Alþýðublaðið - 07.02.1961, Side 12

Alþýðublaðið - 07.02.1961, Side 12
GRANNARNIR Uss. Palli sefur. Valdimar Framhald af 2. síðu. Eins og áður greinir flnttist Valdimar til Stokkseyrar ár- ið 1920 oð gökk að eiga Guð- rúnu Sigurðardóttur, ekkj u Andrésar heitins Ólafssonar frá Uxahrygg í Rangárvalla- sýslu, dugnaðar- og myndar- konu. Þau Valdimar og Guð- rún eignuðust eina efnis- og myndar stúlku er hlaut nafn- ið Hanna Valgerður, (eftir for eldrum hans) og er hún gift Ragnari Péturssyni kaupfé- Iagsstjóra við Kaupíélag Hafn firðinga, dugnaðar- og athafna manni. Eftir að Valdimar fluttist til Stokkseyrar, stundaði hann ýmis störf til sjós og lands, svo sem verkstjórn við skurðgröft og vegagerðir á Flóaáveitu- svæðinu, vélgælzu á mótorbát um, vélgæzlu við ljósamótor kauptúnsins um skeið, og síð- ast en ekki sízt að trésmíði, sem hann innti af höndum eins og faglærður smiður væri. Valdimar hefur jafnan Htt verið gefinn fyrir að halda hæfileikum sínum á lofti og þar af leiðandi verið heldur hlédrægur. En þrátt fyrir þao, hafa þeir, sem eitthvað hafa kynnst honum komist að raun um það, að þar sem hann fór fór traustur og víðsýnn al- þýðumaður, sem ekki mátti vamm sitt vita, en kappkost- aði að vinna öll sín störf með trú og dyggð, enda er vinnan hans yndi og henni fylgir vinnugleðin. Við Valdimar höfum haft náin kynni s. 1. 40 ár, og oft unnið saman og ég, sem hans yfirmaður við ýmis verk, sem ég hef haft yfir að segja, og hef ég vart kynnst verklægn- ' ari, prúðari, samvizkusamari og húsbóndahollari manni, en . hann er Við yl minninganna, færi ég honum nú við þessi tímamót í lífi hans, mínar bezíu þafckir fyrir öll hans margvíslegu og oft vanda- sömu störf, sem hann innti af höndum á umræddu tímabili og ég háíði yfir að segja. Til Hafnarfjarðar fluttist Valdimar með fjölskyldu sína árið 1933, og heíur búið bar síðan. í Hafnarfirði hefur hann einnig starfað til sjós og lands, eins og áður, en þó meir í landi, alllengi hiá bæjai'- sjós,. við gatnagerðir, holræsi og vatnslagnir o. fl. Þá var hann um tíma hjá Almenna byggingafélaginu í Reykjavik, við smíðar og nú um skeið hefur hann verið starfsmaður hjá Kaupfélagi. Hafnfirðinga og einnig þar líka hans störf með ágætum. Árið 1944 dró skyn fyrir sólu hjá Valdimar, því það ár misstí Valdimar konu sína, eftir nokkuð langvinna og erf iða sjúkralegu, eftir 24 ára ástríkt hjónaband. Eftir fráfall konu sinnar, hélt hann samt heimili áfram og tók sér bústýru unz hann giftist í annað sinn árið 1952 og gekk áð eiga Önnu Guðna- dóttur frá Hvammi í Holtum og hefur hann í annað sinn hlotið vistkgt og aðlaðandi heimili, enda er Anna myndar og sómakona. Þeirra hjóna- band er barnlaust. Alþýðuflokkurinn í Hafnar firði færir þér sínar bezíu árnaðaróskir við þessi tíma- mót í lífi þínu með þakklæti fyrir störf þín í þágu flokks- ins á liðnum árum, með ósk um gæfu og gengi á ókomn-' um árum. Sömuleiðis færi ég þér mín- ar beztu árnaðaróskir með innilegu þakklæti fyrir ó- gleymanlegar samverustundir með ósk um góða heilsu og góða líðan fram í háa elli. Þórður Þórðarson. Svona fór staurinn SVONA fór staurinn og bílinn fór verr. Al- þýðublaðsmyndin er tekin á Snorrabraut. Það var launhált og sennilegasta orsök óhappsins -sú, að bílstjórinn hafi komið eitthvað við hcmlana. Gólfteppi, dreglar og bútar verða seldir í verzlun okkar næstu daga, mjög hagstætt verð. Komið og gerið góð kaup. TEPPI H.F. Austurstræti 22. — Sími 14190. 12 7- febr. 1961 — Alþýoublaðið ;

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.