Lögberg-Heimskringla - 07.12.1972, Page 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 7. DESEMBER 1972
3
Læknirinn í Riverton—Steinn Ólafur Thompson
• Business and Professional Cards •
Nú er 2. nóvember og
fimmtudagur. í gær var ég á
Hvammstanga og setti bréf til
ykkar í póst. Um leið fékk ég
nokkur eintök af Lögberg-
Heimskringlu, sem ég þakka
veP fyrir.
í einu blaðinu, dagsett 14.
september las ég um lát dr.
Thompsons frá Riverton. Það
er þess vegna að ég tek nú
aftur upp penna, til að votta
konu hans, fjölskyldu og
norðurbyggð Nýja íslands
samúð mína.
Ég kynntist dr. Thompson
nokkrum dögum eftir að ég
tók v i ð Árborg-Riverton
prestakalli haustið 1953. Eftir
það ræddum við oft saman,
stundum aleinir heima hjá
honum, við kaffiborð á Sandy
Bar, stundum í samkvæmum
í Riverton eða annarsstaðar.
Við urðum með tímanum
vinir. Saga Kanada er löng
og merkileg, og saga manna
og kvenna af íslenzkum ætt-
um-hefir sett sinn svip á þetta
stóra og mikla land, en eng-
inn betur en hinn fórnfúsi og
gáfaði læknir, Steinn Ólafur
Thompson.
Þegar Steinn (Ólafur kom
fyrst til Riverton, nýútskrif-
aður læknir, vorið 1923, og
bað um gistingu á Riverton
hótelinu, gékk sá orðrómur
m e ð a 1 þeirra sem ekkert
þekktu til hans, að hér væri
leynilögreglumaður á ferð.
Hann var sú týpa, orðvar,
gætinn í framkomu, og með
framúrskarandi björt og at-
hugul augu. Hann reyndist
um langan aldur „leynilög-
reglumaður“ í öðrum skiln-
ingi. Hann gætti heilsufars
allra á stóru svæði, og undir
kringumstæðum sem enginn
læknir nú á dögum mundi
láta bjóða sér. Dr. Thompson
neitaði aldrei að fara til hinna
þjáðu. Oft þegar frost var 30
til 40 gráður fyrir neðan zero,
ferðaðist hann á sleða, sem
hundar gengu fyrir, stundum
í vagni, þegar snjó tók af
jörðu, notaði hvaða farartæki
sem bauðst. Hann talaði kjark
í vonlausa menn og læknaði
þá, gaf óteljandi mönnum
nýja von og nýjar óskir.
Starf Steins læknis snerti
fólk af öllum stéttum, með
gjörólíkum starfshæfileikum
og lífsmöguleikum — fiski-
menn, bændur, veiðimenn
langt norður af Riverton,
Indíána. öll þessi ár beið hans
heima hinn góði engill hans,
eiginkonan, frú Thordís.
Henni kvæntist hann stuttu
eftir að hann gerðist læknir
í Riverton. Hún kunni vel að
bægja áhyggjum frá manni
sínum, og hlaða um hann
varnarvegg ástar og um-
hyggju, sem allur mótblástur
og allt andstreymi lífsins
brotnaði á. Al'ltaf var gott áð
Efiir ROBERT JACK
heimsækja þau og fjölskyldu
jeirra.
Steinn Thompson var mað-
ur sem játaði ekki fúslega trú
sína í orðum. Hann sýndi
rana í verkinu, í miskunn og
íærleika til annarra. Þar sem
fátækt ríkti gaf hann læknis-
hjálp sína og meðul endur-
gjaldslaust. Ég veit þess líka
mörg dæmi að læknirinn gaf
fátækum fé úr eigin vasa svo
þeir kæmust á sjúkrahús í
Winnipeg til frekari rann-
sókna.
I bók sinni, “Taking Root
in Canada,” hefir Gus Roma-
niuk lýst dr. Thompson sem
“knight in shining armour.”
Hann var það, ekki einungis
sem læknir, heldur einnig sem
stjórnmálamaður. Þau ár, sem
hann sat í Manitoba fylkis-
þinginu, barðist hann eins og
hetja fyrir betra vegakerfi í
norður Nýja íslandi, fyrir raf-
magnsleiðslu, og betri lífsaf-
komu yfirleitt. Með seiglunni
varð honum furðu mikið á-
gengt, og á lífstíð sinni naut
hann þess að finna og vita að
það sem hann vann fyrir fólk
sitt, hérað og fylki var metið
til fulls.
