Alþýðublaðið - 10.01.1961, Síða 12
pr. minutt for á danse med dem. En
'kveld sopte en gjest qulwet i en barog
fant qull for 278 dollars i qrusen. Et
hundespann kostet 25QQ dollars. En
BAR I SLEDEN.
Gullgvaverne slet daqen lanq med 5
tine, skylle oq sikte den frosne qrusen,
men om kuelden moret de seq pá ka-
féene. Her tok jentene qjerne en dollar
av qrauerne,.. Niqqer dim', hadde inne-
byqqet bar i sleden sin. För feberen i
Klondyke hadde laqt seq Comkring
1929) uar det funnet qull for ca. 175
mill. dollars der.
CNeste: A. laqe qulO
Hvaða læti eru þetta út af einni tertusneið...???
VÍNSTÚKA
Á SLEÐANUBl:
Guílgrafararnir
unnu baki brotnu
allan daginn við að
tína, skola og sigta hina
freðnu möl, en á kvöldin
skemmtu þeir sér á kaffi-
húsunum. Á þessum tím-
um kom það oft fyrir að
stúlka tók einn dal fyrir a3
dansa við þá í eina mínútu.
Kvöld nokkuð sópaði einn
gestur gólfið á vínveitinga-
stofu, og fann gull fyrir 278
dali í draslinu. Hundaeiki
kostaði 2500 dali. Einn af
gullgröfurunum, „Nigger
Jim“ kom fyrir vínstúku á
sleðanum sínum. Áður en
æðið í Klondyke lægði (um
árið 1929) hafði fundist þar
gull fyrir ca. 175 milljónir
dala_ (Næst: Að búa til
gullj.
★
— Kvað er að þér, vinur
minn Iitli? Þú ert svo sorg-
bitinn á svipinn.
— Eg tapaði tuttugu og
fimm eyringi.
— Vertu ekki að gráta,
vinur minn, hér er 25 eyr-
ingur.
— Jæja, svo það voruo
þér, sem tókuð hann.
Sfjórnarandstaðan
Framh. af bls. 13.
an fé til eigin nota síðar, eða
til elliáranna, hefir veríð refs-
að með því að rýra þetta spari
fé stórkostlega. Það er hreinn
þjófnaður, hvernig valdamenn
þjóðarinnar hafa farið með
þetta fólk. Sama er að segja
um allar tryggingar. Ég tek
dæani: Ungur maður keypti
sér líftryggingu árið 1918, þá
17 ára gamall, að upphæð kr.
5000.00 til 60 ára. Þessi mað-
ur lagði oft hart að sér til að
geta staðið í skilum við trygg-
ingarfélagið. Það væri fróð-
legt ef einhver maður vildi
reikna út hvað mikið dýrtíðar
skrúfan er búin að féfletta
þennan mann. Það er semsagt
ekki hikað við að ráðast á börn
og gamalmenni..
Hvar á að fá lánsfé, ef eng-
inn þorir lengur að trúa bönk-
unum eða ráðamönnum þeirra
fyrir því? Að taka erlend lán
endalaust, eða hvað fást þau
lengi? Það er stórmerkilegt,
að það skuli vera til stiórn-
málaflokkar, sem vilja ólmir
halda þessum ljóta leik áfram.
Það er ekki gert fyrir alþýð-
una, það eru annarleg sjón-
armið, sem ráða gerðum þess-
10 3an- 1001
ara manna. Hvers virði verður
sparifé unga fólksins eftir
nokkur ár, ef dýrtíðarskrúfu-
postularnir fá alltaf sinn vilja
fram?
Einhver minntist á það í
umræðunum, að auðmenn
byggðu stórhýsi, eins og það
væri nú eitthvað nýtt í sög-
unni. Það eru nú reyndar sem
betur fer fleiri, sem byggja
stórhýsi. Lítið yfir bæinn í
góðu veðri, þá munið þið sjá
mörg stórhýsi, sum 12 hæðir,
sem einungis eru byggð af al-
þýðufólki. Líka sjást stór
sjúkrahús, kirkjur og fleira.
Ég kom fyrir stuttu til verka-
manns, sem nýbúinn er að
byggja 100 ferm. íbúð og búa
hana nýtízku húsgögnum. Ég
verð að segja, að ég varð dálít-
ið undrandi eftir barlóminn,
sem maður heyrir daglega í
sumum dagblöðunum. Það er
helst á þeim að heyra, að eng-
inn í þessu landi hafi í sig eða
á nema fáeinir auðmenn. Það
skal tekið fram, að þessi mað-
ur, sem ég tók sem dæmi
skuldar ótrúlega lítið í hús-
inu.
Að endingu vil ég eindregið
skora á alþýðu þessa lands að
— Alþýðuhlaðið
þjappa sér fast saman og ýta
þeim mönnum út úr opinberu I
lífi, sem vinna að því leynt og
ljóst að eyðileggja það sem I
við öflum. Látum biðtíma
þeirra brátt verða á enda, því
fyrr því betra. Það yrði ábyggi
lega mesta kjarabótin.
Verkamaour.
Minningarorð
Framhald af 4. síðu.
Þau hjón efnuðust brátt og
var afkoma góð hjá þeim alla
tíð. Þau eignuðust nokkur hús
á fyrri tímum og mun frú
Þuríður hafa haldið þeim
eignum saman eftir lát manns
síns, en Jens Lange dó árið
1931. Þau hjón eignuðust eina
dóttur barna, Thyru tann-
lækni, sem giftist Pálma Lofts
syni forstjóra Skipaútgerðar
ríkisins.
Frú Þuríður Langa varð fyr
ir því slysi að handleggs-
brotna heima hjá sér að
Laugavegi 10 og flutti hún þá
til dóttur sinnar og tengda-
sonar og var þar upp frá því.
Hún var mjög ern og hafði
nokkur umsvif. Komu þá
stundum skólasystur og náms-
meyjar hennar í heimsókn til
hennar og var þá oft glatt á
I hjalla hjá henni. Árið 1958
varð hún aftur fyrir slysi,
I mjaðmarbrotnaði, og hafði
hún svo að segja ekki fótavist
upp frá því.
Þuríður Lange bjó yíir
dyggðum, raunræi og fast-
heldni fyrri tíma. Hún var i
réttsýn og ákveðin. Unni hún I
lítt tízkufyrirbrigðum og |
tildri og hnaut um slíkt í orð- j
um. Hún hugsaði fast og sterkt
og hélt fram skoðunum sínum
hvar sem var og hver sem í
hlut átti. Hún átti ekki heima
í hringiðu nútímans, enda
stóð hún föstum fótum á þeim
grunni er rógrónustu heimili
fyrri tíma voru byggð á.
vsv
ffférgarSur
4>augaveg 59.
AIIs konar karlmannafatnað
nr. — AfgTeiðnm föt eftir 1
máli eða eftir námerj mef
ítuttnm fyrirvara.
Hltima
Fatadeildin.
Bmn gleymdi
$ð endumýjá!
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLANS
1