Lögberg-Heimskringla - 12.12.1963, Side 1
Högberg; - ^ctmðfermgla
Stofnað 14. jan., 1888 Stofnuð 9. sept., 1886
77. ARGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 12, DESEMBER 1963 NÚMER 47
Dr. Tryggvs J. Oleson
Minning
1912 — 1963
Þótt heiðríkt sé yfir, og bein sýnist braut
og bjart sé til fjalla og hlíða,
fegurstu hlynir í foldarskaut
falla, í straum sinna tíða,
í storminum kalda og stríða.
Og enn féll, sem haustlauf í móðurmald
mætur og traustur hlynur,
er hádegið ljómaði haf og fold.
Af harminum samtíð stynur.
Horfinn er hjartfólginn vinur!
Og fósturjörðin sinn fræga son
frjáls sér að brjósti vefur.
í blundinum liggur nú brostin von:
bjarthærði drengurinn sefur,
og lengur til gulls ei grefur.
Hún metur þær gáfur og lærdóms list,
sem lék þér ungum á tungu,
en mannkosti þína fremst og fyrst,
ég fegursta tel, og mikils mist
við stríð þitt í stormunum þungu.
VÍGSLA SKÁLHOLTSKIRKJU 21. júlí 1963
Fi'ægð þín var sögunnar gróði og gjöf;
gullkofn af iðju þinni,
lýsti sem geisli yfir lönd og höf,
sem lampi í vitundinni:
málverk aldanna í minni.
En frægust var tryggð þín við feðranna mál,
og fögnuður hjartans mestur,
er andann snerti þíns ættlands sál,
við íslenzkan sögulestur.
Þar endaði austur og vestur!
Hvort séint eða snemma er haldið heim,
úr heimkynnum reynslu og trega,
vitundin lifir í verkum þeim,
sem vatinst þú svo prýðilega,
í vísindum mannlífsvega.
S. E. Björnsson.
V "
Demantsbrúðkaup í Vancouver
Á sunnudaginn 1. des. 1963
var talsverð dimm þoka hér í
Vancouver, og ef það er nokk-
uð sem tefur ferðir fólks hér,
þá er það þokan, því það getur
verið hættulegt að vera úti á
strætunum. En það meinti
ekkert þennan sunnudag, því
að þann dag voru hin vinsælu
og vel þekktu hjón Mr. og
Mrs. V. B. Anderson að halda
upp á 60 ára giftingar afmæli
sitt „demants-brúðkaup“, og
var veizlan haldin í nýja neðri
sali elliheimilisins „Hafnar“.
Vissulega var það tilhlýðilegt
að fyrsta samkoman í þessum
sal okkar skyldi einmitt vera
til að heiðra þessi ágætu hjón,
sem nú hafa náð þeim tíma-
mótum sem fáir njóta, að fá
að fylgjast að í 60 ár í blíðu
og stríðu og elskast og virða
hvort annað sem bezt má
vera. Og nú kom vina hópur-
inn, þó þoka væri — og fyllti
stóra salin — til að samgleðj-
ast heiðursgestunum, og óska
þeim til hamingju með dag-
inn. Okkur sem hér eigum
heima var boðið að vera með,
og var það þegið með þökk-
um.
Kl. 2.30 er allir voru komn-
ir í sæti sín, voru Mr. og Mrs.
Anderson leidd inn, og látin
setjast við háborðið, en
Dorothy Lincus spilaði brúð-
ar „march“. Við hlið heiðurs-
gestana voru Mrs. Emily
Thorson, systir Mr. Ander-
son og Victor sonur hans. Mr.
Emil Thorson stýrði samkom-
unni, bauð gesti velkomna,
las upp ótal hamingjuskeyti,
fró æðstu mönnum lands og
stjórnar, og mörgum vinum.
Þá var borið í kring vín í
glösum og síðan drukkin
„skál“ demants brúðhjónanna.
Mr. McDonald M.P. og Óskar
Howardson fluttu ræður og
þökkuðu Andersons hjónun-
um mikið og gott starf á langri
Skálholtskirkja að innan. — Kross yfir altari. Prédikunarstóll Brynjólfs biskups til vinstri.
Hvert sæti skipað. — Biskup talar í kór. Efri myndin: Mannþröng, fyrir framan Skálholts-
kirkju. Skrúðganga presla. Neðri mynd: Pípuorgelið og söngflokkurinn. Dr. Páll ísólfsson
við orgelið. — Gjafmildi og góðvild einkenna jólahátíðina um heim allan. Margir ís-
lendingar vestan hafs munu minnast fyrirhugaðs Skálhollsskóla um hátíðirnar. Undirrit-
aður veitir tillögum í skólasjóð viðtöku. og sendir kvittanir: Grettir E. Eggertsson, 78 Ash
Street, Winnipeg, Manitoba.
