Alþýðublaðið - 02.11.1960, Blaðsíða 16
41. árg. — Miðvikudagur 2. nóvember 1960 — 249, tbl,
ÚT'iBÝTT var á lalþingi í
gær stjórnarfrumvarpi til laga
um Bjargráðasjóð íslands. —
llbna er allsherjarsjóður fyrir
alía landsmenn til hjálpar í
hállærl eða afstýra því, segir í
1. frv. l*að er hallæri, ef sveit-
arféíög verða af náttúruvöldum
svo illa stödd, |að þau megna
eliki af eigin rammleik að
forða mönnum eða skepnum frá
hárðrétti eða felli, segir þar ena
fremiar.
í .athugasemdum við laga-
frumvarpið segir m. a. á þessa
ieið>
..Samkomulag hefur oi'ðið
rrulli bjargráðastjórnar og
etjórnar Sarr|bands íslenzkra
isveitarfélaga um frumvarp það.
scm hér liggur fyrir.
Helztu breytingar, sem gert
er ráð. fyrir í frumvarpinu, eru
þessar:
1. Framlag sveitarfélaga og
rókjsþjóðs #1 Ibjargráðasjóíðs
•hækkar verulega eða úr 2 k-rón
••um. í 5 krónur fyrir hvern mann
Oajá hvorutveggja, sveitarfélög
unum og ríkissjóði. Þannig verð
ur að gera ráð fyrir því, að ár-
'legt framlag ríkissjóðs hækki
úr kr. 360.000.00 í kr. 900.000.
00, ef miðað er við áætlað fram
■lag ríkissjóðs á árinu 1961. —
'Sámá hækkun verður á saman-
lögðurn framlögum sveitarfélag
anna.
2. Sú breyting verður á
stjórn bjargráðasjóðs, ef frum
varpið verður að lögum, að í
sljórniná bætist einn maður frá
Sambandi íslenzkra sveitarfé-
laga, svo að stjórnin verður þá
eldpuð fjórum mönnum í stað
jþrig.gja eins og nú er.
3. Samkvæmt núgildandi á-
(kvæðum skipar ráðherra fram-
(kvæmdastjóra bjaýgiráSasjöðs.
en. í frumvarpinu er gert ráð fyr
ir því, að sjóðstjórnin ráði fram
fcvs&ftúdastjórann, sjá 4. gr.-frum
varpsins.
4. Loks er gert ráð fyrir því
í-á-gr. frumvarpsins, að stjórn
2 tillögur
EINAR Ágústsson o. fl. hafa
lagt fram þingsályktunartillögu
um fjáröflun til byggingar-
sjóðá. Þá hefur Jón Skaftason
o.; 'fl. lagt fram tillögu um
stufining ríkisins við jarðhita-
lei't og jarðhitaframkveamdir.
inni sé heimilt að veita sveitar
íélögum eða fyrirtækjum þeirra
og .sýslufélögum lán úr sjóðn
um, ef handbært fé hans verður
meira en ætla má nauðsynlegt
til greiðslu styrkja eða lána,
sem verið hefur hlutverk sjóðs
ins að veita hingað til“.
AHMtMtVMMMIMMUIMMMW
Altaris-
+ JÓN GUNNARSSON,
Hólabiskup tók 27 ka-
þólska varnarliðsmenn til
altaris suður á Keflavíkur
flugvelli 24. október s. I.
Myndin er tekin við það
tcekifæri. *
£
sland
vann
Chile
Leipzig, 1. nóv„
ÍSLAND vann Chile í fjórðu
umferð. Freysteinn gerði jafn-
tefli við Letelier, Arinbjörn
vann Larrain, Gunnar vann Ad-
er. en Ólafur tapaði fyrir Jim-
enez.
Staðan í B-riðli er nú þessi:
Svíþjóð 11 vinn., ísrael l'Olú,
Aústurríki og Cuba 9V2, Finn-
lanid 8, Danmörk, Chile og
Spánn 'IV2, Pólland, ísland og
Noregur 7, Indland 4 vinn. —•
Freysteinn.
