Lögberg-Heimskringla - 07.11.1963, Page 1
feimskrmgla
Stofnað 14. ]an., 1888
Stofnuð 9. sept., 1886
77. ÁRGANGUR
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 7. NÓVEMBER 1963 ntíífp*.
NÚMER 42
Minning:
Þórhallur Magnús Hjólmarsson
1893
1963
Stormurinn gullskýjin burtu
bar,
blikið við hafströnd dreyfði
sér
ég sakna einhvers, sem að
aldrei var
en átti að búa í sálu mér.
J. J. Smári.
Þórhallur M. Hjálmarsson
Þórhallur Magnús Hjálm-
arsson var fæddur nálægt
Akra N.D. 15. jan. 1893, dáinn
í San Diego, Calif. 2. okt. 1963,
sonur Halldórs Hjálmarsson
og Margrétar dóttir Björns
Halldórssonar, eru ættir þess
ar Austfirskar og alkunnar.
Bræður Hal eins og að allir
vinir hans kölluðu hann eru
látnir, Björn og Hjálmar,
systir í Los Angeles, Björg
Cunningham og fósturbróðir
Dóri Hjálmarsson í Phoenix,
Arizona. Þess má geta að
Magnús var skírður af hinu
ástsæla skáldi Matthíasi
Jochumsson í Ameríku för
hans 1893.
Magnús var kvæntur glæsi-
legri ágætis konu Elízabetu
Thorvaldsson, áttu þau einn
son Kenneth, sem að dó 8 ára
að aldri 1939.
Magnús var útskrifaður frá
háskóla í N.D. sem verkfræð-
ingur. Hann var í 2 ár í sjó-
her Bandaríkjanna í fyrri
.heimsstyrjöldinni. Árið 1921
flutti Magnús til Los Angeles
þar sem að hann lagði gjörva
hönd á margt í hans verka-
hring. í 10 ár var hann aðal
framkvæmdarstjóri hernaðar-
varna fyrir Bandaríkjin í
Panama, Puerto Rico og
Guam. Hann ferðaðist ti'l
Kína og Japan sem leiðbein-
andi í sambandi við byggj-
inga vandamál. Þangað til að
hann lét af störfum var hann
byggingjameistari fyrir Gas
og rafmagnsfélagið í San
Diego.
Árið 1960 ferðuðust þau
hjónin mikið um Ameríku og
Evrópu og þar á meðal til ls'
lands, en þar nutu þau sín vel,
ekki síst þar sem að þau bæði
kunnu móðurmál sitt vel.
Magnús var fyrst og fremst
mjög duglegur maður, gæddur
m i k 1 u ímyndunarafli og
þorsta eftir skilyrðum til þess
að auðga anda sinn á allan
hátt. Hann átti gott bókasafn
ekki síst íslenzkt og svo átti
hann flest sem að skrifað var
um Lincoln. Magnús hafði
fengið margar góðar vöggu-
gjafir. Hann var mikilmenni
í þess orðs fylstu merkingu í
sjón sem reynd. Vinum sínum
vildi hann vera allt í öllu. Án
efa aflaði hann sér gulls og
grænna skóga í hinu gullna
ríki Kaliforníu.
Magnús átti ættingja og
vini af 2-3 kynslóðum í öllum
áttum. Alstaðar þar sem að
leiðir hans lágu vissu allir að
hann var íslendingur, og
yissulega var hann í þeim
hópi sem að hefur varpað
ljóma á ísland og íslendinga
í hinum volduga vesturheimi
Skúli G. Bjarnason.
Orðabók Menningarsjóðs
íslenzk orðabók, fyrsta ís-
lenzka orðabókin með íslenzk-
um skýringum, kemur í bóka-
verzlanir í dag. Menningar-
sjóður hefur látið gera þessa
orðabók og er Árni Böðvars-
son aðalhöfundur hennar. í
orðabókinni eiga að vera flest
eða öll íslenzk stofnorð, sem
komið hafa í íslenzkar orða-
bækur, forn og ný, svo og al-
gengustu ' samsetningar. Þar
eru skýrð heiti skáldamáls-
ins, sýnd dæmi um kenning-
ar, skýrð 'hvers konar orð úr
fornum ritum og nýjum, sér-
stök áherzla lögð á að bókin
verði sem notadrýgst öllu
skólafólki og reynt var að
miða við að bókin sé sem að-
gengilegust. Kostnaður við
bókina var um 3Vz millj. kr
og kostar hvert eintak rúmar
7 hundruð krónur.
