Lögberg-Heimskringla - 07.11.1963, Síða 7
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 7. NÓVEMBER 1963
7
Kunnu ekki að fara með auð
Skömmu eftir fyrri alheims
styrjöldina, á árinu 1923, sátu
saman eitt kvöld í matsal í
Chicago borg tíu stórmenni
þeirra daga Þetta var ráð-
stefna, til að ræða sameigin-
leg mál, og þá að sjálfsögðu
landsins gagn og nauðsynjar.
Allir voru stórmenni á fjár-
hagslega vísu, flestir milljón-
eramæringar og heimsfrægir.
Mennirnir sem sátu þarna
saman voru þessir. (Allir um
miðaldur):
Charles Schwab, formaður
stærsta járngerðarfélagsins
(U.S. Steel) og þá sagður
hæstlaunaður allra einstakl-
inga.
Samuel Insull, formaður
stærsta og ríkasta rafmagns
fyrirtækisins (Midwest Utili-
ties).
Howard Hopson, formaður
eins stærsta gas félags þeirra
daga.
Arthur Cotton, fjárglæfra-
maður, sem keypti og seldi
korn í stórum stíl. Sagður
vellríkur.
Richard Whitney, formaður
New York Stock Exchange.
Albert Fall, ráðgjafi í
stjórn Hardings forseta, stór-
ríkur.
Jesse Livermore, mjög auð-
ugur „spekulanti“.
Ivar Kreuger, Svenski eld-
spýtna „kóngurinn“.
Tveir aðrir, ónefndir, voru
formenn stórra bankakerfa.
Aldarfjórðungi síðar, árið
1948, tók blaðamaður á sig
þann krók að rekja feril og
afdrif þessara stórmenna, sem
þá voru allir dánir, á þessa
leið:
Schwab, lifði í örbrigð síð-
ustu fimm ár ævinnar, á náð
ættingja.
Insull, dó bláfátækur.
Komst upp að hann hafði far-
ið með svik og pretti.
Hopson, dó á vitfirringa-
hæli.
Cotton, dó í Evrópu, flótta-
maður, allslaus.
Whitney, lifði síðustu áriin
í Sing Sing fangahúsinu.
Fall, sakaður um svik (Tea-
pot Dome Scandal). Dó alls-
laus.
Livermore, sjálfsmorðingi.
Allslaus.
Kreuger, sjálfsmorðingi.
Allslaus.
Bankastjórarnir tveir virð-
ast hafa komist af nokkurn-
vegin slysalaust, en að lík-
indum hafa ekki flutt neinn
auð burt með sér. („Þú ríður
á einum eins og ég, Allra
seinast héðan“, sagði Hjálm-
ar).
Svo mætti virðast, að þess-
ir menn, svo fræknir sem þeir
voru í þeirri list að safna auði,
kunnu ekki of vel að fara með
hann þegar til kastanna kom.
— L. F.
Gjafir í byggingasjóð Hafnar
Vancouver, B.C.
í minningu um
Mrs. Sofia Brynjólfson —
San Francisco
Dr. og Mrs. Richard Beck $10.00
í minningu um
Mr. Hugo Davis —
Vancouver
Mr. og Mrs. S. Grimson 5.00
í minningu um
J. Th. Johnson,
Ingibjörg Johnson,
Bessi Pálsson,
Laurence O. Jónason,
Helga G. Thordarson
Chrisfopher
Jóhann K. Johnson, Hecla 25.00
í minningu um
Mrs. H. J. Helgason —
Foam Lake
Mr. og Mrs. O. W. Jónsson 10.00
í minningu um
W. Mooney — Vancouver
Mrs. Rita Mooney 50.00
í minningu um
Halldóru Josephson
Mr. og Mrs. O. Gunnlaugson 20.00
f minningu um
Sigurð Sigurdson
dáinn af slysi, sepf. 1963.
