Lögberg-Heimskringla - 07.11.1963, Blaðsíða 2

Lögberg-Heimskringla - 07.11.1963, Blaðsíða 2
2 WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 7. NÓVEMBER 1963 Um uppruna akuryrkju í Vesturheimi Dr. Thorvaldur Johnson: í 30. tölublaði Lögb.-Hkr. var fjallað um uppruna akur- yrkju í Austurlöndum, og var þar sagt, að uppruni akur- yrkju í Vesturheimi hefði verið sjálfstæður og óháður öllu því sem farið hafði fram í Austurlöndum. Að þessi skoðun sé rétt er auðséð ef Indíánar hafa komið, eins og flestir halda, frá Asíu til Alaska yfir Bering sundið og hafi svo, kynslóð eftir kynslóð smáfært sig í suðurátt þangað til, eftir nokkur þúsund ár, að þeir höfðu fært út héruð sín um bæði Norður og Suður Ameríku. Þeir gátu ekki hafa þekkt akuryrkju í heim- skautahéruðunum sem þeir komu frá í Norður Asíu, því þar hafa þeir lifað á líkan hátt og Eskimóar. Jafnvel þó þeir hefðu haft öinhverja þekk- ingu á akuryrkju, þá hefði hún gleymzt á meðan þeir voru að mjaka sér suður yfir heimskautahéruð Norður- Ameríku þar sem akuryrkja var útilokuð. Elztu menjar Indíána (í Tule Springs, Nevada), eftir „radiocarbon“ tímasetningu að dæma, eru um 24,000 ára gamlar. Það er því ljóst, að fyrstu innflytjendur þdirra hafa komið til þessarar álfu löngu áður en ísöld lauk; því það eru aðeins í kringum 10,000 ár síðan seinustu skrið- jöklarnir hurfu. Meðan ís- breiðurnar, sem náðu allt suð- ur í Indiana, Illinöis, og Iowa, voru að bráðna, voru gras- löndin í nánd við þær para- dís fyrir veiðimenn sem lifðu eingöngu á því að veiða risa- vaxin dýr sem þá voru al- geng: ísaldarfílana (mammoth og mastodon), úlfalda og hesta og, nokkru seinna, vís- unda. Þessar skepnur hurfu við lok ísaldar, nema vísund- arnir; tíðarfar breyttist, varð hlýrra og þurrara, og veiði- skapur minnkaði, bæði vegna gereyðingar þessara skepnu- tegunda og af öðrum ástæð- um. Á sléttunum miklu héld- ust þessir lifnaðarhættir og menn fylgdu vísundahjörð- unum, hvar sem þær fóru, langt fram á nítjándu öld. Annarstaðar, og sérstaklega á þurra hálendinu í Suðvestur Bandaríkjunum og Mexico, og í hálendi Andes fjallanna í Suður Ameríku, gat veiði- skapur ekki lengur verið aðal- lífsbjörg fólks. í þessum héruðum varð fólk að snúa sér að plöntuaf- urðum — berjum, fræi, hnot- um, rótum — til að halda í sér lífinu. Þetta hefir í raun og veru, í fyrstu, ekki verið nein nýjung, af því að Indíán- ar hafa alltaf notað slíkt til matvæla, meira eða minna. En nú, þegar veiðiskapur rýrnaði, óx þekking á jurtum og plöntuafurðum þangað til að allt ætilegt var notað til matvæla. Enginn véit hvar eða hvað snemma garðyrkja komst á fót. Um 9000 fyrir Krist voru kvarnir notaðar í Utah, líklega til að mala fræ villtra plantna. En um 5000 fyrir Krist var fólk áreiðan- lega farið að rækta ekki ein- ungis villtar, heldur líka end- urbættar plöntutegundir. Eitt sem bendir til þess að plönt- ur hafi verið ræktaðar lengi er það, að ættfeður flestra þeirra plantna sem Indíánar ræktuðu þekkjast ekki. Villt- ur maís er ekki til, en rækt- aðar tegundir hafa fundizt í Mexico frá því um 5000 fyrir Krist. Þessi maís var mjög ólíkur nútímategundum. öxin voru aðeins tveir eða þrír þumlungar á lengd og hvert fræ var umlukt af hismi. Eftir að þessi maís fannst í hellum í Mexico og New Mexico, fór Dr. P. C. Mangels- dorf, á Harvard háskólanum, að rannsaka uppruna hans, og tókst honum að framleiða samskonar maístegundir með kynblöndun milli „popcorn" og pod corn“, eða eins og hann sjálfur sagði: „mér tókst að framleiða þann lélegasta maís sem nú er til í heimi.