Alþýðublaðið - 07.02.1961, Side 8
Leysir skíðamey
sjálfan Noreg
frá konungdómi
FRÁ því hefur verið sagt, að heldur sé brogað heim-
ilislífið hjá Ponti og Soffíu Lóren og að þau muni skilja
hvað úr hverju. En þessar myndar sýna annað. Þær
voru teknar í Madrid, en þangað var Ponti kominn til
að hitta sína heittelskuðu, sem var önnum kafin við
að leika í kvikmynd, sem tekin er í hinni spönsku höf-
uðborg. Þetía voru miklir og sælir endurfundir, og
Soffía tók svo vel á móti manni sínum, að hann sást
varla utan dyra. Þetta þótti afsanna allar skilnaðár-
kviksögur, en nú virðist annað vera uppi á teningnum.
HARALDUR krónprins
af Noregi er ástfanginn í
ungri dóttur norsks kaup-
sýslumanns, en hefur ver-
ið tilkynnt, að hann fái
ekki að giftast henni þar
eð það mundi verða tii
þess að konungdæmi Norð-
manna liði undir lok.
Þessi frétt birtist í
enska blaðinu „Daily
Sketeh“ fyrir helgina og
vakti hún mikið uppnám í
Noregi. Stúlka sú, er um
ræðir, heitir Sonja Har-
aldsen og hittust hún og
Haraldur í fyrsta sinn í
stúdentaveizlu í Osló fyrir
þrem árum, en hafa hitzt
oft síðan í skíðaklúbb. —
Hún er 23 ára gömul.
Þegar Olafur konungur
komst fyrst að þessu
ræddi hann við föður
Sonju og var hún send í
háskólann í Cambridge í
Englandi til þess að
gleyma. Faðirinn er nú lát-
inn.
Daily Sketch segir, að
það hafi rætt við talsmann
norska sendiráðsins í Lon-
don, og hafi hann sagt, að
ekkert gæti aftrað prins-
inum frá því að kvænast
stúlku af borgaraættum, en
á hinn bóginn gæti sam-
þykki Ölafs konungs við
því haft það í för með sér,
að konungsfjölskyldan
yrði að víkja frá völdum.
Ennfremur segir blaðið,
að Haraldur sé neyddur til
að kvænast prinsessu. 'Yal
Haralds krónprins er á
milli ástar og skyldu, að
giftast Sonju eða hlýða
skipunum föður síns.
Skylda hans er að kvæn-
ast Soffíu Grikkjaprins-
essu, hinni 23 ára dóttur
Páls konungs þar.
Segir blaðið, að ráðgert
hefði verið að tilkynna
trúlofun Haralds prins og
Soffíu við brúðkaup Ást-
ríðar í síðasta mánuði, en
verið slegið á frest.
Haraldur er 24 ára og
stundar nú nám við Ox-
ford-háskóla.
FJÖRIR SÉRFRÆÐING-
AR, útnefndir af Arabíska
sambandslýðveldinu, hafa
að undanförnu setið á rök-
stólum með framkvæmda-
stjóra UNESCO og rætt
leiðir til að forða stóru
höfunum við Abu Simbel
frá algerri eyðileggingu,
því Assuwan stíflan mun
færa nubisku hofin í kaf,
verði ekki gripið tl varn-
arráðstafana. Tvær tillög-
ur ásamt nákvæmum áætl-
unum eru þegar fyrirliggj-
andi og miða báðar að því
að varðveita þessi menn
ingarverðmæti á sama stað
og þau hafa verið í þús-
undir ára.
Kona meb kollu
ROSE HEILBRON
verður fyrsti kven-
dómarinn í sögu —
Breta, er óhætt að
bóka. Hún kvað vera
bæði falleg og gáfuð.
' Hún hefur verið verj
andi í mörgum glæpa
málum, sem vakið
hafa mikla athygli.
Hún verður því ekki
aldeilis illa undirbú-
in þegar hún setur
upp dómarahárkoll-
una (sjá mynd), því
að auk þess sem sagt
hefur verið að fram-
an, hefur hún í árabil
verið eins konar und-
irdómari £ heimabæ
sínum, Burnley.
• Sagt er, að aðeins
þurfi nú kvenbiskup
í Englandi svo að
hægt verði að segja,
að jafnrétti kynjanna
þar í landi sé algert.
\
g 7. febr. 1961 — Alþýðublaðið