Alþýðublaðið - 10.01.1961, Blaðsíða 4
GOTT veður var á Siglu-
firði á gamlárskvöld og á
nýársnótt. Myndirnar sýna
brennu á gamlárskvöld og
blysin í Hvanneyrarskál.
Á efstu myndinni er
brenna, sem bærinn lét
hlaða, en nemendur og
kennarar gagnfræðaskólans
og lúðrasveitin gengust ann
ars fyrir brennunni og álfa-
dansi. Álfakóngur var Júl-
íus Júlíusson, en álfadrottn
ing var frú Magdalena
Schiöt. ,Ljósá!(far og Ihirð-
fólk voru um 150 talsins.
Næsta mynd er af efni
því, sem notað var í
brennuna: Hótel Siglufirði.
Hús það var reist á árunum
1909—11. 1925 keypti Páll
Guðmundsson, véitinga-
maður, húsið og opnaði þar
Hótel Sigiufjörð. Bjó hann
þar myndarbúi árum saman
ásamt konu sinni, Elínu
Steinsdóttur. Fyrir tveim-
ur árum keypti lierinn Hót-
el Siglufjörð, lét rífa það
og var efnið úr húsinu nú
notað í áramótabrennuna.
Loks er neðsta myndin
tekin á gamlárskvöld. Blys
in í Hvanneyrarskál, norð-
an frá Strákahyrnu yfir
þ\’era Hvanneyrarskál, og
upp í fjallið fyrir ofan
Gimbrakletta, sjást á mynd-
inni. 60 blys táknuðu árið,
sem var að kveðja, og rétt
fyrir neðan miðja skálina
sést ártalið 1961 úr blysum.
Félagar úr skíðafélaginu,
undir forystu Jóns Dýrfjörð
önnuðust um framkvæmd-
ir við þetta.
Myndirnar tók Aðalsteinn
Sveinbjörnsson, en textann
sendi okkur Jóhann Möller,
fréttaritari Alþýðublaðsins
á Siglufirði.
tMMWWMWWWWMWtVtVMWVVVMWWMMVVWVWlte.VtV
Minningarorð:
uríður J. Lange
EIN AF KUNNUSTU kon-
um Reykjavíkur á fyrri tíð,
frú Imríður Jakobsdóttir
Lange, lézt 2. þessa mánaðar,
88 ára að aldri, og verður hún
jarðsungin í dag frá Dómkirkj
unni. Hún verður jarðsett í
kirkjugarðinum við Suður-
götu, við hlið eiginmanns
síns.
Þuríður Lange fæddist að
Spákonufelli í Vindhælis-
hreppi‘1, desember árið 1872.
Foreldar hennar voru Björg
Jónsdóttir frá Háagerði og
Jakob Jakobsson frá Spákonu-
felli. Stóðu að henni miklar og
góðar ættir úr Húnaþingi. Þeg
ar Þurícur var 12 ára gömul
fór hún í skólann að Ytri-Ey,
en hann hafði þá fyrir nokkru
verið stofnaður, og sótti hún
þann skóla hluta úr hverjum
vetri þar til hún varð 17 ára.
Þá fór hún hingað til íteykja-
vfkur tii tvíburasystur móður
sinnar, Bjargar, en hún var
móðir Halldóru Bjarnadóttur,
ritstjóra Hlínar, og lagði Þur-
íður þá stund á nám í hann-
yrðum og karlmannafata
saumi. Að nokkru námi loknu
hér réðst Þuríður að skólan-
um að Ytri-Ey, en þá stóð
hann í miklum blóma undir
stjórnJEIínar Briem — og þar
var Þuríður kennari í haim-
yrðum og saumi í tvo vetur.
Þegar hér var komið, réðst
Þuríður til meiri mennta,enda
skorti ekki á áræði, reglusemi
og djörfung, eins og hún átti
líka kyn til. Fór hún til Dan-
merkur og settist í einn kunn-
asta skóla þar, Zahle-skólann
og stundaði nám í honum í
tvö ár. Eftir heimkomuna til
Reykjavíkur, árið 1899, gift-
ist hún Jens Lange málara frá
Randers og stofnsettu þau
ásamt foreldrum hennar heim
ili að Laugavegi 10. Jens
Lange var hinn mesti reglu-
og dugnaðarmaður og stund-
•aði húsamálun hér í Reykja-
vík áratugum sarnan við mik-
inn og g'óðan orðstír. Þuríður
gerðist um leik kennari við
Kvennaskólann og kenndi hún
við þann skóla í þrjá áratugi
óslitið.
Framhald á 12. síðu.
10. jan. 1961 —
Alþýðublaðið