Frá vinum á Höfn 28.00
Miss Jennie Johnson, Wpg. 10.00
Mrs. Thora Smith,
Vancouver 50.00
Mrs. Elisabeth Björnson,
Höfn 10.00
Mrs. Olive Bergsveinsson 8.00
Mr. G. F. Jónason, Wpg. 50.00
Mr. Mundi Egilson, Vanc. 100.00
Mrs. Ena Abrahamson,
Vancouver 2.00
Mrs. Ingrid Sigurdson,
Vancouver 5.00
Mrs. S. W. McDowell, Höfn 25.00
Mrs. Rebecca Einarson,
Höfn 25.00
Mr. og Mrs. S. Einarson,
Swan River, Man. 200.00
Miss Lily Sigurdson,
Vancouver 5.00
Mrs. Inga Skonseng,
Seattle 10.00
Mrs. Margaret Arngrímson,
Höfn 100.00
Mrs. Emily Thorson, Vanc. 100.00
Mr. og Mrs. John Indridson,
Burnaby 100.00
Mr. Odin Thorton, Vanc. 50.00
Mr. Don Christopherson,
Vancouver 5.00
Mrs. Salome Johnson,
Vancouver 5.00
Mr. Malcolm Campbell,
Vancouver 5.00
Mrs. A. T. Anderson, Vanc. 5.00
Mr. og Mrs. A. C. Orr,
Edmonton 10.00
Mrs. Matta Frederickson,
Vancouver 20.00
Dr. og Mrs. Bjömson,
White Rock 10.00
Mr. Hakon Kristjanson,
Vancouver 5.00
Mrs. Helga Isford, Vanc. 50.00
Mr. og Mrs. K. Frederickson,
Vancouver 10.00
Mr. og Mrs. Victor Anderson,
Vancouver 10.00
Mr. S. H. Scheving, Höfn 10.00
Mr. og Mrs. W. T. Reid,
Vancouver 10.00
Mr. og Mrs. M. S. Bjarnason,
Vancouver 10.00
Mrs. H. J. Troke, Vanc. 10.00
Mr. og Mrs. F. Heslip,
Vancouver 5.00
Mrs. Elisabeth Goodman,
Vancouver 5.00
Mr. og Mrs. A. Thordarson,
Vancouver 2.00
Miss K. Davison, Vanc. 2.00
Mrs. Kristiné Oliver, Vanc. 10.00
Mr. Frank Fredrickson,
Vancouver 10.00
Mrs. M. Hjalmarson, Höfn 5.00
Mr. og Mrs. C. Eyford,
Burnaby 25.00
Mr. og Mrs. Fred Johnson,
Burnaby 5.00
Mr. Norman Kolbeins,
Vancouver 5.00
Mrs. Th. Indridason, Höfn 5.00
Mr. og Mrs. S. E. Johnson,
Burnaby 10.00
Mr. Oscar Gunnlaugson,
Höfn 10.00
Dr. Marteinsson, Vanc. 10.00
Vinur, Vancouver 5.00
Mr. S. Gunnarson, Vanc. 2.00
Mrs. Inga Skaftfeld, Vanc. 10.00
Mr. S. B. Olson, Vanc. 25.00
Mr. og Mrs. G. Stefansson,
Vancouver 20.00
Miss Nan Dall, Vanc. 10.00
Mr. og Mrs. V. Balwinson,
Vancouver 10.00
Mr. og Mrs. Herman
Johnson, Höfn 20.00
Mrs. Helga Jacobson, Vanc. 5.00
Mr. Victor Jacobson, Vanc. 5.00
Miss Anna Eyford, Vanc. 5.00
Mr. og Mrs. Thor Gunnarson, ■
Vancouver 10.00
Mrs. Shefley, Vanc. 5.00
Mr. Th. Hallgrimson, Höfn 20.00
Mr. Herman Isfeld, Höfn 10.00
Mrs. Eliza Bjamason, Höfn 10.00
Mrs. G. J. Gudmundson,
Vancouver 5.00
Mr. Johann Kristjanson,
Höfn 10.00
Mr. W. Stock, Vanc. 10.00
Mr. og Mrs. J. S. Johnson,
Vancouver 50.00
Mr. og Mrs. G. Robertson,
Vancouver 2.00
Mrs. E. Wilson, Burnaby 5.00
Dr. Friðleifson, Vanc. 5.00
Mr. og Mrs. Sam Johnson,
Vancouver 15.00
Mrs. Vala Christopherson,
Ocean Park 5.00
Miss Carrie Christopherson,
Ocean Park 2.00
Mr. og Mrs. Th. Ellison,
Burnaby 20.00
Mr. Magnus Skafel,
Mozart, Sask. 10.00
Ströndin, Vanc. 18.30
Samskot — Afmælis
samsæti 105.71
Mr. og Mrs. S. Grimson,
Vancouver 100.00
Mr. Elías Elíason, Vanc. 100.00
Myndir gefnar heimilinu
Mr. George Johannesson,
White Rock.
