Lögberg-Heimskringla - 05.02.1970, Side 2
2
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 5. FEBRÚAR 1970
MINNING:
Fréttir fró fslandi
Jónbjörn Gíslason
Fæddur 22. júlí 1879 — Dáinn 29. okí. 1969.
Enn muna einhverjir hér vesian hafs minnasi með söknuði
þessa gáfaða og góða manns og leyfi ég mér þessvegna að
biria þessi minningarorð úr Morgunblaðinu. — I. J.
„Björn Breiðvíkingakappi
fékk ekki enn að berjast fyr-
ir vinqm sínum eða óvinum.“
Guðm. Kamban.
Það virðist hafa einkennt
athafnasama og víðförula ís-
lendinga, jafnvel öðrum frem-
ur, að kringum þá hefur sag-
an alltaf verið að gerast. Þeg-
ar svo langri sögu lýkur,
verður þögnin, sem á eftir
fer, furðu mælsk, en fullviss-
an um, að sögunni sé lokið,
lamandi. En hvenær er sög-
unni lokið? Og hvenær hætt-
ir þögn hennar að hrópa?
Hin langa saga Jónbjörns
Gíslasonar er á enda.
Hún verður ekki rituð hér.
Hún hefur verið skráð á
allt önnur blöð. En fáeinum
minningum um manninn er
mér sem íslendingi skylt að
koma til skila, enda afar ljúft,
þó að sjálfsögðu fjölmargir
aðrir gætu vottað það sama,
austan hafs og vestan.
Jónbjörn er Húnvetningur,
og af traustu fólki kominn.
Hann fylgist vökulum augum
með breytingum þjóðfélags-
ins heiman úr héraði. Hann
sér aldamóta hræringarnar
sem fullþroska maður og
dregur sína lærdóma af
hverju einu. Hann gerir sér
sjálfur ljóst, sem fátítt hefur
verið um almúgamenn þess
tíma, að hann er heimsborg-
ari.
Þessi yfirsýn glepur hann
þó ekki, heldur vekur hjá
honum þjóðlega kennd og
gerir hann að heitari íslend-
ingi.
Til Reykjavíkur kemur
hann 1912 og svipast um.
Hann verður verkstjóri við
hafnargerðina árum saman.
Þá birtist í áþreifanlegum
myndum samúð hans með
lítilmagnanum. Vafálítið hef-
ur sú samúð blandazt þrosk-
uðum skilningi hans á Þjóð-
félagsháttum, og að einhverju
leyti verið skyld hugsjónum
hans. En þó hefur hjálpfýsi
hans við ótalda einstaklinga
verið nærtækari en barátta á
mannfundum og gatnamótum.
Mér er í barnsminni, enda
vel staðfest, að Jónbjöm kom
á hjóli sínu neðan frá höfn
og suður á Grímstaðarholt í
matartíma sínum til þess að
bera föður minn milli rúma
meðan búið var um hann,
daglega í meira en tvö ár.
Þar er þó aðeins einn hlekk-
urinn í keðjunni miklu talinn.
Ég hef síðar verið að rekast
á fólk víða út um land, sem
hefur talið Jónbjörn nokkurs
konar bjargvætt sinn eða
sinna. Hann hafði komið,
hjálpað og horfið.
Framhjá þeirri staðreynd
verður ekki gengið, að Jón-
björn Gíslason hefur verið
þjóðsaga í marga áratugi.
Hafi hann gert sér þess
grein, mætti hann hafa feng-
ið þar einu umbun sína: að
vera kenndur við þá þjóð sem
hann unni.
Því þjóðemi og þjóðleg
verðmæti mat hann öðru og
öðrum fremur. Hann hóf, lík-
lega fyrstur íslendinga, að
safna á hljóðrita íslenzkum
kvæðalögum og skrá ákveðn-
ar vísur, sem lagboða við þau.
Alls safnaði hann á sjötíu og
tvo vaxvalsa kvæðalögum og
röddum fjölmargra kvæða-
manna, á árunum 1921 til
1925. Þetta varð það vega-
nesti, sem hann lagði af stað
með. að heiman, þegar hinn
stóri heimur seiddi hann til
sín.
Á sinni rúmlega þrjátíu ára
avöl í Ameríku, ferðaðist
hann í tómstundum sínum
meðal landa, hvar sem hann
frétti til þeirra, ef þeir skyldu
hafa gaman af að heyra ís-
lenzkustu kveðjuna að heim-
an. 1 þeim ferðum kannaði
hann flest farartæki þeirra
byggðarlaga og oft lagði hann
land undir fót með hljóðrit-
ann og valsakassann á bak-
inu, eftir langa járnbrautar-
ferð, en aldrei glataðist mín-
úta af umsömdum vinnutíma.
Þar héldust í hendur þjóð-
ræknin og skylduræknin.