Fullt fang af
jólatrésskrauti
AÐFARANÓTT sunnudags
varð lögreglan vör við pilt í
Austurstræti. sem var undir á-
lirifum áfengjiis og greinjljíga
kominn í jólaskap, því hanu
var með fangið fullt af jóla-
trésskrauti.
Lögreglunni þótti þetta held-
ur óvenjulegt og spurði piltinn
— hvar hann hefði fengið
skrautið Það hafði hann ekki
hugmynd um.
Pilturin gaf þær skýringaf,
að hann hefði verið á dansleik
1 í Vetrargarðinum og drukkið.
| allfast. Hann mundi síðan ekki.
| eftir sér, fyrr en lögreglan ó-
náðaði hann í Austurstræti.
En sakni einhver jólatrés-
skrautsins síns ætti hann að:
gefa sig fram við rannsóknar-
lögregluna.
LÍKUR eru fyrir því, að inn-
an skamms geti íslendingar
fengið að hlusta á sönglög, sem
voru hljóðrituð fyrir tæpum 60
árum. Sönglög þessi eru til á sí-
vainingi, sem nokkrir þekktir
íslenzkir söngvarar sungu inn
á um aldamótin.
Forsaga þessa máls er sú, að
um aldamótin kom maður að
nafni Theodór Pálsson til Siglu-
fjarðar frá Ameríku. — Hafði
hann meðferðis merkilegt „app
arat“, sem Edison liafði fundið
UPP, þá fyrir nokkrum árum.
Tæki þetta var hvorttveggja í
senn „þlötuspilari“ og hljóð-
upptökutæki.
. xjotaðir voru' serstakir iinnú-
sívalningar til upptökunnar, og,
var síðan hægt að leika af sí-
valningunum. Rétt eftir alda-
mótin, eða um 1905 tók Theodór
upp raddir nokkurra manna,
sem voru vel þekktir fyrir fagr
an söng. Þannig eru nú til sí-
valningar, sem Kristján Möller,
Séra Bjarni Þorsteinsson, og
Ásgrímur Þorsteinsson sungu I
inn á. Einnig er til einn, þar sem j
Þorleifur Þorleifsson, eldri á,
Siglufirði hafði kveðið inn á j
rímur.
„Apparatið11 er nú í eigu Egg- j
erts Theodórssonar, vélvirkja,
á Siglufirði, en hann erfði það,
eftir föður sinn. Sívalningarn-;
ir hafa nú verið sendir til,
Eeykjavíkur'og eru f umsjá Jök
uls Péturssonar málarameist-
ara.
Ríkisútvarpið mun hafa mik-
inn áhuga á því, að geta leikið
af sívalningunum inn á segur-
band eða hljómplötur., og varð-
veita þannig þessar merkilegu
upptökur. Ekki er þó hægt að
leika af sívalningunum nema
af fyrrnefndum vélum, en ein
slík er í eigu Ríkisútvarpsins,
en hún mun vera biluð. Einnig
er vélin á Siglufirði biluð. Nú
hefur það komið til tals að Siglu
fjarðarvélin verði send til
Reykjavíkur, og síðan verði
reýnt að gera eina úr hinum
tveim.
Sívalningarnir, sem til eru
munu vera um 20, og á hverj-
um sívalning er eitt lag.
Stérfé
stoBSð
INNBROT var framið í
fyrrinótt í sælgætisgerð-
ina Opal. Stolið var þaðan
á milli 10 og 20 þúsund
krónum.
Þjófurinn braut upp
glugga og síðan upp dyr
að skrifstofu fyrirtækis-
ins. Leit var gerð í skrif-
borðsskúffum, þar til lyk-
ill að peningaskápnum
fannst.
Úr peningaskápnum var
tekinn peningakassi, sem
var brotinn upp og tekið
úr honum í reiðu fé á milli
10 og 20 þúsund krónur.
Þjófurinn hirti hvorki
verðbréf né ávísanir.