Lögberg-Heimskringla - 05.02.1970, Page 4

Lögberg-Heimskringla - 05.02.1970, Page 4
4 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 5. FEBRÚAR 1970 Lögberg-Heimskringla Publiihad •▼•rr Thursday by NORTH AMERICAN PUBLISHING CO. LTD. Prinled by WALLINGFORD PRESS LTD 303 r*nn*dy SirMi, Winnipeg 2, Man Editor: INGIBJÖRG JÓNSSON President, Jakob F. Kristjansson; Vice-Presidint S. Aleck Thorarinson; Secretary, Dr. L. Slflurdson; Treosurer, K Wllhelm Johonnson (OITORIAL BOARD Wismpei: Prof. Moroldur Beeeoeon, choirmon; Dr. P. M. T. Thorlokson, Dr. Voldlmor J. Eylonds, Corollne Gunnorseon, Dr. Thorvoldur Johneon, Rev. Phlllip M. Petureeon Veeceever: Gudloug Johonneeeon, Bogi Bjornoson. Mineeepolls: Hon. Voldimor Bjomeon. Vlcterle, B.C.: Dr. Richord Beck. Iceland: Birgir Thor locius, Steindor Steindoreeon, Rev. Robort Jock Subacriplion $6 00 por year — payabl* in advanc*. TELEPHONE 943-993' "Second closs moil registrotion number 1667". Ávarp forseta íslands, herra Kristjóns Eldjárns, á nýársdag Góðir íslendingar. í dag óskum vér hver öðr- um gleðilegs nýárs. Sú kveðja er söm og jöfn, en hitt er sí- breytilegt, í hverjum hug, glöðum eða döprum, hún er fram borin hverju sinni. Um síðast liðin áramót var venju fremur þungt yfir þjóðlífinu á landi hér, og ollu því óhag- stæð umskipti í þjóðarbú- skapnum. Svo er fyrir að þakka, að yfirleitt er nú létt- ara yfir, þegar á heildina er litið, en í sumum byggðarlög- um ala menn þó enn ugg í brjósti vegna óvissrar afkomu, stopullar atvinnu, ónógra fóð- urbirgða. Og ekki breytist það lífsins lögmál, að ýmsir vor á meðal eigi um sárt að binda á þessum degi sem öðrum. En kveðja vor á fyrsta degi árs- ins, óskin um gleðilegt nýjár, er óháð því sem yfir hefur gengið. Hún felur í sér fögn- uð og þökk fyrir að fá enn að lifa, starfa og vona, fá enn að t a k a þátt í samfylgd manna á þessari vegferð, sem lífið er. I dag þökkum vér hver öðr- um fyrir liðið ár. Sjálfur hef ég, eins og áður, margt að þakka landsmönnum, þótt ég geti ekki notað þessa stuttu stund til að telja það upp. Það er eigi að síður vel í minui geymt. Aðeins eitt skal nefnt, því að þar á mikill fjöldi manna hlut að máli. Ég þakka af alhug viðtökur þær, sem kona mín og ég fengum á kynnisför okkar um Norðlend- ingafjórðung í sumar sem leið, fyrstu för okkar af því tagi. Slíkar ferðir og þau kynni sem af þeim leiðir, styrkja for- setann til þess hlutverks, sem hans er í þjóðlífinu, en þó er það gildi þeirra mest, ef þær megna að efla almenna til- finningu fyrir einingu þjóðar- innar í bæ og byggð. Allt það sem okkur var gert til gleði og sóma í þessari ferð, tek ég sem vott um góðan hug fólks- ins í landinu til þess embætt- is, sem ekki hvað sízt er tákn þjóðlegrar samstöðu. Margar myndir úr þessari kynnisför ber fyrir hugskots- sjónir, myndir lands og lýðs, gamalkunnar að vísu, en þó alltaf nýjar eftir því hvernig ljós á þær fellur. Við vorum á Skagaströnd, og þar blasti við Spákonufell, tignarlegt og sérkennilegt fjall. Leiðsögu- maður lét svo um mælt, að þarna væri hið heilaga fjall byggðarinnar, s e m heima- mönnum þætti öllum fjöllum betra, vættur byggðarinnar. Við vorum í Kelduhverfi, og þar féllu orð á þá leið, að fornar fjallvættir. Óttar og Eilífur, vektu yfir byggðum. Það er grunnt á slíkum hug- myndum m e ð a 1 íslendinga. Þetta er £orn arfur, sem aldrei hefur alveg fyrnzt yfir. For- feður vorir á landnámsjörð hafa kjörið sum fjöll öðrum fremur til að vera bústaðir landvætta. Og það er skáld- leg og hrífandi hugsun, að goðmögn í náttúrunnar ríki vaki yfir hverri byggð, og á- hrifamikið tákn um samskipti mannanna við landið, sem er fóstra þeirra og lífgjafi. • Eitt sinn var svo kveðið: íslands óhamingju verður allt að vopni, eldur úr iðrum þess, ár úr fjöllum, breiðum byggð- um eyða. Upp er komin á vor- um dögum rík tilfinning fyr- ir því, að afstýra beri slíkri óhamingju héðan í frá. Vér getum ekki vænzt þess, að landvættir séu oss hollar, nema vér séum einnig þeim hollir og bústöðum þeirra. Á því ári, sem nú er