Heimkominn til íslands aft-
ur, sat hann allan níunda ára-
tuginn á friðarstóli með dótt-
ur sinni, Judit, á Akureyri. Og
enn sem fyrr lagði hann eyr-
un við þeirri sögu sem var
að gerast, dæmdi stundum,
fordæmdi aldrei. Hver nýj-
ungarfregn féll sem tilhöggv-
inri steinn í myndina, sem var
óðum að fullgerast, myndina
af tækniþjóðfélögum í heimi,
þar sem því mannlega og
þjóðlega er ekki gleymt.
Þjóðminjasafnið fær nú
vaxvalsana víðförlu, en hver
tekur við lífsreynslu níræðs
karlmennis, sem ekki fékk að
berjast, en þekkti manninn í
þjóðfélaginu, gegnum kreppu
og viðreisn, styrjaldir og auð?
Kjarian Hjálmarsson.
VIKING GIFT SHOP
698 SELKIRK AVENUE
WINNIPEG
Imporfers of Wooden
Shoes and Scandinavian
Articles
Business Hours Monday to
Thursday:
1 p.m. to 6 p.m.
Friday—1 p.m. to 9 p.m.
Saturday—9 a.m. to 6 p.m.
Framhald af bls. 1.
nefndar, má og telja til heim-
ildarsagna: Signý, lýsir bar-
áttu ungrar stúlku í erfiðu
námi í framandi landi, Leyni-
göngin, stríði ungs manns við
þungan sjúkdóm.
Tíminn 20. des.
RITSTJÓRASKIPTI VIÐ
AKUREYRARBLÖÐ
Tveir ritstjórar Akureyrar-
blaða létu af störfum nú um
áramótin, Herbert Guðmunds-
son við Íslending — ísafold
og Þorsteinn Jónatansson við
Verkamanninn. Við ritstjórn
íslendings — Isafold hefur
tekið Sæmundur Guðvinsson,
sem áður var blaðamaður við
það blað, en enginn hefur enn
tekið við ritstjóm Verka-
mannsins.
Mgbl. 10. jan.
TILNEFNA VERÐLAUNA-
HAFA
NORÐURLANDARÁÐS
Næstkomandi miðvikudag
verður kunngert í Osló hver
h 1 ý t u r bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs að þessu
sinni, en þau verða afhent á
f u n d i Norðurlandaráðs í
Reykjavík í febrúar. Fulltrú-
ar íslands í dómnefndinni eru
prófessor Steingrímur J. Þor-
steinsson og Helgi Sæmunds-
son og fara þeir utan til fund-
ar dómnefndarinnar í Osló.
Hvert land hefur leyfi til að
leggja fram 2 bækur, en ekki
er gefið upp hvaða bækur það
eru fyrr en tilkynnt hefur
verið hver verðlaunin hlýtur.
Mgbl. 9. jan.
HITAVEITAN STENDUR
SIG VEL í FROSTUNUM
Hitaveitan í Reykjavík hef-
ur staðið sig vel í frostunum
að undanförnu og ekki verið
um neinn vatnsskort að ræða,
nema þar sem um staðbundn-
ar eða tímabundnar bilanir
hefur verið að ræða og hefur
raunar verið mjög lítið um
þær að undanfömu. Þetta
sagði Jóhannes Zoega, hita-
veitustjóri, í stuttu viðtali við
Mbl. í gær. Slík bilun kom
fram á vegamótum Holtaveg-
ar og Seljavegar og var þar
um stíflun að ræða, sem gert
var við sl. föstudag.
Jóhannes Zoega kvað á-
stæðu til að minna fólk á, að
einmitt á svona kuldaskeið-
um væri hætta á óþarfa
vatnseyðslu, sem ekki kæmi
húsinu að gagni. Þess vegna
væri nauðsynlegt að fylgjast
með vatnseyðslunni á mælun-
um og ef hún væri óeðlilega
mikil að láft'a þá framkvæma
lagfæringar. Reynslan sýndi,
að einmitt eftir mikil frost
fengju menn háa hitaveitu-
reikninga vegna þess að ekki
hefði verið fylgzt sem skyldi
með vatnseyðslunni.
Mgbl. 1 i. jan.
FLEN SUBÓLEFNI
VARPAÐ ÚR LOFTI
J
Inflúensan herjar mjög á
Norðlendinga um þ e s s a r
mundir. Nú fyrir skemmstu
hefur hún tekið að stinga sér
niður í tólafsfirði, en þar hef-
ur héraðslæknirinn átt í mikl-
um vandræðum með að verða
sér út um bóluefni, að sögn
fréttaritara, þar sem Múlinn
hefur verið ófær.
Hann greip til þess ráðs í
fyrradag að fá Tryggva Helga
son til að fljúga yfir á sjúkra
flugvél sinni og varpa niður
bóluefni. Var síðan strax tek-
ið til við að bólusetja sjúkl-
inga, gamalt fólk og aðra þá,
sem sízt mega við því að fá
flensuna.
Héraðslæknirinn hefur enn
fremur farið fram á, að sem
minnst verði af skemmtana-
haldi í bænum á næstunni,
og barnaskólanum hefur ver-
ið lokað.
Mgbl. 10. jan.
