Lögberg-Heimskringla - 30.10.1992, Page 16

Lögberg-Heimskringla - 30.10.1992, Page 16
lé • Lögberg-Heimskringla • Föstudagur 30. október 1992 Tökum Höndum Saman Styrkjum Bönd Vináttu og Frændsemi ilgangurinn með þessarri útgaáfu Lögbergs-Heims- kringlu, sem er 38. tölublað 106. árgangur, er að ná til sem flestra þeirra sem telja sig af íslenz- kum uppruna eða eru vinir íslands. Þetta er gert með því að senda blaðið til allra þeirra sem nöfn og heimilisföng hafa náðst í, en að sjálf- sögðu eru þúsundir annara sem við vitum ekki um. Blaðið er í þessu tilfelli sameigin- legt átak L-H og Þjóðræknisfélags íslendinga, sem hefur höfuðstöðvar sínar í Winnipeg, en báðar eru þessar stofnanir komnar til ára sinna, Lögberg-Heimskringla á 106. útgáfuári og Þjóðræknisfélagið hélt sitt 73. ársþing 1-3 maí s.L Eins má geta þess að 103. íslendin- gahátíðin var haldin í sumar sem leið á Gimli, að viðstöddum tugum þúsunda manna, kvenna og barna. Hvernig má það vera að slíkar stofnanir endist eins og þessar hafa gert. Væri ekki eðlilegt að ætla, að íslenzk einkenni væru horfin í þessum bræðslupotti þjóðabrota sem er raunveruleiki Norður Ameríku. Hvaðan kemur styrkurinn sem fleytt hefur þessum stofnunum áfram. Er hugsanlegt að við getum rakið til svars til fyrstu íslendinga- hátíðar í Norður Ameríku, sem haldin var í Milwaukee 2. ágúst 1874. Þar tók til máls Ólafur Ólafs- son frá Espihóli og talaði fyrir minni íslendinga í Vesturheimi: - kominna og ókominna vesturfara. Hvatti hann burtfluttu bömin til samvinnu, samheldni, umburðarlyndis og bræðraþels. Eitt er víst, að ef ekki hefði notið framsýni og fyrirhyggju þeirra sem á undan hafa gengið, að búa vel í haginn, væm þær stofnanir fáar eða engar sem við gætum átt þáttöku í, til að yrkja okkar arfleifð og afhenda betri til þeirra sem taka við af okkur. “Vesturfaraskrá” sem Júníus H. Kristjánsson tók saman og gefin var út af Sagnfræðistofnun Háskóla Islands 1983, hefur að geyma nöfn u.þ.b. 15000 manna, kvenna og barna sem fluttu Vestur á árunum 1870-1914. Þessi skrá nær ekki til upphafs útfluttninganna sem hófust með “Utah” förum 1855, og margir fóru líklega án þess að vitað væri um á tímabilinu 1855-1920. Könnun sem gerð var 1974 leiddi í ljós, að varlega mætti áætla að afkomendur Landnemanna væru 60-70000 manns. Þetta er ekki lítill hópur, að vísu orðinn blandaður, þó með íslenzk einkenni. í minningar- grein um Kjartan Ingimund Johnson M.D., sem fæddur var nálægt Lundar, Manitoba 1910 (37. tölublað L-H 1992), kemur í ljós að hann var alla tíð stoltur af sínum uppruna og sagði barnabörnum sínum “Allt sem þú þarft er einn dropi af íslenzku blóði”. Svo sterk er okkar íslenzka arfleifð. Þegar talað er um Vestur- íslendinga er venjulega átt við afkomendur Landnemanna, og þar af leiðandi ekki taldir með þeir sem flutt hafa hingað vestur frá árinu 1945. Sá hópur er ótrúlega fjölmennur og líklega slagar hátt upp í þann hóp sem skráður er í Vesturfaraskrá. Hér er um að ræða konur sem giftust bandarískum eða kanadískum hermönnum í lok sein- ni Heims- styrjaldar og síðar, námsfólk sem ekki fór heim að loknu námi, og stóran hóp fólks sem leitaði til Vesturheims á 6. áratug þessarar aldar og síðar, vegna atvin- nutækifæra. Nú á mest af þessu fólki afkomendur, börn, barnabörn og jafnvel barnabarnabörn. Auðvelt er að halda sambandinu meðan afi og amma og foreldra systkini eru á lífi á Islandi, en róðurinn þyngist þegar þeirra nýtur ekki lengur við. Hvað skal þá til vamar? Beinast liggur við að gerast áskri- fandi að Lögberg-Heimskringlu, en blaðið flytur, ásamt öðru efni, fréttir frá hinum ýmsu félögum íslendinga, fréttir frá íslandi, innsent efni og fleira. Blaðið er sá tengiliður sem bindur okkur saman, eins og það hefur gert um áraraðir, og af síðum þess má lesa það sem átt hefur sér stað í félagslífi, hvað framundan er hvenær og hvar. Þá er að gerast meðlimur í Islendingafélagi á því svæði sem búseta hvers og eins er, eða stofna nýtt ef ekkert félag er til staðar. Ekki þarf nema fáa til að koma slíku af stað, að hittast yfir kaffibolla er nægjanlegt til að byrja með. Mest er um vert að vera þáttakandi og vinna af gleði, framsýni og nokkurri fórnarlund. Þjóðræknisfélagið getur verið ómetanleg stoð við smærri og stærri félög og rétt væri að öll íslendinga- félög létu skrifstofu þess hér vita um tilveru sína ásamt heimilisfangi. Ekki þarf annað en löngun og vilja- styrk til að koma sér af stað og eina inngönguskilyrðið að hafa hjartað á réttum stað. Fá þjóðabrot eiga því láni að fagna að geta rakið uppruna sinn eins auðveldlega og við getum og flest fólk hendir það, þegar komið er yfir miðjan aldur og hugleitt er hvert stefni, að spyrja, hverjir voru forfeður mínir, hvaðan kom ég? Eftirtektavert er það hvað mörg ung- menni nú til dags vilja svör við þeim spurningum. Hér hefur orðið mikil breyting á, hver sem ástæðan er. Fyrir afkomendur Landnemanna verða spurningarnar um ættir og sögu íslands, en áður en varir verða það einnig spurningar sem af- komendur seinni útflytjenda frá Islandi vilja svör við. Erum við tilbúin með svörin, og hverjir svara þeim þegar við erum öll? Hvaða félaga eða fréttamiðla geta þau leitað til? Sannarlega var gömlu Landnem- unum ljós þörf komandi kynslóða, en menn og konur þeirra kynslóða sátu ekki aðgerðalaus, heldur tóku höndum saman og byggðu upp þær stofnanir sem við njótum í dag. Nú er komið að okkur. Lögberg- Heimskringla er ekki lengur blaðið sem aðeins pabbi og mamma lásu, eða amma og afi, það er líka okkar blað og það er á okkar ábyrgð að sjá til þess að það verði blað afkomenda okkar. Eins er með aðrar stofnanir s.s. Þjóðræknisfélagið. Þótt þú langförull legöir sérhvert land undirfót, bera hugur og hjarta samt þíns heimalands mót, ... St. G. Stephansson Tökum höndum saman og smeinumst í ást okkar til íslands, virðingu og þakklæti fyrir uppruna okkar. BiiffT

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.