liðið, hafa margir orðið til þess að hvetja þjóðina til að vaka yfir land- inu, vernda það fyrir spjöll- um af mannanna hendi og eyðandi öflum þess sjálfs, til að fara vel með landið, bæta fyrir yfirsjónir liðinni tíma og gæta varúðar í öllu, sem varanleg áhrif hefur á nátt- úru landsins. Á alþjóðaþingi hafa íslenzk- ir fulltrúar borið fram tillögu um vemdun fiskistofna haf- svæðanna gegn ört vaxandi mengun hafsins, í endurskoð- un eru lög um náttúruvernd og síðasta Alþingi samþykkti lög um verndun þeirra manna- minja í landinu, sem vér vilj- um að verði hluti af þjóðar- arfrnum á komandi tímum. Þetta er allt af sömu rót runn- ið. Lífsbarátlan og framvindan krefjast þess jafnan, að ein- hverju verði fórnað, sem þó væri gagn og gaman að eiga, en háski er enginn á ferðum, ef sá skilningur er vakandi og almennur, að fara beri nær- gætnum höndum um það land, sem ekki aðeins er heimkynni vort, heldur einnig þeirra niðja vorra, sem eftir oss koma. Þá verður þeim vanda, sem oft vill rísa, þegar um er að ræða vemdun lands og minja, ráðið til eins farsælla lykta og auðið er. En það er fleira en eldur úr iðrum jarðar og ár úr fjöll- um, sem eytt hefur byggðum á íslandi, þótt á annan hátt sé. Þjóðflutningarnir innan- lands og þó einkum straumur fólks til suðvesturhluta lands- ins, til höfuðborgarsvæðisins, á undan gengnum áratugum, hefur komið hart niður á mörgum byggðarlögum, skilið sumar byggðir eftir mannlaus- ar, en valdið öðrum miklum efnahagslegum og félagsleg- um vanda, svo að ekki sé minnzt á persónulegan sárs- auka, sem þessari þróun hef- ur fylgt. Þetta hefur verið tímabil, sem kenna má öðrum þræði við, eyðingu lands, þótt það hafi vissulega einnig verið tími gróandi og nýs landnáms á mörgum sviðum. Vér höfum horft á merkilega sögu gerast. Meðan þjóðin var meira en helmingi fámennari en hún er nú, varð hún að gjörnýta hvern slægan blett í landinu til þess að sjá sér farborða. En nú standa forn höfuðból mannlaus og frægar verstöðv- ar auðar og yfirgefnar. Hin nýju hlutföll í skipt- ingu byggðarinnar hafa haft gífurleg áhrif á allt þjóðlífið. Víst voru hinar fornu félags- heildir smáar og veikar, en þær fundu eigi að síður til sín sem mikilvægra eininga með sinn tilgang og verksvið í því gaimla jafnvægi, sem aldalöng reynsla bændaþjóð- félagsins hafði skapað. Brott- streymi fólksins hefur svipt mörg byggðarlög meira en litlu af sínum fyrri metnaði. En samtímis höfum vér byggt stóra höfuðborg. Henn- ar metnaður er að sama skapi mikill og það með réttu, því að hún er fjölbreytileg mið- stöð þjóðlífsins alls. En marg- ir hafa óttazt þessa þróun, sagt að vér værum að verða borgríki eða líkt þjóðfélaginu við mannveru með of stórt höfuð en að því skapi veika og valta fætur. Ýmsum hefur fundizt sem þjóðin smækkaði með samdrætti byggðanna, þrátt fyrir síhækkandi heild- artölu landsmanna, og þjóðfé- lagið verða tilbrigðasnauðara og svipminna en áður. Þess ber þó vel að minnast, að önnur fjölbreytni, sem nauðsynlegt er í nútíma þjóð- félagi, hefur komið í staðinn. En oss nægir ekki í þessu efni annað hvort — eða, heldur verðum vér að hafa hvort tveggja. Vér verðum að hafa efni á að eiga nokkuð stóra höfuðborg, sem er miðstöð menningar og alls þjóðlífs og þjóðar þar með landsmönnum öllum. En jafnframt verðum vér vissulega að byggja land- ið. Ekki af óraunhæfri róm- antík eða sögulegri tilfinn- ingasemi, þó að slíkar kennd- ir séu skiljanlegar, heldur til þess að nytja iífsskilyrðin skynsamlega efla möguleika til lífs og búsetu og auk fjöl- breytni í athöfn og mannlífi. Og það er ástæða til að vona, að undanhald byggðanna hafi runnið sitt skeið á enda og jákvætt viðnám sé hafið. Bændabyggðir munu senni- lega ekki dragast mikið sam- an úr þessu, en kaupstaðir og sjávarþorp, þétthýli lands- byggðarinnar, mun eflast. Ég kom aftur úr ferð minni í sumar efldur að trú á framtíð þeirra byggðarlaga, sem við f ó r u m um. Sveitarstjórnir höfðu víða þurft að takast á við óvenjulegan vanda sökum árferðis, en einmitt í því ljósi var sérstakt fagnaðarefni