Lögberg-Heimskringla - 12.12.1963, Blaðsíða 7
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 12. DESEMBER 1963
7
Lundúnanæiur
Framhald frá bls. 6.
inn hefir náð að snúa Við, fyrir
bregður fjórum mönnum með
,kvensokkagrímur fyrir and-
liti, leiðin suður yfir Svart-
munkabrúna hefir lokast,
næsti möguleiki er að sleppa
suður yfir Kastalabrúna og
hverfa inn í óraflæmi suð-
austurborgarinnar, þar sem
bifreið getur horfið sýnum á
nokkrum mínútum eins og
saumnál í heystakki.
Báðar b'ifreiðarnar hendast
áfram framhjá myntsláttar-
höllinni niður hjá kastalasýk-
inu, sem nú er löngu þurr
grasvöllur, og fram að brú-
arsporðinum. Jagúarinn er
hraðskreiðari, það dregur
sundur með hverri sekúntu.
En réttvísin hefir heppnina
með sér. Lítið vöruskip nálg-
ast brúna óðfluga neðan
Lundúnapollinn og morgun-
vaktin tekur til starfa að
hleypa því upp fljótið. Kast-
alabrúin er gerð úr tveimur
örmum, sem mætast í miðjij
en réisa má upp sinn hvorum
,megin til að hleypa skipum í
gegn. Þverslá brúarsporðsins
hefir fallið og armarnir taka
að rísa hægt og hægt. Græni
Jagúarinn á eftir um tuttugu
metra að brúnni, þegar öku-
maðurinn sér hvað er að ger
ast. Skerandi hemlahljóð
ýskrar á ný. ökumaðurinn
reynir að bakka, taka nýjan
sveig, en lögreglubifreiðin
hefur á svipstundu rennt sér
eins og fleygur upp að hægri
hlið Jagúarsíns og neglt hann
fastann við gangstéttina. Það
svarrar í stáli og rúður brotna,
Þrír glímuklæddir sleppa út
einn er of seinn og gefst upp
í bílnum. Á gangstéttinni
hleypur einn í flasið á lög-
regluþjórii, sem snýr hann
niður á augabragði, en tveir
taka til fótanna áleiðis niður
að hafnarbakkanum. Ungur
lögregluþjónn sveiflar kylfu
sinni leiftursnöggt, hún flýg-
ur gegnum loftið og hittir
a n n a n grímumanninn
hnakkgrófina. Hann lyppast
niður eins og tómur poki
Hinn hverfur inn í hafnar
göturnar með tvo lögreglu
þjóna á hælum sér.
Nú liggur leiðin framhjá
dómshöllinhi Old Bailey. Að
degi til er hér telft um líf og
dauða ár eftir ár, innan þess
arra veggja hafa hundrufi
manna hlotið dauðadóm
Köld ógn virðist greypt í lín
ur þessarrar hallar þótt sólin
skíni á veggi hennar, að
minnsta kosti í hugum þeirra
sem setið hafa þar og hlýtt á
þinzta mannlega dóm. Yfir
koparhvelfingunni g n æ f i
myndastytta, tákn réttlætis
ins með sverð og metaskálar
konumynd, án nokkurrar
kvenlegrar mildi. Fyrsta
skíma dagsbrúnarinnar
austri veldur því að nú kastar
myndastyttan löngum aflög
uðum skugga. I þessu morgun
rökkri er höllin sviplaus og
gi'á, hvelfingin eins og pottur
á hvolfi og myndastyttan < gömlum vana — tuttugu ára
fuglahræða, engin tign, ógn
eða vald.
Og þó á þessi staður eina
bjarta minningu, einn mjúkan
geisla í sögusvartnætti sínu.
Saga dómshallarinnar er stutt,
aðeins síðan 1902. Á þessum
stað stóð fangelsi, allt frá
srettándu öld til 1901. New-
gate fangelsið og aftökustað-
urinn á langa sögu grimmdar,
jjáninga og volæðis. En fyrir
nákvæmlega tvöhundruð og
sextíu árum sat þar inni fangi
vegna baráttu sinnar fyrir
trúfrelsi. Hann slapp með lífi
og kom lengi og mikið við
sögu landsins. Hann skrifaðj
margar bækur, og ein þeirra
slæddist í þýðingu alla leið
porður í Mývatnssveit og
komst á héitum sólskinsdegi
í hendur ungum dreng, sem
sendur var út á tún að snúa
flekk. Drengurinn opnaði bók-
ina, las og las. Flekkurinn
gleymdist og var ekki snúið.
Ekki þótti það búmannslegt,
varð drengur lítið búmanns-
efni. Bókin hét Róbinson
Krúsóe og hér í morgunrökkr-
inu liggja slóðir þeirra saman
á ný, drengsins og ódauðlega
höfundarins, Daniel Defoe.