Gullbrúðkaup
Þann tuttugasta og þriðja
nóvember síðastliðinn var
þess sérstaklega minnzt, að þá
var hálf öld liðin frá því að
frú Helga og Páll Westdal,
652 Home Street hér í bæ,
héldu brúðkaup sitt.
Afmælisveizla til heiðurs
þeim hjónum var haldin að
heimili sonar þeirra og
tengdadóttur Mr. og Mrs.
Haralds Westdal að 40 Garnet
Bay í Fort Garry.
Þau Páll og Helga eru með
afbrigðum vinmörg eins og
mátti sjá á gullbrúðkaupsdegi
þeirra. Um hálft annað
hundrað ættingja og vina
heimsótti þau þann dag, og
voru sumir langt að komnir.
Af utanbæjargestum má
nefna frú Boggu Björnson,
sem kom alla leið frá Blaine,
Washington, og systur hennar
frú Baldvinson frá Vancouver.
Frú Björnson var brúðarmey
í brúðkaupi þeirra Helgu og
Páls fyrir fimmtíu árum síðan.
Af öðrum gestum, einnig langt
að komnum, má nefna Pál
Guðmundsson frá Leslie,
Sask., sem einnig hafði verið
í brúðkaupi þeirra hjóna fyrir
hálfri öld, Ted Enarson frá
Wynyard og frú Salóme
Walker írá Gladstone.
Frú Helga Westdal er fædd
í Winipeg, dóttir þeirra hjóna
lífs leið. Þá tók Mr. Anderson
til máls og þakkaði fyrir sam-
sætið og ræðurnar. En aðal-
lega var þó ræða hans kær-
leiksríkt þakklæti til konunn-
ar hans, fyrir aðstoð hennar
og hjálp í 60 ár. Þau Ander-
son’s hjónin eru alveg dá-
samlega ungleg, bæði í sjón
og raun. Og vissulega er það
gott að hitta þau svona líka
hress og glöð. Á eftir pró-
graminu voru frambornar
ríkulegar kaffiveitingar,
Mr. og Mrs. Anderson áttu
heima í Winnipeg í mörg ár,
og þar vann Mr. Anderson
hjá Columbia Press í 25 ár
sem prentari. Hann tók drjúg-
an þátt í stjórnmálum og sér-
staklega málum verkalýðsins.
Hann var Alderman í Winni-
peg í 19 ár; og var tvívegis
heiðraður af borgarráði, þegar
hann var útnefndur „Hon-
orary Citizen of Winnipeg",
og afhent „Com. Service
Award.“
Mr. og Mrs. V. B. Anderson
búa á heimili sínu 719 — 63
Ave., E. Vancouver. Þau eiga
þrjá syni, Cecil í Winnipeg,
Victor, Ocean Falls, B.C. og
Claude, Kelowna, B.C.
G. Jóhannesson.
frú Jónínu Margrétar Theo-
dórsdóttur og Sveins Níels-
sonar, bróður prófessors Har-
alds Níelssonar. Frú Helga
fluttist með foreldrum sínum
til Islands, þegar hún var
barn að aldri, en kom aftur
til Winnipeg, sautján ára
gömul.
Páll Westdal er fæddur að
Brú á Jökuldal, sonur hjón-
anna frú önnu Kristrúnar
Gunnlaugsdóttur og Jóns
Jónssonar Westdal. Þannig
voru þeir Páll og Einar heit-
inn Páll ritstjóri Lögbergs
systkinasynir.
Þann 20. nóv. 1913 voru þau
Páll og Helga gefin saman í
hjónaband hér í Winnipeg af
séra Runólfi Marteinssyni.
Þau hjónin bjuggu í Wyn-
yard, Sask. til ársins 1940, en
þá fluttust þau til Winnipeg
og hafa dvalizt þar síðan.
Börn þeirra Páls og frú
Helgu eru: 1) Björgvin Jón
Einar matsmaður fasteigna
hjá fylkisstjórn Manitóba.
Kona Björvins heitir að fyrra
nafni Evelyn; 2) Sveinn Níels-
son Hallgrímur B.S.A. aðstoð-
arframkvæmdastjóri lána-
stofnunar bænda í Manitóba.
Kona Sveins heitir Margrét;
3) Sigríður Jónína Margrét
hjúkrunarkona, brautskráð
frá Háskóla Manitóba í hjúkr-
unarfræðum. Sigríður er gift
prófessor Baldri Stefánsson
Framhald á bls. 7.