Lögberg-Heimskringla - 07.11.1963, Blaðsíða 3

Lögberg-Heimskringla - 07.11.1963, Blaðsíða 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 7. NÓVEMBER 1963 3 rr-w ......... Litið um öxl Úldrætlir úr Lögbergi og Heimskringlu frá fyrri árum Valið hafa Jóhann G. Jóhannson kennari og dr. Thorvaldur Johnson Lögberg 6. nóv. 1913: Að ári verða liðin 900 ár frá því Brjáns bardagi stóð, þar sem „Brjánn féll ok hélt velli.“ Orrustustaðinn nefna ensk- ir Clontart, en konunginn nefna þeir Brian Boru og er hann frægur í fornkvæðum Ira. Til minningar um atburð- inn á að reisa bautastein á orrustustaðnum og á það að fara saman, að þing Ira verði stofnsett á ný og þessa atburð- ar verður minnst hátíðlega. Norrænir menn börðust við Brján konung undir forustu Sigurðar hin ríka, Hlöðvis- sonar, Orkneyja jarls. Þar börðust íslendingar í liði hans, Þorsteinn Síðu-Hallsson og Brennumenn. ☆ Einmuna góðæri Ekki er guð á góðu sár — Gaktu á hlunna fremstu, Kannske sérðu eill gott ár . . . Ef um sextugt kemstu. (St. G. St.) Það eru um 20 ár síðan stúkan Hekla myndaði sjóð er verja skyldi til hjálpar nauð- stöddum sjúkum meðlimum. Á þessu tímabili hefir stúkan veitt þurfandi fólki svo tug- um hundraða í dollurum skift- ir. ☆ Úr Heimskringlu, 5. nóvember 1903: Hyggin fiskimaður Fyrir 70 árum strandaði stórt seglskip í ofsaveðri við strendur Nova Scotia og öll skipshöfnin drukknaði . . . Síðan hefir strandið legið óáreitt þar á sjávarbotninum. — Fiskimaður að nafni Thomas Brown, sem býr í bænum Seawall, N.S., keypti í sumar strandið af eigendum þess fyrir $5.00. Brown hafði óljósan grun um að gull mikið væri á strandi þessu, því hann .hafði í ungdæmi sínu heyrt mikið um auð skipsins. Hann fékk sér því góðan köfunar- piann, strax að kaupunum gerðum, til að kanna skip- skrokkinn og það sem í hon- um væri. Þetta gekk vel. Yfir 18,000 gulldollarar hafa þegar náðst úr skipinu, og köfunar- maðurinn segir þar enn þá vera eftir full 30 þúsund doll- ars í gulli. Fiskimaður þessi stendur því til að verða vel efnaður, þótt það kosti hann ærið fé að ná gullinu úr skip- dnu. Upprunalega sagan, þeg- ar skipið fórst, var sú, að á því hefði verið $60,000 . . . þér að kynna yður vel, hvað stendur um þetta í viðkom- andi leiðarvísi). Smyrja skal vagninn ná- kvæmlega eftir því sem fyrir er mælt í leiðarvísinum. Kannski er gert ráð fyrir örari smurningu en beinlínis er nauðsynlegt, en þá verður maður heldur ekki fyrir ó- væntu áfalli þegar verst gegn- ir. Látið bifvélavirkjann at- huga hljóðdunkinn og blást- ursrörið, þegar hann hefur vagninn til smurningar. Fái vélin sjaldan tækifæri til að hitna til fulls, eru einmitt þessir hlutar hennar í mikilli ryðhættu, og eitraðar gasteg- undir geta þrýst sér gegnum smáar, næstum ósýnilegar, ryðholur. Látið athuga (ekki aðeins fylla) rafgeyminn mánaðar- lega. Hæfni hans á að vera augljós, þannig að þér vitið nákvæmlega hverju hann getur orkað. Geymirinn hefur einnig gott af því, að hann sé hlaðinn hægt, einu sinni í mánuði yfir veturinn. Þetta er ekki dýrt, og þá getið þér verið öruggur um, að vélin fer í gang um leið og þér snúið kveikjulyklinum — líka á ísköldum vetrarmorgnum. Ef þér þurfið að aka hægt Framhald