að heyra forystumenn lýsa þeim áformum, sem þeir hafa á prjónum, þeim framtíðarsýn- um, sem þeir sjá hver á sín- um stað. Vonleysi og uppgjöf er mönnum fjarri, heldur er einmitt verið að búast fyrir af bjartsýni og áhuga, menn setja metnað sinn í að byggð- in haldi velli og geti boðið upp á nútímalífskjör, enda mun fólkið þá hvergi fara, heldur búa sér f r a m t í ð í heimahögum. Þróun byggðanna í landinu er sannarlega eitt af sjálfstæð- ismálum þjóðarinnar, og það er vel, að þetta mál er nú mjög til umræðu og rann- sóknar og skilningur vakandi á mikilvægi þess. Vér skulum trúa því, að Spákonan, Óttar og Eilífur og aðrar vættir lands muni enn halda vernd- arhendi yfir byggðum sínum og að fólkinu í landinu verði að trú sinni á það sem þær tákna í huga þess. Byggðir landsins eru ein- inigar hver í sínu lagi og verða að huga að sínu, en mynda þó allar eina heild, sem er hið íslenzka þjóðfélag. Svo er og um þjóðina sjálfa, að hún er sjálfstæð einnig, en þó um leið hluti af stórri heild, sem er samfélag þjóða. Samskipti vor við umheiminn eru marg- breytileg og sívirk, þar mun ætíð þurfa að hyggja vel til átta, og þaðan mun löngum verða tíðindasamt. Nú eru þau tíðindi nýjust og mest, sem öllum eru kunn, að Alþingi hefur heimilað rík- isstjórninni að gerast, fyrir íslands hönd, aðili að Frí- verzlunarsamtökum Evrópu. Umræður og ágreiningur um þetta mál hafa sett svip sinn á síðustu mánuði liðins árs. Slíkt er að vonum, þar sem um óvenjulegt stórmál er að |ræða, og engum er sú fram- sýni gefin, að hann kunni fyr- ir að sjá allar afleiðingar þess skrefs, sem fyrirhugað er að stíga. En að tekinni ákvörðun, hljóta allir þjóðhollir menn að óska þess og vona og vinna að því heils hugar, að hún leiði til alls þess góðs fyrir þjóðina, sem efni standa frek- ast til, eins og alltaf þegar ný viðhorf skapast. Víðtækt samstarf þjóða í milli er sýnilega í örum vexti, sá er nú straumur tímans, og hann fer ekki fram hjá garði neins. í þeim straumi hljótum vér íslendingar að keppa að því að halda vorum hlut, keppa að lífskjörum sambæri- legum við þau, sem nágrann- ar vorir njóta, keppa að því að halda þjóðmenningu vorri og sjálfstæði fullu. Þær þjóðir, sem vér göng- um nú væntanlega til nýs samstarfs við, eru sumar gam- alreyndir grannar vorir, með- al þeirra þjóðirnar á Norður- | löndum. Það er sú þjóðarheild og menningarsvæði, sem vér eigum greiðasta leið að og oss er eðlilegast og hollast að halla oss að. í því samneyti njótum vér vor bezt andspæn- is fjölmennari þ j ó ð u m og þjóðaheildum. Þess þurfum vér með, slíkt er engin minnk- un að viðurkenna, enda þurfa Norðurlönd e i n n i g íslands með, svo sem oft er tekið fram af forustumönnum á sviði stjórnmála og menningarmála. íslandi hefur tekizt að vinna sér virðingu á þingi allra þjóða, fámennisþjóð flestum fámennari, sem getur fyrir þá sök ekki komizt til mikilla á- hrifa. En vissulega væri nor- ræna þjóðaheildin fátæklegri án íslands. í þeirri heild get- ur þjóð vor örugglega haldið virðingu sinni fullri og þá um leið sjálfsvirðingu. En sjálfs- virðing er lífsnauðsyn, og hennar ber vel að gæta, þegar samstarf og samneyti við aðr- ar þjóðir verður sífellt nán- ara og vér sjáum sjálfa oss æ skýrar í samanburði við aðrar þjóðir. Oft og mikið er talað um íslenzka menningu og áhyggj- ur látnar í ljós hennar vegna. Að vísu er orðið menning og í þrengri skilningi íslenzk menning, eitt af þessum hættulegu orðum, sem leiða til hugsanaruglings, v e g n a þess hversu trauðlega það verður skilgreint og óskýrt af- mörkuð merking þess. Án bók- mennta engin íslenzk menn- ing, heyrðist nýlega sagt, og það er rétt að því leyti að bókmenntaarfurinn og a 111 sem honum er tengt, meðal annars íslenzk tunga, er óað- skiljanlegur hluti íslenzkrar menningar. En hið sama á við um margt annað. Atvinnuvegir þjóðarinnar, sem vitaskuld eru undirstaða og forsenda alls lífs í landinu og verða að þrífast, ef tal vort um annað á ekki að vera Framhald á bls. 7.

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.