Alþýðublaðið - 07.02.1961, Page 10

Alþýðublaðið - 07.02.1961, Page 10
FH vann yfirburðasigur gegn Val á sunnudagskvöld 25:8 eins og við var búizt. Það kom aftur á móti nokkuð á óvart, að Fram skyldr „bursta“ ÍR-inga, en lokatölurnar voru 30:16. Leikur ÍR-inga var allur í molum, sér- staklega var ábcrandi hvað vörnin var opin. Lið Fram er í stöðugri framför og er greini lega orðl'ð næstbezta hand- knattleikslið landsins. LEIKNI FH ER MIKIL Fyrstu fimm mínútur leiks Fram vann ÍR 30-16 FH og Vals einkenndust af miklum hraða afbrannslum og stangarskotum. Landsliðsmark verðirnir Hjalti og Sólmundur vörðu hættuleg skot. Loks á 6. mín. skorar Ragnar með eld- snöggu skoti og 2 mín. síðar Pétur Antonsson eftir mistök Valsvarnarinnar. Þriðja mark ið kom á 11. mín. úr fríkasti Ragnars. Enn líða þrjár mínút- ur, þar til mark er skorað og það var Pétur og hann sendir knöttinn enn í netið mín. síð- ar með glæsilegu skoti. Fyrri Ámi Njálsson, Val er með knöttinn, en Hafnfirðingar verjast vel. Sveinn Þormóðsson tók myndimar. 7. f&br. 1961 — Alþýðublaðið RAGNAR Jónsson hinn frábæri leikmaður FH sézt hér skora hjá Val, óverj- andi fyrir Sólmund Jóns- son. hálfleikur hálfnaður og stað- an 5:0. Mörkin fóru nú að koma þéttar og þó að vörn Vals stæði sig oft vel með Sólmund sem bezta mann, stóðst hún ekki hinar fjölbreytilegu sóknarað- gerði Hafnfirðinga. Þrisvar tókst Valsmönnum að skora í fyrri hálfleik, þar af einu sinni úr vítakasti. FH skoraði 11 mörk. Síðari hálfleikur var svipað- ur þeim fyrri, hvert markið af öðru og sum skoruð þannig að unun vár á að horfa, vöm Vals algjörlega í molum eftir hrað- ar skiptingar FH. Áhorfendur kunnu vel að meta leikni FH-inga og oft var þeim klappað lof í lófa. Sérstak lega er það frábært grip þeirra og hröð upphlaup sem skapa mörk og úthaldið er nærri ó- iþrjótandi. Ragnar var bezti maður kvöldsins, en af öðrum vöktu Pétur, Örn, Kristján og Birgir ásamt Einari sem aldrei bregzt, mikla athygli. Að sjálf- sögðu stóð Hjalti sig með á- gætum í markinu. Sólmundur varði mjög vel Valsmarkið og „burstið“ hefði orðið mun meíra án hans. Hannes Þ. Sig- urðsson dæmdi leikinn allvel. FRAM VANN ÍR MEÐ MIKLUM MUN 30:16. Fyrstu 15 mín. leiksins voru eins og almennt var búizt við, félögin skiptust á um foryst- una eða jafnt. Hraði var býsna mikill, en einnig tölu- vert um klaufaleg mistök á báða bóga. Er líða tók á fyrri hálfleik opnaðist vörn ÍR og Fram notfærði sér það út í yztu æsar og skoraði 7 mörk gegn 2 síðari 15 mín. Lék Fram oft með prýði sérstaklega var línu spil þeirra gott. Siðari hálfleikur var mjög ó- jafn, enda gátu Frammarar skotið að vild. Furðulegt var það einnig, að ÍR-ingar fengu fjögur vítaköst en misnotuðu þau öll, sum voru varin og önn- ur fóru í stöng. Lið Fram er í stöðugri fram för, spil þess er léttara en áður, grip betra og línuspil mjög gott á köflum. Markvörðurinn Sigurjón varði af prýði. en Guð jón og Karl ásamt nýiiðunum Erlingi og Sigurði Einarssyni sýndu ágætt spil. Ágúst og Jón Friðsteins áttu einnig allgóðan j leik. Hilmar hefur oft leikið betur. (• Lið ÍR man sinn fífil fegri, ienda hefur verið mikið mann- fall hiá liðiu undanfarin tvö ár. Sjö ungir efnilegir menn i hafa annaðhvort hætt eða far- ið úr bænum. Hermann og Gunnlaugur eru langbeztu menn liðsins. Það er eins og liðið falli ekki saman og allan hreyfanleik vantar í soilið. — Vörnin er veikasta hliðin. Karl Jóhansson dæmdi leikinn vel. Áður en I. deildarleikirnir hófust, léku Víkingur og Ár- mann í 2. flokki kvenna. Vík- ingur sigraði auðveldlega með 6 mörkum gegn 1. áti n Jón Þ. Ólafsson setti nýtt unglingamet í hástökki án at- rennu á innanfélagsmóti ÍR í ÍR-húsinu á sunnudaginn, —- stökk 1,67 m. Er það aðeins 1 sm. lægra en íslandsmet Vil- hjálms Einarssonar. Jón reyndi næst við 1.69 m., en felldi í öll brjú skiptin. Úrslit mótsins: Hástökk. án atrennu: Jón Þ. Ólafsson 1,67 m . unglingamet. Daníel Halldórsson 1,55 m Helgi Hólm 1,50 m Þetta er bezti árangur, sem Daníel og Helgi hafa náð. Langstökk án atrennu: Jón Þ. Ólafsson 3,15 m Daníel Halldórsson 3,00 m Kristjón Kolbeins 2,96 m Þrístökk, án atrennu Jón Þ. Ölafsson 9,32 m Daníel Halldórsson 9,22 m Valbj. Þorláksson 9,05 m Bragg tapar New York, 4. febr. (NTB-Reuter). Á innanhússmóti hér í dag hljóp Wilma Rudolph 60 yds. á Karl Benediktsson, Fram átti góðan leik gegn ÍR. 6,9 sek. bæði í undanrásum og úrslitum og Hayes Jones sigr- aði í 60 yds. grind á 7,0 sek. Þetta er sami tími og þau hafa bezt náð áður. Roszavölgyi, Ungverjalandi, sigraði í ensk- ri mílu á 4:6,0 mín., en í stangarstökki urðu þau sjald- gæfu úrslit, að James Wads- worth sigraði, stökk 4,67 m., en Bragg varð annar með 4,57 m. Thomas sigraði í hástökki, 2,14 m. ■<

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.