Lögberg-Heimskringla - 29.10.1970, Síða 3
y
d
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 29. OKTÓBER 1970
3
svæði, sem byggt var á þess-
um slóðum, en aldrei sá ég
þetta býli aftur eða nokkuð,
sem líktist því, og enginn gat
gefið mér nokkra skýringu á,
hvar ég hefði komið eða hvað
ég hefði séð. En sumir hafa
haldið, að ég ætti eftir að búa
á stað, sem samsvaraði þess-
ari lýsingu.
Annars bar ekki margt til
tíðinda þarna. Trausti hélt
áfram smíðavinnu, eins þótt
við hefðum lítilsháttar bú-
skap, hvenær sem hann gat
komizt að heiman. Oftast
vann hann við íslendinga-
fljót. Alls smíðaði hann þrjár
kirkjur og þrjá skóla, auk
margra annarra húsa. Síðar
vann hann einnig í Winnipeg.
Líkaði honum það vel, því að
þar var vinnan léttari. Þegar
fyrri heimsstyrjöldin hófst,
dró mjög úr húsabyggingum
sökum lánsfjárskorts, og
minnkaði þá atvinnan á því
sviði.
Við vorum fimm í heimili
á þessum árum, því að Lilja,
dóttir Vilhjálmínu systur
minnar, kom til okkar, er hún
var sex ára og var hjá okk-
ur í tíu ár. Móðir hennar var
þá orðin ekkja. Hafði hún
dvalizt með dætur sínar þrjár
ásamt móður okkar suður í
Duluth, en fluttist síðar norð-
ur til Winnipeg. Þar bjuggu
einnig Bína systir mín og
Margrét systir Trausta. Voru
allmiklar samgöngur m i 1 li
alls þessa skyldfólks, einkum
eftir að jámbrautin kom til
Árborgar. En áður voru þessi
Framhald af bls. 1.
TIL ÍSLANDS er kominn
maður frá Samtökum land-
lausra Ungverja, Scolyvai að
nafni, í þeim tilgangi að kynn-
ast högum þeirra Ungverja,
sem flúðu til íslands á sínum
tíma. Lögðu hann og kona
hans blóm að styttu Jónls
Sigurðssonar á Austurvelli,
og á þeim var borði með áletr-
uninni: Þakkir til íslenzku
þjóðarinnar frá Ungverjum
sem komu 1956.
í SUMAR var byggð brú á
ána Kreppu vestur af Amar-
dal til að opna leið inn á
Kverkfjallasvæðið, en þar eru
hafnar rannsóknir vegna
hugsanlegra virkjunarfram-
kvæmda á vegum Orkustofn-
unar á næstu árum. Þessi brú
opnar ferðamönnum einnig
leið inn á Kverkfjallasvæðið,
en þar eru merkileg hvera-
svæði og einnig Hvannalindir,
þar sem enn má sjá rústir af
bústað Fjalla-Eyvindar.
TVEIR íslenzkir vísinda-
menn fóru með norskri her-
flugvél til J a n M a y e n.
Þeir eru Guðmundur Sig-
valdason, jarðeðlisfræðingur
og Sigurður Þórarinsson, jarð-
fræðingur. Fara þeir norður
ferðalög lengstum erfið.
Faðir minn var stundum á
ferð í þessu byggðarlagi og
kom þá ætíð við hjá okkur.
Hann var annars alltaf á
ferðalögum, ýmist sem prest-
ur eða í lækniserindum. Þess
á milli var hann sífellt að
læra. Þá sjaldan hann var um
kyrrt, dvaldist hann ýmist í
Duluth eða Winnipeg. Sein-
ast þegar hann kom til okkar,
lét hann í ljós fögnuð sinn
yfir því, hversu miklu léttara
yrði að ferðast hingað út eft-
ir, þegar járnbrautin kæmi til
Árborgar. En mig minnir að
hann nyti þess aldrei. Hann
dó í janúar 1911.
Hér lýkur frásögn Rósu
sjálfrar, en Þórunn dóttir
hennar bætir við:
Mamma hefur nú átt heima
hér í Árborg í nærri átta ár.
Hún hefur verið ósjálfbjarga
af afleiðingum af slagi í rúm
fimm ár, en þó getur hún
setið í stól og lesið sér til
skemmtunar.
Allir hér hafa verið henni
ósköp góðir og gert það, sem
unnt hefur verið til að hjálpa
og gleðja undir þessum kring-
umstæðum, og hefur okkur
verið gert allt til hægðarauka,
sem hægt hefur verið. Ég veit,
að mamma vildi láta þessar
línur enda með þakklæti fyr-
ir alla þá góðvild, sem hún
hefur mætt, og kærri kevðju
til samferðafólksins.
Heima er bezt
oklóber og nóvember 1959.
til að rannsaka gosið á eyj-
unni. Sigurður er væntanleg-
ur til íslands aftur á morgun,
en Guðmundur mun dvelja í
viku tíma á Jan Mayen. Hafa
Norðmenn beðið hann að taka
sýnishorn af gasi á gosstöðv-
unum.
HVALVEIÐIÚTHALDI hjá
4 hvalveiðibátum Hvals h.f.
er lokið. Samkvæmt upplýs-
ingum Lofts Bjarnasonar for-
stjóra veiddust 377 hvalir í
sumar, en úthaldið var 98
dagar.
í fyrra veiddust aftur á
móti 423 hvalir á 121 dags
úthaldi. í sumar veiddust 272
langreyðar, 61 búrhvalur og
44 sandreyðar. I fyrra veidd-
ust 251 langreyður, 103 búr-
hvahr og 69 sandreyðar. Loft-
ur hvað þetta góða útkomu
eftir aðstæðum. Búið er að
flytja út um 1400 tonn af
hvalkjöti til Bretlands og um
500 lestir af hvalmjöli til ír-
lands, en mikið magn hráefnis
frá fyrirtækinu á eftir að
flytja út.