Steinn læknir var gæfumað-
ur og hugsjónamaður, sem
dirfðist að koma hugsjónum
sínum í verk. Ég álít að með
fráfalli þessa góða drengs hafi
Riverton og allt Kanada orðið
fátækara en áður. Heimabær
hans hefir misst ljúfling. Nú
munu daggir himinsins drjúpa
yfir leiði hans, sól og blær
gæla við hvert blóm og blað
sem sprettur þar um ókomnar
aldir.
Good, brilliant and brave
Steinn Ó 1 a f u r Thompson.
He is now part of that im-
mortal C a n a d a , which
knows not age or weariness
or defeat.
Bréf séra Roberl Jack birl-
isl innan skamms. — Rilstj.
Betel Building Fund
In memory of August Jonaian
Saedal
Gimli, Man.............$5.00
* * *
Mr. and Mrs. H. M. Sveinson,
647 Victor Street,
Winnipeg, Man........ $10.00
Mr. and Mrs. A. P. Johannson,
841 Goulding Street,
Winnipeg, Man....... $10.00
Mr. and Mrs. W. Scott,
53-36 Smith Street,
Winnipeg, Man. _____ $10.00
* * *
In memory of Jonasina Julia
Benson
In memory of Harry W. Mc-
Glynn
Mrs. Ingibjorg S. Goodridge,
271 Wellington Crescent,
Winnipeg, Man.
* * *
In memory of Christian Nord-
man
t
Mr. and Mrs. K. W. Johann-
son, 910 Palmerston Ave.,
Winnipeg, Man. $10.00
Mrs. Olive Sigurdson,
Betel Home,
j ......V.
fB ETE l!
H 0 M E
FOUNDATION
— 90.000
— _80,000
— 70,000
— 60,000
— 50,000
43.832.00 - ■ _40,000
-1 I _30,000
-1 j 20,000
j r°
4 BUILDING w FURNITURE
a EQUIPMENT FUND
* * *
Mr. and Mrs. H. M. Sveinsson,
647 Victor Street,
Winnipeg, Man. $50.00
* * *
In memory of Mr. Jakob F.
Krisijánsson
Mr. and Mrs. Thorsteinn East-
Man, R.R. 1 — Headingley,
Man. ............. $10.00
Miss Inga Benjamínson,
513-666 St. James Street,
Winnipeg, Man. .... $10.00
Mr. and Mrs. A. M. Dobbie,
748 Broadway Avenue,
Winnipeg, Man. . $10.00
Miss Irene Fedok,
48-2130 Portage Avenue,
Winnipeg, Man......$5.00
* * *
In loving memory of Jakob F.
Krisljánsson t
Ónefndur ..........$100.00
Meðtekið með þakklæti
fyrir hönd Betels,
K. W. Johannson,
910 Palmerston Ave.,
Winnipeg, Man.
R3G 1J5
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA í VESTURHEIMI
Forseli: SKÚLI JÓHANNSSON
587 IVIinto Street, WinnipeK 10, Manitoba
Styrkið félagið með því að gerast meðlimir.
Ársgjald — Einstaklingar $3.00 — Hjón $5.00
Sendist til fjármálarilara
MRS. KRISTIN R. JOHNSON
1059 Dominion St., Winnipeg 3, Maniloba.
Phone: 733-3971
Building Mechanics Ltd.
Paintia* - DecoratinR - Constructlon
RenovatiiiK - Real Estate
K. W. (BILL) JOHANNSON
' Manager
910 Palmerston Ave.,
‘Vinnipeg R3G 1J5
ICELAND - CALIF0RNIA C0
Bryon (Brjann) Whipple
Import and Sale of lcelandic
Woolens, Ceramic, Etc.
1090 Sonsome, Son Froncisco CA941H
Wanted for cash: Older
lcelandic Stamps and Envelopes
Lennett Motor Service
Operated by MICKEY LENNFTT
IMPERIAL ESSO PRODUCTS
Hargrave & Bannatyne
WINNIPEG 2, MAN.
Phone 943-8157
Minnist
BETEL
í erfðaskróm yðor
Asgeirson Paints & Wallpapers
Ltd.
696 Sargent Avenue
Winnipeg 3, Maniioba*
PAINTS
Benjamin Moore
Sherwin Williams
C.I.L.
HARDWARE
GLASS & GLAZING
WOOD & ALUMINUM
WALLPAPER
Phones:
783-5967 — 783-4322
FREE DELIVERY
ASGEIR ASGEIRSON
GEORGE ASGEIRSON