á bls. 8. Ofí SP 2-9S09—SP 2-9500 Res. SP 4-6733 OPPOSITE MATERNITY HOSPITAL Nell’s Flower Shop 700 NOTRE DAME Wedding Bouquets - Cut Flowers Funcrai Designs - Corsoges Bedding Plants S. L. Stefonson—J U 6-7229 Mrs. Albert J. Johnson ICELANDIC SPOKEN Snatl-bílar Framhald frá bls. 2. að vélin fái vatnið til að gufa upp með jöfnum og varan- legum hita sínum. Rafgeymir bílsins hefur heldur ekki gott -af sí-endur- teknum ræsingum. I hvert sinn sem þér snúið kveiki- lyklinum, eyðir geymirinn auka-afli til ræsisins, sem kemur vélinni í gang. Því næst rykkir vélin í dýnamó- inn, sem endurhleður geym- inn, en engu að síður þarf ca. 15 kílómetra keyrslu, svo að geymirinn fái aftur þá hleðslu, sem hann eyddi í ræsinguna. Aki vagninn aðeins 5—6 kíló- metra í senn, getur geymir- inn aldrei endurhlaðið sig og tæmist því smám saman af rafmagni. Á síðari árum hefur margs- konar endurbætt tækni gert bílana hæfari til hinnar ó- hagkvæmu akstursnotkunar, einkum innanbæjar. Síur vél- arinnar — einkum olíusían — hefur hlotið endurbætur, og ný aukaefni í smurolíunni og benzíninu gera það að verk- um, að vélin helzt hrein. Samt eru margar smá-öku- ferðir sífellt mikil áreynsla fyrir sérhvern bíl, en með- höndli maður bílinn á réttan hátt, getur maður komið í veg fyrir marga af þessum „sjúkdómum“, sem bæjar- keyrslan veldur honum ella. Hér eru nokkrar veigamiklar reglur, sem henta snatt-bíln- um: Það á að skipta oft um olíu. Þegar olían fer gegnum vél- ina, kælir hún, hreinsar og smyr hina hituðu vélarhluta og óhreinkast þar með sjálf. í bíl, sem ekur hægt og aðeins skemmri leið í senn, verður olían fyrr óhrein og vatni blandin en í þeim vagni, sem að staðaldri fær að reyna á sig í lengri tíma, enda þótt hann keyri samanlagt ekki jafn langa leið. Bílstjórinn ætti því — einkum að vetrar- lagi — að skipta um olíu eftir hverja 1500 kílómetra, eða jafnvel oftar. Undir engum kringumstæðum má hann láta líða lengra á milli skipt- anna en leiðbeiningabók öku- manna segir til um. Hafið vakandi auga á olíu- síunni. Sían skilur frá sót og önnur óhreinindi, en venju- leg sía getur ekki unnið vel nema yfir ca. 6500 kílómetra vegalengd, og þarf því að skipta um síu eða hreinsa hana eftir það (ending síunn- ar fer þó eftir því, hvers kon- ar síu þér hafið í vagninum yðar, og þess vegna verðið Lennett Motor Service Operated by MICKEY LENNETT IMPERIAL ESSO PRODUCTS Horgrave & Bonnotyne WINNIPEG 2, MAN. PHONE WHiteholl 3-8157 Crown Trust Company Executors ond Trustees since 1897 offering o full ronge of personal and corporate trust services to Clients. We invite you to call or write us today. No obligatlon 364 Main Street WH 3-3556 C. R. VINCENT, J. A. WAKE, Manager. Estates Manager. Mundy’s Barber Shop 1116 Portage Avenue G. J. JOHNSON, Monoger 4 BARBERS Bezta og vinsælasta rakara- stofan í Winnipeg ASGEIRSON Paints & Wallpapers Ltd. 696 SARGENT AVE. Builders' Hardwore, Paints, Varnishes, Wallpapers SU 3-5967—Phones—SU 3-4322 Benjaminson Construction Co. Ltd. 911 Corydon Avenue GR 5-0498 GENERAL CONTRACTORS Residentiol ond Commercial E. BENJAMINSON, Monoger — Business and Professional Cards —

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.