“ Rann- sókn hans bendir til þess, að „popcorn“ og „pod corn“ séu frumstæðar tegundir eða, að minnsta kosti, mikið eldri en nútíma maís. „Dent corn“ og „flint corn“, sem nú á dögum eru aðaltegundirnar sem ræktaðar eru, eiga rætur að rekja til breytinga (mutations) og kynblöndunar þessara fornu maístegunda og ýmsra grasa sem voru nógu skyld maís svo að kynblöndun gæti átt sér stað. Náttúran, frekar en Indíánar, hefir gengið frá þessari kynblöndun, en þrátt fyrir það hefði ekkert orðið úr slíku, ef Indíánar hefðu ekki verið nærstaddir til að varðveita allar endurbætur er gerðu maís að betri mat- vælajurt. Næst maís, er kartaflan verðmætasta matarjurt Ind- íána. Ættfeður hennar eru óþekktir, jafnvel þó að plönt- ur náskyldar kartöflum séu til. Nútímakartaflan á upp- runa sinn í Peru og vestur- parti Boliviu og var ræktuð um allt hálendi Andesfjall- anna í Suður-Ameríku þegar Evrópumenn fyrst komu þangað, um lok fimmtándu aldar, en var þá óþekkt í Norður-Ameríku. í Peru er sagt, að Spánverjar hafi talið upp 240 tegundir af ræktuð- um kartöflum. Meðal þeirra voru tegundir sem hæfar voru til ræktunar í heita láglend- inu fyrir vestan og austan fjöllin, og aðrar sem voru nothæfar á hálendinu 15,000 fet yfir sjó og gátu jafnvel þolað frost. Frumstæðustu tegundirnar spruttu bezt í heitasta láglendinu, og er það því skoðun flestra, að kartafl- an hafi átt uppruna sinn þar. Kartöflur spruttu líka bezt á miðjarðarsvæðinu, þar sem dagur og nótt eru jöfn, en seinna, eftir að kartöflur fluttust til suður hluta Chile, urðu þar til tegundir sem not- hæfastar voru fyrir sunnan og norðan miðjarðarbeltið, þar sem dagur var lengri á sumrin. Það eru þessar teg- undir, sem ræktaðar hafa ver- ið í Norður-Ameríku og Evrópu. Maís var útbreiddur víðara en nokkur önnur garðyrkju- planta Indíána, og var rækt- aður frá suðurhluta Suður- Ameríku allt norður að St. Lawrence fljóti og norður með sléttunum allt að landa- mærum Canada. Svipuð var útbreiðsla bauna og ýmsra tegunda af agúrkum og gras- keri (cucumber, squash, pumkin, o. s. frv.) Allar baunategundir nema „broad- beans“ og soyabaunir eru amerískar að uppruna. í Mexico hafa fundizt leifar af baunum sem virðast hafa ver- ið ræktaðar um 4000 fyrir Krist, og Lima baunir voru ræktaðar litlu síðar í Peru. Leifar hafa fundizt í Mexico af graskeri (squash), sem eru jafnvel eldri; frá því um 7000 fyrir Krist. Úr því að maís var líka ræktaður nálægt 4000 fyrir Krist, má sjá það að garðyrkja var komin á fót um það leyti hér og þar í Norður og Suður Ameríku, jafnvel þó hún væri hvergi aðal lífs- björg manna. óvíst er hve- nær fólk fór að lifa einungis af garðyrkju. Prófessor Gordon Willey, einn helzti fræðimaður á þessu sviði heldur, að það hafi átt sér stað um 1500 fyrir Krist í suð- urhluta Mexico og um 1000 fyrir Krist í Peru. Það er einkennilegt, að þetta skyldi hafa fyrst komið fyrir í þess- um tveimur fremur regnlitlu héruðum, í hálendinu í Mex- ico og fjalllendinu í Peru og Boliviu, en þar hefir dýra- veiðí minnkað snemma á dögum og nauðsynin á akur- yrkju orðið meiri en annar- staðar. Af því að úrkoma var fremur lítil, urðu áveitur undirstaða akuryrkju að miklu leyti. Jafnvel við þess- ar erfiðu kringumstæður, margfölduðust matvæli fólks svo, að í suðurhluta Mexico varð fólksfjöldinn meiri en í öllum öðrum hlutum Norður- Ameríku til samans. Þegar Spánverjar komu þangað árið 1519, er sagt að í, Suður- Mexico hafi verið um 1600 þorp og bæir, og stærstur þeirra var Tenochtitlan, þar sem Mexico borgin nú stend- ur. Þar var fólksfjöldi um 300,000. Hingað til hafa aðeins fá- einar garðyrkjujurtir Indíána verið nefndar. 1 Peru er talið að hafi verið um 70 tegundir af ræktuðum plöntum, og í Norður-Ameríku eru 86 rækt- aðar tegundir nefndar, 79 af þeim í Mexico. Ekki voru all- ar þessar tegundir notaðar til matar, því meðal þeirra er tóbak, bómull, „agave“ (sem notað var til framleiðslu áfengis og margs annars), og ýmsar plöntur sem voru not- aðar til meðalagerðar. Bæði tóbak og bómull komu upp- runalega frá Peru eða Boliviu. Tóbakstegundin sem nú er reykt um næstum allan heim var ræktuð einungis í Suður- Ameríku og Vestur-Indía eyjunum þegar Evrópumenn fyrst komu til Vesturheims; önnur tegund var ræktuð í Mexico og ;í austurhlutum Ameríku allt norður að St. Lawrence fljóti. Meðal flestra Indíána var tóbak mjög tengt helgisiðum, og var reykt við