
Ágæt að geyma þau
Þér fáið vexti á Canada Savings
Bonds 1. nóvember ár hvert —
4fyrstu tvö árin; 5% hvert
næstu 6 árin og 5%% hvert síðustu
4 árin — vextir að meðaltali 5.03%
á ári ef verðbréfin eru geymd þar
til þau falla í gjalddaga. Á 12 árum
með samanlögðu vaxtafé verður
hvert $100 Bond $161.00 virði.