GEIMFARARNIR þrír, sem
fóru með Apolló 13, koma í
heimsókn til íslands hinn 1.
október næstkomandi. Þeir
James Loveli og Fred Haise
hafa konur sínar með sér, en
Jack Swigert er ókvæntur og
kemur einn. Tilkynnt var í
Hvíta húsinu, að Nixon for-
seti, hefði beðið þremenning-
ana og konur þeirra að heim-
sækja ísland, Sviss, Grikk-
land, Möltu og írland, sem
sérlega fulltrúa sína, og hefst
ferðin hér á íslandi.
í ferðinni koma þeir við í
Konstanz í Þýzkalandi, og
flytja ávarp á upphaldsfundi
21. Alþjóðalegu geimferðaráð-
stefniuinar.
Á FUNDI alþjóðlegu fugla-
verndunarsamtakanna, sem
haldinn var í Hollandi fyrir
skömmu var samþykkt áskor-
um á íslenzk stjórnarvöld að
hætta við undirbúningsvinnu
við fyrirhugaðar framkvæmd-
ir í Þjórsáerverum, a. m. k.
þar til ítarlegar rannsóknir
hefðu farið fram á áhrifum
mannvirkja á umhverfið þar.
Var einkum lögð áherzla á að
reynt yrði að finna leiðir til
að áhrif framkvæmda á heið-
argæsastofninn y r ð i sem
minnst. Þá 1 ý s t i fulltrúi
UNESCO, menningar- og vís-
inda stofnunar Sameinuðu
þjóðanna því yfir, að stofn-
unin væri mjög áhugasöm um
að styðja fjárhagslegar um-
fangsmiklar rannsóknir á
Þjórsárverum vegna hins
mikla vísindalega gildis sem
slíkar rannsóknir gætu haft
og þá sérstaklega fyrir heið-
argæsastofn heimsins. 1 Þjórs-
árverum verpir um 2/3
stofnsins.
T v e i r íslendingar sóttu
þennan fund, Agnar Ingólfs-
son, dýrafræðingur og Jakob
Björnsson, deildarverkfræð-
ingur hjá Orkustofnun. Sagði
Agnar þar frá Þjórsárverum
frá náttúrufræðilegu sjónar-
miði, en Jakob ræddi um fyr-
irhugaðar framkvæmdir þar.
Urðu miklar umræður um
málið á eftir. Sagði Jakob í
viðtali við Mbl., að í þeim
umræðum hefði hann lagt á-
herzlu á að íslendingar væru
engan vegin reiðubúnir að
hætta við framkvæmdirnar,
en við þær yrði tekið tillit til
þessara sjónarmiða og renyt
að draga úr skaðlegum áhrif-
um á umhverfið.
í fréttaauka í útvarpinu
sagði Agnar Ingólfsson frá
framangreindum atriðum og
einnig frá fundi alþjóðlegrar
rannsónkarstofnunar vatna-
fugla, sem hann sótti í Belgíu
að loknum fundinum í Hol-
landi. Á þeim fundi var sam-
þykkt að bjóða íslendingum
fræðilega og fjárhagslega að-
stoð við rannsóknir á heiðar-
gæsinni og umhverfi hennar
á íslandi.
ICELAND - CALIFORNIfl C0.
Bryan (Brjann) Whipple
Import and Sale of lcelandic
Woolens, Ceromic, Etc.
1090 Sansome, San Francisco CA94111
Wanted for cash: Older
lcelandic Stamps and Envelopes
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Steret
Selur lfkkistur annast um
átíarir. Allur utbúnaöur
sá bezti
Stofnaö 1894 SPruce 4-7474
Benjaminson Construction Co.
Ltd.
1425 Erin Street.
Winnipeg 3,
Ph: 786-7416
GtNERAL CONTRACTORS
E. BENJAMINSON, M>M|«
HALLDOR SIGURDSSON
AND SON LTD.
Lathing and Plastering
Contractors
H. Mel Sigurdson, Manoger
Office and Warehouse:
1212 St. Mary's Road, Winnipeg 8
Ph. 256-4648 Res. 452-3000
FRÁ VINI
Asgeirson Paints & Walípapers
Ltd.
BUILDING MATERIALS
636 Sargent Avenue
. Wlnnipeg 3. Manlloba
• All types of Plywood
• Pre-finish doors and
windows
• Aluminum combination
doors
• Sashless Units
• Formica
• Arborite
• Tile Boards
• Hard Boards etc.
• Table Legs
Phones
SU 35-967 SU 34-322
FREE DELIVERY
RICHARDSON & COMPANY
Barriotars and Soiícltoro
274 Garry Streat, Wlnnipeg 1, Monltoba Tclephorw 942-7467
G. RICHARDSON, Q.C. J. F. K TAYLOR, LL.B.
C. R. HUBAND, LL.B. W. S. -VRIGHT, B.A., LL.B.
W. NORRIE, B.A., LL.B. W. J. KRHLCR, B.A., L.L.B.
G M. ERICKSON, B.A., LL.B. f C. BEAUDIN, B.A., L.L.B.
"GARTH M. ERICKSON of the firm of Richardson & Company attcndo ot tt>«
Gimli Credit Union Office, Gimli, 4:00 p.m. to 6:00 p.m. on the flrot ond tblrd
Wednesday of each month."
ÍSLÁNDSFRÉTTIR
Úr Morgunblaðinu í lok sept.
• Business and Professional Cards •