Alþýðublaðið - 02.11.1960, Blaðsíða 5
WWWWWMWWWWWWMW
Vel faekkt
hljámsveif
+ IFYRRAKVÖLD kom
hingað til lands hin heims
fræga hljómsveií „Los
Paraguyos,“ sem mun
leika hér í Stork-klúbbn-
um í Framsóknarhúsinu í
nokkra daga. Hljómsveitin
er skipuð 4 mönnum, sem
allir syngja og leika á
hljóðfæri. En hljóðfæra-
skipun hljómsveitarinnar
er nokkuð frábrugðið því
sem íslendingar eiga að
venjast, en þrír Ieika á
gítar og einn á hörpu. —
Hljómsveitin kom hingað
frá Bretlandi, þar sem hún
lék í sjónvarp.
mWMmWMMWMWWMW
Góður afli ís-
firzku bátanna
Ííiafirði, 30. okt.
ÞRÍR bátar eru byrjaðir
róðra héðan og hafa þeir fiskað
ágætlega. í gærdag — Iaugar-
tlag — var aflinn sem hér segir
.— óslægður fiskur:
Guðbjörg 14 smál, Gunnhild-
ur 14 smál. og Gunnvör 10
smál. Þetta eru eingöngu þorsk
ur, mjög vænn.
Hinir bátarnir byrja róðra
næstu daga, en þeir eru ekki
enn tilbúnir á veiðar, en hrað-
að er útbúnaði þeirra eftir
föngum.
Á undanförnum áruni hefur
aflinn á haustvertíðinni verið
lélegur, og telja menn, að þessi
ág'æti afli, sem nú er, spái góðu
Tum aflabrögðin í vetur.
Beitt er m. a. nýjum smokk-
fiski, sem veiðzt hefur sama
sólarhringinn og honum er
beitt, svo að ekki hefur þurft
að hraðfrysta hann. Nokkrir
smærri bátar stunda enn smokk
fiskveiðarnar. og fiska vel.
B. S.
ÍLs’ 11%
aiitiiiii
y S5S
HÚSMÓÐIR ein við Snorra-
braut þurfti þurfti að skreppa
niður í kjallara í húsi sínu að-
faranótt sunnudags. Þegar hún
kom niður í innri gang í kjall-
arageymslu sá hún ókunnan
pilt standa þar yfir ferðatösku.
Konan spurði piltinn, hvað
honum væri á höndum, en hann
gat enga skýringu gefið á því.
Hún vísaði honum því á dyr.
Þegar pilturinn ætlaði að fara
ver
jófur
án töskunnar benti konan hon-
um á hana, en pilturinn kvaðst
ekki eiga töskuna.
Konan athugaði síðan hvað
væri í töskunni, en það var gam
all fatnaður, sem íbúar hússins
áttu. Konan kallaði á hina íbú-
ana til þess að athuga, hvort
nokkru hefði verið stolið, en
svo var ekki.
Meðan fólkið var að skoða
Framhald á 14. síðu.
LEIKFÉLAG Kópavogs byrj-
ar starfsár sitt með sýningu á
gamanleiknum „Útibúið í Árós-
um“, í þremur þáttum, eftir
Max Neal og Kurt Kraatz. Er
þetta fjórða leikár félagsins,. —
Frumsýnt verður að öllu for-
falla|ausu fimmtudaginn 10.
nóv. Leijkstjóri er Einar Guð-
munclsson, leikari, en bann
Iauk prófi frá Leiklistarskói'a
Þjóðleikhússins 1958.
Með aðalhlutverk fars: Síg-
urður Gré.tar Guðmundsson og
Auður Jónsdóttir. Auk þeirra
fara með veigamikil hlutverk
leikkonurn.ar Helga Löve og'
Vilborg Sveinbjarnardóttir. —
Alls koma fram í leiknum 13
leikendur.
Þá er einnig að liúka æfíng-
um á barnaleikritinu ..Lína
langsokkur11. eftir sænsku skáld
konuna Astrid Lindgren. Leik-
ritið er í fjórum þáttum. Er
ráðgert að frumsýna það sunnu
daginn 13. nóv. Leikstjóri er
Gunnvör Braga Sigurðardóttir.
Aðalhlutverk er Ieikið aí Sigr-
íði Soffíu Sadnholt. Geta má
þess að í leik þessum kemur
fram api (sjá forsíðumyndl og
er þegar byrjað að æfa hann.
Þetta er fyrsta barnaleikritið
sem Leikfélag Kópavogs sýnir
og hefur mikið verið til þess
vandað.
Einnig er í ráði að setja á
svið „Skuggasvein“ eftir ára-
mótin. Snorri Karlsson hefur
sem fýrr teiknað og málað öll
tj öldin.
Sýningar á „Útibúinu“ verða
í Kópavogsbíói og barnaleik-
ritinu í Kópavogsbíó og Skáta-
heimílinu við Snorrabrauí. —*
Einnig mun verða farið rneA
„Útibúið“ í heimsókn- til ná-
grannabæja og sveita, t. d. ver5
ur það sýnt í Hlégarði. Mos-
felssveit, miðvikudaginn 23.
nóvember.
mningum
Isafirðí, 30. okt.
ALÞÝÐUSAMBANÐ Va
fjarða hefur sagt upp samningi
við útvegsmenx um k’aup og-
kjör háseta, matsveina og vél-
-újóra á bátum, sem veiða metí
línu, botnvörpu cg þorskan.et-
um, en sá samningur var gerS-
ur 28. des. 1959, og nær til allra
stéttarfélaga sjóirianna á sam-
bandssvæðinu, en það er ísa-
fjörður, ísafjarðarsýsla, Baiða-
stranclasýsla og Síramíasýslá.
Einníg hefur A. S. V. sagt upp
aðild sinni að samningi um fisk-
verð o. fl., sem gert var á milli
sjómannasamtaka innan ASÍ
og Landssambands ísl. útvegs-
manna.
Ástæðan fyrir þessum samn-
ingsuppsögnum er fyrst og
fremst. sú óvissa, sem nú er rikj
andi í kaupgjalds- og kjaramál-
um.
Samningurinn fellur úr gilcli
l.janúarn. k. B. S.
Áæflun SameinaBa Gufuskipafélagsins 1961
um ferðir m„s. Dronning Aiexandrine og vöruflutningaskipa
Frá Kaupmamtahöfiií
13/1, 3/2, 24/2, 17/3, 7/4, 27/4, 19/5, 9/6, 29/6,
7/7, 21/7, 4/8, 18/8, 7/9, 29/9, 20/10, 10/11, 1/12.
Frá Revkiavík: 24/1> 14/2> 7/3’ 28/3’ 18/4> 8/5> 30/5’ 16/6> 3ö/6>
* 3 14,/7, 28/7, 11/8, 25/8, 18/9, 10 /10, 31/10, 21/11, 12/12.
M.s. Dronning Alexandrine mun sigla milli Reykjavíkur og Kaupmannahafnar tímabilið júní/ágiist en fyrir og eftir þann
tíma verður í förum vöruflutningskip. Skipin munu hafa viðkomu í Fæx-eyjum bæði á leið til og frá Reykjavík.
Skipaafgreiðsla Jes Zimsen
Alþýðublaðið
l. nov.
1960 ÍJ