Alþýðublaðið - 04.11.1960, Blaðsíða 9
bræður"
■fiðleikum
ástæður
náðunar
fangana
ál þeirra
ar munu
'knishjálp
fjölskyld-
ær missa
ma við að
:er í fang
lafa lofað
fyrir því
að aðbúð í fangelsum verði
bætt, sum lög endurskoð-
uð og að fé fáist til starf-
semi ,fangelsisbræðranna‘.
Sjálfboðaliðar munu
hjálpa fjölskyidum fang-
anna, og aðrir munu heim
sækja þá fanga sem enga
ættingja eiga eða fá eng-
ar heimsóknir. Enn annar
hópur mun svo reyna að
útbreiða kenningar kirkj-
unnar meðal þeirra.
ÞIÐ kannist við
manninn: Bing Cros-
by í skemmti- og við-
skiptaerindum í Lon-
don. Konan hans er
með honum, Jþað
munar víst minnstu
að hún Isé tþrisvar
smnum yngri en
hann. I fréttinni,
sem fylgdi myndinni,
sagði, að Bing hefði
sótt ensku golfvell-
ina fast — og frúin
verzlanirnar.
MUtMMMMMUUtMUMUIMMMMMHHMMMMHUM
IFRAKKLANDI
rerið mik-
rakklandi.
ar vanda-
árið 1946,
órnin fyr-
endishúsa
1“ eins og
þau. —
rtist þó
neð þessu
málið, en
a Vændis-
konurnar af götunum hef-
ur reynzt enn örðugra við-
fangs og er óleyst enn. En
sérfræðingar frönsku
stjórnarinnar vinna nti
baki brotnu að því að leysa
vandamál þetta, og eiga
þeir að vera búnir að finna
einhverja úrlausn fyrir
nóvemberlok. En sam-
kvæmt sérstökum lögum
er þá útrunninn tími sá,
sem var gefinn til þess að
koma á breytingum til
batnaðar í siðferðismálum
Frakka. Eftir þann tíma
þarf samþykki þingsins.
Vændi, sem er sennilega
ein elzta atvinnugrein
mannkynsins, er í sjálfu
sér ekki áhtin brot á lögum
í Frakklandi, og sérhver
borgari hefur rétt á að
velja sér það lífsviðurværi,
.
‘í
sem honum bezt líkar, seg-
ir talsmaður Michel Debré,
forsætisráðherra Frakka.
En hann bætti því við, að
stjórnin vildi einlæglega
„láta skríða til skarar gegn
mönnum þeim, sem lifðu
á tekjum vændiskvenna.“
Helztu ráð til úrbóta, er
til mála hafa komið, eru
hækkun á sektum í málum
hóteleigenda og „verndar-
manna“ vændiskvenna.
Með þessu telja sérfræðing
arnir, að götuvændi sé
dauðadæmt. En ýmsir
telja, að með þessu komizt
„síma-vændi“ enn meir í
tízku. En enginn efi er á
því, að mikil breyting verði
á vændi í Frakklandi, ef
áætlun sérfræðinganna
kemst til framkvæmda.
Einkum á þetta við um Pa-
rís, þar sem ýmsar deild-
ir og undirdeildir vænd-
is-atvinnurekenda starfa í
nær öllum borgarhverfum
og allan sólarhringinn.
Talsmaður stjórnarinnar
sagði, að stjórnin hefði
meiri áhuga á því r ð herða
eftirlit með núgildandi lög
um um vændi og að^a lesti
en að koma með róttækar
uýjuugar. Stjó^nin mun
ekki gera refsingar of
harðar, sagði hann. Annars
myndu dómsvöldin ekki
nota hin nýju lög. „Þegar
öllu er á botninn hvolft, er
þetta ekki eins alvarlegt
brot og morð,“ sagði tals-
maðurinn að lokum.
ssssesssSE
Jólaskeib ársins
1960
er komin
Gublaugur Magnússon
SkartgripaverzJan — Sími 15272.
Hafsiarf|örðyr
Fundur verður haldinn í Alþýðuhúsinu mánudag-
inn 7. nóv. kl. 8,30 s. d.
Fundarefni:
1. Skipalagsmálin, Jón Sigurðsson mætir á fundin-
um og skýrir frá þeim.
2. Kaupgjaldsmólin og launajafnréttið.
Kaffi verður á fundinum.
Stjórnin.
rr
Sunnudaginn 6. nóvember heldar Systrafélagið
Alfa sinn árlega bazar í Vonarstræti 4 (Félags'heim-
ili verzlunarmanna). Verður bazarinn opnaður kl.
2 stundvíslega.
Til sölu verður mikið af hlýjum ullarfatnaði barna
— og einnig margt annað eigulegt og hentugt t.il
tækifæris- og jólagjafa.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
De 11 da r h j ú kru n arknii usf aia
í röntgendeild Landspítalans er staða deildarhjúkr-
unarkonu laus til umsóknar nú þegar. Laun sam-
kvæmt launalögum.
Umsóknir með upplýsingum um náms- og starfs-
feril, aldur og hvenær umsækjandi getur hafið
vinnu, sendist til skrifstofu ríkisspítalanna, KJap'p-
arstíg 29, fyrir 25. nóv. 1960.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Afmælið mitt.
Hér er ég með búnka af skevtum og bréfum fyrir
framan mig, sem ég get ekki sant psrsónukgar
þakkarkveðjur fyrir, vegna þess að ég veit ekki
utanáskriftir. Leyfi mér því að þakka hér með öll-
um sem sendu mér kveðjur, heillaóskir og vinar-
gjafir á afmæli mínu og óska þeim alls hins bezta.
Jóhrnaes, S. Kjarval.
Aljíýðublaðið
4. nóv. 1960 Q