Frá stöðli dóms og dauða er
örstuttur spölur til hægri
handar yfir að Sléttavelli þar
sem Gimlé líknarinnar var
fyrst reist 1123. Gamli Sankti
Bart —•_ St. Bartholomew’s
Hospital — er forn vinur og
fræðari þess er þetta ritar,
lítt reglulegt þorp eldri og
yngri bygginga kringum stór-
ann húsagarð. Á þessum stað
hefir verið læknað og líknað í
meira en átta aldir, enda elzti
spítali landsins. Hvergi verð-
ur Lundúnaborg heitari • í
sumarhitunum, en við sil
ungapollinn í húsagarðinu,
þar sem altaf er blæjalogn.
Hér er heimur út af fyrir sig,
þar sem líka er barist um líf
og dauða en á annann hátt en
yfir í Old Bailey.
Yfir hvelfingu aðaldyranna
er stytta Henriks áttunda. Til
beggja hliða á framhliðinni
eru minnismerki ýmissa trú-
arlegra píslarvotta, sem
brenndir voru á tímum Maríu
Tudor. Oft var Henrik hvass
á sviþinn, þegar blossarnir
frá þýzku sprengjunum lýstu
upp andlit hans á stríðsárun-
um. Eitt kvöldið brunnu eldar
hringinn í kringum Sankti
Barts. Þá var mikið að gera
á slysavarðstofunni og sumar-
nóttin heit. Nú virðist Henrik
mildur á svipinn, og píslar-
vottarnir sofa í ró. Innan
gluggatjaldanna bregður fyr-
,ir einstöku hjúkrunarkonu á
næturvakt. Snögglega er
kyrrðin rofin. Inni í húsagarð
inum er bifreiðarhreyfill
ræstur, áreiðanlega af eldri
gerðinni. Brátt er dyragrind-
inni lokið upp og út koma
tveir læknastúdentar og ung
hjúkrunarkona í Standardbíl,
sem kominn er til ára sinna
Þetta er „Flugsveitin“ sem fer
í snöggar neyðarvitjanir. Af
tímabil hefir ekki dreyft þetta
viðbragð — spyr gréinarhöf-
undur:
— Er það slys eða fæðing?
— Fæðing.
— Munduð þið nú eftir að
taka bæði töskuna og skjóð-
una?
— Auðvitað.
Bifreiðin rýkur af stað í
áttina til Clerkenwell hverf-
isins, þar sem fátæktin var
átakanlegust fyrir tveimur
áratugum. Það hvín í vélinni,
hljóðdeyfirinn er áreiðanlega
týndur og bifreiðin áratuga
gömul. Það skyldi þó aldrei
vera
1943?
sam'i skrjóðurinn og
Þegar komið er á Covent
Garden markaðinn er klukk-
an fimm, dagur runninn og
markaðurinn að fyllast af
vörubílum. Tugir vörubíla
með blóm. Blóm, blóm all-
staðar. Allir regnbogans litir,
þung angan, margar götur
fullar af blómum. Mest er af
túlipönum, þetta er þeirra
mánuður, hvítir, rauðir, brún-
ir túlipanar og óteljandi önn-
ur litbrigði, stór knippi, fullir
kassar, heilir hlaðar og breið-
ur af túlipönum, brúnum,
hvítum og rauðum.
Kjarnorkustöðvar geta
eimt vatn hafsins
Kjarnorkan getur ekki ein-
ungis orðið verðmætt tillag
til orkuframleiðslu þróunar-
landanna, heldur munu kjarn-
orkustöðvar jafnframt geta
afsaltað sjóvatn með sérstök-
um eimingaraðferðum, og er
ekki að efa að það mun verða
mörgum löndum mjög mikils-
vert. Þessar upplýsingar
komu fram á fundi sérfræð-
inga sem nýlega var haldinn
í Vínarborg að tilhlutan Al-
þ j óðakj arnor kustof unarinnar,
IAEA.
Sérfræðingunum kemur á-
samt um, að bezta aðferðin
til að afsalta sjóvatn með
kjarnorku sé eiming. Það eina
sem nauðsynlegt er til eim-
-ingar er gufa með mjög lág-
um þrýstingi, og hana getur
kjarnorkuofn auðveldlega
framleitt. Hægt er að reisa
imannvirki sem gegni annað
hvort öðru hlutverkinu eða
báðum. Hagkvæmara væri að
gera mannvirki sem gegni
báðum hlutverkum, sé kjam-
orkan nýtt.
Eins og stendur er tækni-
,lega fært að reisa eimingar-
stöð úr einni eða fleiri ein-
ingum sem eimt geta á degi
hverjum 45 milljón vatnslítra
á hverja einingu. Stærri ein-
ingar væru fjárhagslega hag-
kvæmari.
Á það var lögð áherzla, að
enda þótt kjarnorkuofnar séu
nothæfir til eimingar á sjó-
vatni í þágu iðnaðar eða
matreiðslu, þá geri þær að-
ferðir sem nú eru tíðkaðar
eða áætlaðar í náinni framtíð
.ekki fært að framleiða vatn
til áveitu á verði sem hægt
sé að bjóða upp á, jafnvel þó
um mikla framleiðslu væri að
ræða.