Ritnefnd orðabókarinnar og
höfundur skýrðu fréttamönn
um fró útkomu hennar í gær
Sumarið 1957 ákvað Mennta^
málaráð að gefa út íslenzka
orðabók handa skólum og al
menningi, og var í fyrstu gert
ráð fyrir að hún yrði minni
en raun hefur orðið á. Þá um
haustið hóf Árni Böðvarsson
vinnu við bókina með hálfum
vinnudegi, en full vinna hófst
svo vorið 1958. Við samningu
bókarinnar hafa verið notaðar
allar tiltækar íslenzkar orða-
bækur og orðasöfn, bæði um
fornmál og nýmál og orðabók
Sigfúsar Blöndals lögð til
grundvallar. Var verkið unnið
húsakynnum Orðabókar Há-
skólans. Kvað ritnefnd það ó-
metanlegan styrk að geta leit-
að til seðlasafna stofnunarinn-
ar um heimildir og starfs-
menn Orðabókar Háskólans
íafa lagt Menningarsjóði lið í
ráðleggingum og leiðbeining-
um. Auk þess hefur verið
leitað til fjölda fólks um upp-
lýsingar um fjarskyldustu
efni, sérfræðinga ýmis konar,
stofnana o.fl. Allan tímann
sem orðabók Menningarsjóðs
hefur verið í smíðum, hafa
tveir eða þrír menn unnið að
staðaldri við hana, og lang-
tímum saman fleiri. Auk
Árna Böðvarssonar hafa þeir
Bjarni Benediktsson frá Hof-
teigi og Helgi Guðmundsson
lengst unnið að undirbúningi
handrits undir prentun.
Við samningu orðabókar-
innar var stöðugt miðað við
að hún yrði sem aðgengileg-
ust, sem fyrr er sagt, og not-
endur þyrftu helzt aldrei að
leita þar án árangurs. Skýr-
ingar eru með ýmsu móti,
beinar lýsingar á merkingum
orða, dæmi um notkun þeirra
eða samheiti. Nýjung er það
í þessari bók, að það er all-
mikið af orðhlutum, sem að
eins eru til sem síðari liðir
samsetninga, svo sem — æri
(góðæri, hallæri), —■ heldinn
(orðheldinn, fastheldinn) o.fl.
einnig skammstafanir, bæði
algengar og sjaldgæfar. Eftir
meðaltali 35 blaðsíðna í bók-
inni munu vera um 65 þús.
uppflettingarorð feitletruð,
sem öll eru skýrð. Auk þess
eru undir feitletruðu orðun-
um víða skýringar á samsett-
um orðum, sem þau eru liður
í. Til dæmis eru orðin raf-
orkumál, raforkumálastjóri
raforkuver útskýrð undir orð-
inu raforka og skáletruð þar.
Slík skáletruð orð munu vera
hátt á 9 þúsund í allri bókinni
og skýringar við meginþorra
þeirra, þannig að þar munu
vera skýringar á rúmlega 70
þús. orðum. Að sjálfsögðu eru
miklu fleiri orð í ísleiizkri
tungu en þetta, þ.e. samsett
orð, en allar almennar merk'
ingar þeirra eiga að vera auð'
skildar eftir þeim skýringum
sem fram koma af samsetn-
ingarliðum þeirra í orðabók-
inni.
Orðabók Menningarsjóðs er
852 bls. að stærð.
Mgbl. 23. okt.
Mrs. Hildur Siqríður Winnemuller
Þessi myndarlega kona út-
skrifaðist frá Hospital for
Mental Diseases, Selkirk,
Training School for Nurses
með Diploma í Pcychiatric
Nursing og Certificate of
Licensed Practical Nurse.
Skólauppsögnin var mjög
hátíðleg og fór fram í Recrea-
tion Hall þeirrar stofnunar.