flest hátíðahöld, guðrækileg og veraldleg; friðarsamningar voru vanalega helgaðir með því að reykja tóbak. Báðar tegundir af tóbaki voru upp- runar af kynblöndun villtra tegunda. Bómull var ræktuð og ofin úr henni klæði í Peru um 2300 fyrir Krist; og er það einkennilegt, að þó að þessi bómullartegund sé ein sú bezta sem til er, þó eru allar villtar tegundir í Ameríku nærri bómullarlausar. Vef- stólar og vefnaðarlistin virð- ast hafa átt sér sjálfstæðan uppruna í Peru, og hvergi annarstaðar var sú list á eins háu stígi í fornöld og þar. I samanburði við korn- yrkjuaðferðir Evrópumanna og niðja þeirra, ætti akur- yrkja Indíána líklega að vera kölluð garðyrkja. Akrar Ekkert slítur vél bifreiðar- innar í jafnríkum mæli og stöðug ræsing og stöðvun í stuttum ökuferðum. Fylgið þeim ráðum, sem gefin eru í eftirfarandi grein, og þér munuð hafa miklu meiri ánægju af bílnum yðar — og um lengri tíma. Það er dýrara — miðað við hvern aksturskílómetra — að eiga bíl, ef maður notar hann mestmegnis til smærri öku- ferða innanbæjar. Þetta reyn- ir mikið á vélina, og sá bíll, sem notaður er í snatt, þarfn- ast stöðugri umhyggju en hinn, sem e. t. v. fer tífalt lengri leið á þjóðvegum úti. Vélar nýtízku bíla eru gerð- ar fyrir stanzlausa keyrslu a. m. k. 15 kílómetra í hvert sinn. Með því móti vinna þeir bezt og hagkvæmast. En sam- kvæmt athugunum, sem fram hafa farið, er meðalfjarlægð hvers aksturs aðeins fimm til sex kílómetrar, í annarri hverri ökuferð. Og slíku hefur bílvélin ekki gott af. Fyrstu tvær eða þrjár mín- úturnar, sem vélin er í gangi, þeirra voru sjaldan stórir; og er ein ástæðan fyrir. því sú, að Indíánar tömdu aldrei skepnur til dráttar. Plógurinn þekktist ekki; hlújárn þeirra var skerpt stöng með fót- haldi. Rót^þétt grasland var of erfitt að vinna með slíkum verkfærum; og þess vegna kusu þeir oft skógi vaxið land til garðyrkju fremur en frjó- samt sléttuland. En mesti gallinn á akuryrkju Indíána var skortur skepna til drátt- ar. Þeir tömdu aðeins fimm skepnutegundir: lama- og alpaca dýrin, muscóvy-öndina, „turkey“ og „guinea-pig“. Og þessar skepnur voru ekki að neinu gagni til dráttar, og guinea-pig sízt af öllu. Það er auðséð, að það var beint samband á milli akur- yrkju Indíána á annan bóginn og iðnaði, þekkingu og menn- ingu þeirra á hinn. Það var aðeins þar sem akuryrkja varð aðalatvinnu vegur manna, sem fólkið fjölgaði svo að þorp og bæir byggðust, og að menn höfðu næði til að nota ímyndunarafl og hagleik til uppgötvana og annara framkvæmda. Stofnað var til iðnaðar og hann notaður til framleiðslu stórvirkja og listaverka. En það var ógæfa Indíána, að þeir höfðu litla þekkingu á málmum, nema gulli, silfri og kopar, og enga kunnáttu á járnsmíði. Fyrir þessar ástæður meðal annars, féllu ríki og menning þeirra við fyrstu árásir Evrópu- manna. Menning Indíána hef- ir haft tiltölulega lítil áhrif, en enginn ætti að gleyma því, að nærri helmingur af mat- arjurtum heimsins er arfur frá þeim. reynir að vissu leyti mest á hana. Þá tekur hún við mjög mikilli „fitu“ (miklu benzíni, litlu lofti), og þessa þarfnast hún svo lengi sem hún er enn köld. En brennslan sem slík er léleg, kveikingin ójöfn, og leifar af óbrenndu gasi og sóti óhreinka vélina. Þetta kemur ekki mjög að sök, ef bíllinn fær að aka 15—20 kílómetra á eftir með sæmi- legum hraða, því að þá hreins- ar vélin sig nokkurn veginn sjálf. En margir smátúrar, þar sem vélin fær ekki tækifæri til að kólna vel á milli, veita ekki þessa hreinsun. Þið hafið áreiðanlega tekið eftir því stundum, að vatn seitlar út úr blástursrörinu. í hvert sinn, sem vélin eyðir einum lítra af benzíni, blæs hún út 1,25 lítra af vatni — venjulegast í formi ósýnilegr- ar gufu. En áður en hljóð- dunkurinn og blástursrörið hafa hitað sig, þéttist vatnið á köldum málminum, og þá tek- ur ryðið að tæra hann — sé vagninum ekki ekið það lengi, Framhald á bls. 3 Réff meðferð á snatt-bílum

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.