ICELAND REVIEW
Níu síður -í nýútkomnu hefti
af Iceland Review eru helg-
aðar Armstrong tunglfara og
félögum hans, og er mest af
því myndir sem ekki hafa
birzt áður, af þessum fræg-
asta manni veraldar, og voru
teknar hér á landi sumarið
1967. Litmyndimar eru tekn-
ar af Ingimundi Magnússyni,
og sýria þær Armstrong í öðru
umhverfi en blaðalesendur
hafa átt að venjast á undan-
fömum mánuðum.
Svo sem kunnugt er, þá kom
Armstrong hingað, ásamt öðr-
um geimfömm, og var koma
hans hingað í beinu sambandi
við sjálfa tunglgönguna, sem
fræg verður í veraldarsög-
unni. Af öðru fróðlegu efni í
blaðinu, — bæði fyrir útlend-
inga og Islendinga — má
nefna grein og myndir af
listaverkum hjónanna Krist-
ínar og Jóhanns Eyfells
myndaseríu frá sjávarsíðunni,
eftir hinn iðna áhugaljós-
myndara Freddy Laustsen,
sem er annars trésmiður að
atvinnu hér. Elsa E. Guðjóns-
son skrifar um útsaum í
Þjóðminjasafninu, og margar
fallegar myndir fylgja með.
Þá er smásaga eftir Svövu
Jakobsdóttur, og nefnist hún
á ensku: The childrens moth-
er. Tryggvi Þorfinnss., skóla-
stjóri gefur nokkrar upp-
skriftir að síldarréttum, og
grein er eftir Magnús Magn-
ússon um Shetlandseyjar og
teikningar eru frá grásleppu-
vertíðinni í Skerjafirði eftir
teiknarann Winfrid Weller.
Þá fylgir ritinu fréttaannáll
með myndum, auk þess sem
föstu þættirnir eru á sínum
stað í blaðinu. Ritið fæst í
bókaverzlunum.
Tímiíiíi 23. dc-s.
ÁRNAGARÐUR
AFHENTUR
EIGENDUNUM
Árnagarður, hús Handrita-
stofnunar Islands og Háskóla
Íslands, var í gær afhentur
eigendum við hátíðlega at-
höfn, sem fram fór í húsinu
sjálfu. Formaður bygginga-
nefndar hússins, dr. Jóhann-
es Nordal seðlabankastjóri,
afhenti menntamálaráðherra
fyrir hönd ríkisins þar húsið,
en ráðherrann afhenti það
eigendunum, og tóku þeir dr.
Einar lól. Sveinsson prófessor,
forstöðumaður Handritastofn-
unarinnar og Magnús Már
Lárusson, prófessor, rektor
Háskólans, við húsinu fyrir
hönd stofnana sinna.
Ámagarður hefur verið í
smíðum síðan vorið 1967, og
er húsið 829 ferm. á fjórum
hæðum, samtals um 11300
rúmm. Kostnaður við húsið
er um nokkrar milljónir kr..
en endanlegar tölur liggja þó
enn ekki fyrir. Húsið skiptist
þannig milli eigenda, að Hand-
ritastofnunin hefur 30% húss-
ins, en Háskólinn 70%, og eru
í hluta Háskólans bæði
kennslustofur og vinnuher-
bergi fyrir kennara; einnig
hefur Orðabók Háskólans ver-
ið komið fyrir í Árnagarði.
Með athöfninni í gær hef-
ur Árnagarður verið tekinn
formlega til notkunar, en
starfsemin hefur þó þegar
hafizt í hluta hússins, en öðr-
um hlutum þess er enn ekki
að full lokið.
SKYMASTER SÓTTI
GRÆNLANDS-
SJÚKLINGINN
1 gær tókst að fljúga norð-
ur til Daneborg á Austur-
Grænlandi, þar sem sjúkling-
ur með botnlangabólgu, Jens
Riis yfirmaður Sirius seðla-
deildarinnar, beið eftir að
komast til uppskurðar á
sjúkrahúsi í Reykjavík.
Dakota flugvél var búin að
bíða tilbúin í nokkra daga, en
veðurskilyrði voru slæm í
Daneborg, sem er norður und-
ir 75. breiddarbug, en hún
hefði þurft að millilenda í
Meistaravík. I gær birti svo
upp í Daneborg, en Meistara-
víkurflugvöllur lokaðist.
Þá var fengin Skymaster-
flugvél frá Landhelgisgæzl-
unni, sem hefur lengra flug-
þol og getur flogið þessa
löngu leið án viðkomu. Lagði
hún af stað kl. 9.55 í gærmorg-
un. Flugstjóri er Ingimar
Sveinbjörnsson. Og með flug-
vélinni fór Dr. Friðrik Ein-
arsson, læknir og hjúkrunar-
kona.
I Daneborg var bjart veður
og 16 stiga frost. Og var búið
að merkja 1800 m langa braut
á hafísinn, sem er yfir 50 sm
þykkur. Lendingarbrautin var
lýst með luktum.
Mgbl. 11. j&n>