Hildur er yngsta dóttir Mr.
og Mrs. Wilfred Finnsson,
Hnausa, Man. Hún er fædd og
uppalin í Hnausa byggð og
naut menntunar þar að und-
anskyldu einu ári við River-
ton Collegiate. Útskrifaðist
Daðan með 11. bekkjar stigi í
júní 1960 og byrjaði í septem-
ber það ár nám sitt við Selkirk
spítalann.
Þann 1. júní síðastliðin gift-
ist hún Peter Winnemuller.
Hjónavígslan fór fram í
Fyrstu lútersku kirkju. Séra
Valdimar J. Eylands gifti.
Mrs. Hildur S. Winnemuller
Brúðguminn er sonur Mr. og
Mrs. J. N. Winnemuller, Sel-
kirk, Man. Hann er einnig út-
skrifaður í Psychiatric Nurs-
ing við sömu stofnun. Eru nú
hjónin í starfsliði spítalans.
Heimili þeirra verður í Sel-
kirk.
Fréftir fró íslandi
Úr Tímanum
Fimmtán prestar sækja um
prestaköll í Reykjavík, þar á
meðal tveir, er þjónuðu ís-
lenzku söfnuðunum í Norður
Dakota: séra Ólafur Skúlason
sækjir um Bústaðarpresta-
kall; séra Hjalti Guðmunds-
son sækjir um Nesprestakall.
(29. okt.)
☆
Fyrsta prestvígslan fór fram
í hinni nýju Skálholtskirkju
28. okt., er biskupinn yfir ís-
landi herra Sigurbjörn Ein-
arsson vígði Hrein Hjartarson
til Ólafsvíkurprestakalls og
Lárus Þ. Guðmundsson að
Holti í Önundarfirði.
☆
Bændur kvarta sáran undan
tjóni af völdum gæsa, og hefur
það verið mjög tilfinnanlegt í
Þingeyjarsýslum nú í haust.
Þórarinn bóndi í Laufási
segir:
Ágangur gæsa á nýrækt og
velgróin tún fer svo ört vax-
andi hér í Kelduhverfi, að til
vandræða horfir. Um mánaða-
mótin ágúst og sept. koma
gæsirnar hingað í stórum
breiðum.
Gráðugir gæsaungarnir sjá
fljótt, hver bezt er að bera
niður, því hvanngræn ný-
ræktin við hliðina á gráum
og sölnuðum úthaganum segir
til sín. Svo stórir eru gæsa-
hópar og mikilvirkir, að dæmi
eru til að þeir hafi rótnagað
fleiri dagsláttur af sláttuhæfu
túni á einni viku. (27. okt.)
☆
Vegna mæðuveiki í fjár-
stofni hófst í gær í Borgar-
nesi niðurskurður á sauðfé úr
Hörðudalshreppi, einum hinna
þriggja hreppa Dalasýslu, þar
sem allt sauðfé verður skorið
niður í haust. (25. okt.)
☆
Vegna hækkandi dýrtíðar er
talið að ríkisstjórnin muni
binda kaupgjald í tvo mán-
uði. (31. okt.)
írskt blóð í íslendingum
Alþýðublaðið birti í gær
forystugrein um heimsókn
tveggja Ira. Er þar m.a. kom-
izt að orði á þessa leið:
„Listalíf höfuðborgarinnar
byrjar á þessu hausti með
heimsóknum tveggja íra, ann-
ar til að stjórna írsku meist-
araverki í Þjóðleikhúsinu og
hinn að stjórna Sinfóníu-
hljómsveit íslands. Þetta er
ánægjuleg aukning samskipta
við frændur okkar og vini á
grænu eyjunni í suðri.
Sennilega er mun meira
írskt blóð í íslendingum en
almennt er talið. Ýmislegt er
líkt í fari beggja þjóða, enda
báðar stoltar, sterkar og list-
rænar smáþjóðir. Færi vel á
auknum kynnum og gagn-
kvæmum heimsóknum“.
4. okt.
Forsetinn snæðir
hjá Elísabetu
Ásgeir Ásgeirsson, forseti
íslands, mun snæða hádegis-
verð í Buckinghamhöll, er
hann kemur til Bretlands í
opinbera heimsókn 18. nóvem-
ber.
Dagskrá heimsóknarinnar
verður birt um það bil 10
dögum fyrir komudag for-
setans. Mgbl. 24. okt.