Mr. Kristmanson, Prince Rupert.
Mrs. Domoney, Vancouver.
Hjartans þakkir frá stjórnar-
nefndinni.
Nú er verið að fullgera pláss
fyrir átján fleiri manns á heim-
ilinu. Ef nokkur óskar eftir
herbergi er það æskilegt að
skrifa Miss Evelyn Axdal, 6982
Butler, Vancouver 16, B.C., fyrir
desember 31. 1963. — Hún gefur
allar upplýsingar.
Með þakklæti,
Mrs. Emily Thorson — féhirðir
Ste. 103 — 1065 W. llth Ave.
Vancouver 9, B.C.
Mannslát
Maður er nefndur Jón og
bjó fyrir austan. Var hann
skrýtinn í svörum. Eitt sinn
drukknaði maður, Jóni ná-
kominn, við bryggju þar aust-
ur frá, en fáleikar höfðu verið
með Jóni og honum. Er Jón
frétti lát skyldmennis síns,
mælti hann: „Það var manns-
lát, en ekki mannsskaði".
Eitt sinn veiktist barn, sem
Jón átti, mjög hastarlega. Er
læknirinn var að telja meðala-
dropa ofan í barnið mælti Jón:
„Tíu dropar til, deyr eða lifir
ekki“.
Ekki þakkarvert
Guðbrandur í Hólmlátri
ætlaði eitt sinn að ríða frost-
bólgna á á veikum ísi. Brast
ísinn, og komst Guðbrandur
yfir með reiðskjóta sinn við
illan leik, en hafði þó áður
misst svipu sína og ullarvettl-
inga. Komst hann til bæja,
sýlaður og illa til reika, og
bar sig báglega yfir missi sín-
um.
Bónda fannst hann mikla
um of tap sitt og segir:
„Vertu ekki að barma þér
yfir þessu. Þakkaðu guði, að
þú hélzt lífi“.
Guðbrandur tók þeirri á-
minningu ekki illa, en segir
þó:
„Það væri kannski ástæða
til þess, ef ég hefði ekkert
tjón þurft að bíða.“
Sá kviki og sá bratti
Eitt sinn voru á Austfjörð-
um tveir menn, er nefndust
Jón í loftinu og Guðmundur
bratti. Voru þeir ólíkir. Jón
var kvikur á fæti, en Guð-
mundur feitur og fór sér hægt.
Eitt sinn mættust þeir á förn-
um vegi; Jón var þá með
pokaskjatta á bakinu.
Guðmundur segir: „Þú ferð
nú með þetta í loftinu Jón
minn“.
„Það fer nú eftir því hvað
ég verð brattur, svarar Jón.
Var prestur
Sögð er þessi saga af Suður-
nesjum: Roskin kona, nokkuð
fljótfær, var á ferð á förnum
vegi á þeim tíma, sem menn
enn notuðu fæturna til ferða-
laga, mætti ókunnum manni
og spurði hann að heiti. „Ég
heiti Eiríkur“, svaraði maður-
inn. „Nú“, spurði sú aldraða,
„er það þessi andskotans
Eiríkur, sem bakar hráu
brauðin í Keflavík?“ „Nei“,
svaraði maðurinn góðlátlega,
„ég er prestur kallaður á
Útskálum".