Á þurrsvæðum þróunar-
landanna munu vatnsknúnar
stöðvar væntanlega geta
framleitt raforku á lægra
verði en diesel-stöðvar geta
nú boðið upp á. Stjórnarvöld-
in í þessum löndum gætu var-
ið því fé sem þannig sparast
til að greiða niður vatnið sem
hagnýtt er, og eftir því sem
verð vatnsins lækkar verður
hægt að framleiða meira
vatn fyrir þetta fé.
Sérfræðingafundurinn lagði
m.a. til við IAEA, að stuðlað
yrði að því að koma fremur á
fót mannvirkjum fyrir heil
svæði, sem væru að öllu eða
•einhverju leyti eyðimerkur,
en að reisa einstakar stöðvar
fyrir lítil afmörkuð svæði.
J>ar sem umrædd landsvæði
liggja á landamærum, ber að
hvetja hlutaðeigandi ríki til
samstarfs.
Mae, dóttur Josephs og Snjó-
laugar Gillis frá Wynyard.
Gullbrúðhjónunum barst
mikill fjöldi skeyta frá vinum
og vandamönnum á Islandi, í
Bandaríkjunum og í Kanada.
Sérstakar kveðjur fengu þau
frá Lester B. Pearson forsæt-
isráðherra Kandaa, Lieut.
Governor of Manitóba Errick
Wiilis, forsætisráðherra Mani-
tóba Dufferin Roblin og borg-
a r s t j ó r a Winnipegborgar
Stephen Juba.
Gullbrúðkaup er mikill og
merkur áfangi; sem færri ná
en vilja. Vinir frú Helgu og
Páls árna þeim heilla á þess-
um tímamótum. Hálfrar aldar
sambúð hefir verið þeim til
sóma og hamingju eins og
bezt má ráða af börnum og
barnabörnum, sem eru öll hið
mesta efnisfólk.
Börn þeirra Páls og Helgu
gengu öll menntaveginn og
stunduðu háskólanám og
gegna nú öll miklum ábyrgð-
arstöðum í þessu landi. Barna-
börnin eru tólf að tölu, og
munu þau öll staðráðin í að
feta í fótspor foreldra sinna.
H. B.
Gullbrúðkaup
ir ramhald frá bls. 1.
við Manitóbaháskóla; 4) Páll
Haraldur Aðalsteinn Njáll
M. Sc., sérfræðingur í skor-
dýrafræði við rannsóknarstöð
Kanadastjórnar við Manitóba-
háskóla. Haraldur er kvæntur
Póslsijórn Sameinuðu þióð-
anna hefur tilkynnt, að hinn
4. nóvember verði gefið út
nýtt frímerki. Það verður í
flokki frímerkja sem gefin eru
út til minningar um bygging-
ar þar sem Allsherjaþingið
hefur komið saman. Hið nýja
frímerki sýnir aðalstöðvarnar
í New York og hefur tvö verð,
5 cents og 11 cents.
LIQUOR CONTROL COMMISSION
HOLIDAY STORE HOURS
1963
GREATER WINNIPEG
Effective from December 20th to December 23rd, 1963.
11:00 a.m. to 12:00 midnight
(11:30 p.m. Saturday)
11:00 a.m. to 12:00 midnight
(11:30 p.m. Saturday)
11:00 a.m. to 9:00 p.m.
11:00 o.m. to 9:00 p.m.
11:00 o.m. to 9:00 p.m.
11:00 a.m. to 9:00 p.m.
11:00 a.m. to 9:00 p.m.
11:00 a.m. to 9:00 p.m.
11:00 a.m. to 9:00 p.m.
11:00 a.m. to 9:00 p.m.
345 Donald Street
159 Polo Pork Shopping Centre
577 Portage Avenue
423 McMillan Avenue
992 Main Street '
111 Marion Street (St. Boniface)
2549 Portoge Avenue (St. James)
260 Kelvin Street (Elmwood)
1031 McPhillips Street
118 Regent Avenue (Tronscona)
1310 Pembina Highway (Ft. Garry) 11:00 a.m. to 9:00 p.m.
590 St. Marys Road (St. Vitol) 11:00 o.m. to 9:00 p.m.
Gront Park Shopping Centre 11:00 a.m. to 9:00 p.m.
All stores will close at 6:00 p.m. Christmas Eve, Deecmber 24th, ond
ot 8:00 p.m. New Year's Eve December 31 st.
Normal hours will be in effect December 27th, 28th and 30th.
MANITOBA OTHER THAN ABOVE
December 20th to to 23 rd
Stores at Brandon, Portage Lo Prairie, Flin Flon, Dauphin ond The Pas
will remain open from 1 1:00 a.m. to 9:00 p.m.
All other stores to remain open from 1 1:00 a.m. to 6:00 p.m.
December 24th
All stores will close at 6:00 p.m.
December 27th, 28th, 30th, 31 st
Normal hours will be in effect in all stores.
All stores will remain open on any Municipal Holiday during the period
December )7th to December 3)st, inclusive.
The Head Office ond all stores will be closed on December 25th, 26th
and January lst.
(This notice is inserted by the Liquor Control Commission
as o Public Service Announcement)