NÆRFÖT - SOKKAR - T-SKYRTUR
AUGLÝSI NG
um innköllun hlutabréfa í H.f.
Eimskipafélagi íslands og útgófu
jöfnunarhlutabréfa
Aðalfundur H.f. Eimskipafélags íslands 2. júní 1962
samþykkti að nota heimild þá, sem veitt er í D-lið laga nr.
70, 28. apríl 1962 um tekju- og eignarskatt, um útgáfu
jöfnunarhlutabréfa, og á aukafundi félagsins 29. desember
1962 var þessi samþykkt endanlega staðfest, og samþykktum
félagsins jafnfram breytt í samræmi við þessa ákvörðun.
Með skírskotun til samþykktar þessarar, tilkynnist
hluthöfum félagsins hérmeð, að innköllun hlutabréfanna
er nú hafin, og vestanhafs verður henni hagað í aðalatriðum
á þann hátt sem hér segir:
Hlutabréfin ásamt stofnum af arðmiðaörkum skulu af-
hent hr. Árna G. Eggertson, 209 Bank of Nova Scotia Bldg.,
Portage Avenue and Garry Street, Winnipeg 1, Man. (Ekki
er nóg að afhenda eða senda stofninn af arðmiðaörkinni
einan, heldur verður að afhenda sjálft hlutabréfið).
Þeir hluthafar, sem ekki geta komið því við, að senda
hr. Árna G. Eggertson hlutabréf sín, geta sent honum þau í
ábyrgðarpósti, og sendir hann hlutabréfin síðan áfram til
aðalskrifstofu Eimskipafélagsins í Reykjavík.
Með því að hlutabréfin eru nafnskráð, er nauðsynlegt að
skrifa á bakhlið þeirra greinilegt nafn og heimilisfang þess,
sem hlulabréfin skulu nafnskráð á. Hafi orðið eigendaskipti á
hlutabréfi. skal útfyllt sérstakt eyðublað með tilkynningu
um eigendaskiptin. Eyðublöð þessi má fá hjá hr. Árna G.
Eggertson.
Hluthafar fá kvittun fyrir þeim hlutabréfum, sem þeir
afhenda eða senda hr. Árna G. Eggertson. og verða hin nýju
hlutabréf síðan gefin út og send hluthöfum í ábyrgðarpósti
beint frá skrifslofu Eimskipafélagsins í Reykjavík.
Sé um að ræða mörg hlutabréf í eigu sama hluthafa,
verður aðalreglan sú. að þau verða sameinuð í stærri hluta-
bréfum, nema sérstaklega sé óskað að það verði ekki gert.
Ef um er að ræða skipti á stærri hlutabréfum t.d. milli
erfingja, verða gefin út smærri hlutabréf sé þess óskað, en
þó eigi minna en 250 kr., sem er nafnverð minnstu hluta-
bréfanna. Ef hluthafar óska af einhverjum ástæðum að halda
sínum gömlu hlutabréfum, skal það sérstaklega tekið fram
þegar hlutabréfin eru afhent eða send, en nauðsynlegt er að
afhenda félaginu þau, svo hægt sé að stimpla þau með
ógildingarstimpli, áður en þau eru send hluthafa aftur.
Nú hefur hlutabréf glatast eða eyðilagst á einhvern
hátt, og skal það þá tilkynnt hr. Árna G. Eggertson. Eyðu-
blöð fyrir slíkar tilkynningar má fá hjá honum. — Um út-
gáfu nýrra hlutabréfa í stað glataðra og skemmdra fer eftir
ákvæðum 5. gr. félagssamþykktanna.
Reykjavík, 12. júlí 1963,
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS